Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1983, Síða 30
30 DV. MÁNUDAGUR12. SEPTEMBER1983. Margir erlendu Islandshestanna vöktu athygli fyrir fegurð og reisn, sérstaklega í töltgreinunum. Hér er einn slíkur, Þór undan Stíganda 625 og Perlu frá Kolkuósi. Það er Andreas Trappe frá Þýskalandi, sem situr hestinn og voru þeir félagar lengi vel efstir í keppninni, en þurftu að láta í minni pokann fyrir Hans-Georg Gundlach og Skoll í úrslitakeppninni í tölti og fjórgangi. Helstu úrslit EVRÓPUMEISTARAKEPPNI A-FLOKKUR— Fimmgangur samanl. Stig 1. Tómas Ragnarsson á Fjölni, Isl. 279,24 2. Eyjólfur Isólfsson á Krák, Isl 229,20 3. Jóhannes Hoyos á Gáska, Austurr. 228,83 4. Christian Indermaur á Valsa, Sviss 225,32 5. Gunnar Arnarson á Galsa, Isl. 215,33 6. Reynir Aðalsteinsson á Sprota, Isl. 203,94 B-FLOKKUR—Fjórgangur samanl. Stig 1. WalterFeldmann jr. á Magnúsi, Þýskai. 197,42 2. Olil Amble á Blika, Isl. 195,93 3. Hans-Georg Gundlach á Skolla, Þýskal. 194,48 4. ThomasHaagáSkugga.Sviss. 191,51 5. Heidi Nilsen á Heru, Noregi 189,70 6. PrebenTroels-Smithá Væng, Danmörku 163,39 7. Otto Hilzensauer á Kjark, Frakkl. 160,16 TÖLT — tJRSLIT: Stig 1. Hans-Georg Gundlach á Skoila, Þýskal. 181,50 2. Andreas Trappe á Þór, Þýskal. 171,50 3. Daniela Stein á Seif, Þýskal. 155,00 4. Joris van Grinsven á Rauðdreka, Hollandi 152,50 250MSKEIÐ: 1. Tómas Ragnarsson á Fjölni, Isl. 126,0 stig, 21,7 sek. 2. Reynir Aöalsteinsson á Sprota, Isl. 120,0 stig, 22,0 sek. 3. Aðalsteinn Aðalsteinss. á Baldri, Isl. 106,0 stig, 22,7 sek. 4. Christian Indermaurá Valsa, Sviss, 86,0 stig 23,7 sek. FIMMGANGSKEPPNI: Sek. 1. Aðalsteinn Aðalsteinsson á Baldri, Isl. 218,0 2. Tómas Ragnarsson á Fjölni, Isl. 218,0 3. Reynir Aðalsteinsson á Sprota, Isl. 212,0 4. PietHoyosáSóta.Austurríki, 212,0 5. Eyjólfur Isólfsson á Krák, Isl. 209,0 VÍÐAVANGSHLAUP: Stig 1. Heidi Nielsen á Heru, Noregi 50,0 2. Mathieu Dischinger á Kóp, Frakklandi 48,92 3. Arild Oterholt á Fífli, Noregi 48,00 4. Thomas Haag á Skugga, Sviss 46,84 5. Olil Amble á Blika, Isi. 46,16 FJÖRGANGSKEPPNI: Stig 1. Hans-Georg Gundlach á Skolla, Þýskal. 204,00 2. Andreas Trappe á Þór, Þýskai. 185,00 3. Walter Feldmann jr. á Magnúsi, Þýskal. 182,00 4. Daniela Stein á Seif, Þýskal. 176,00 5. Joris van Grinsven á Rauðdreka, Hollandi 164,00 6. Preben Troels-Smith á Væng, Danmörku 151,00 HLÝÐNIKEPPNI, ”DRESSUR”: Stig 1. Walter Feldmann, jr. á Magnúsi, Þýskal. 49,47 2. Sylvia Dubs á Skolla, Sviss 42,27 3. ThomasHaagáSkugga.Sviss 40,67 4. Heidi Nilsen á Heru, Noregi 36,15 5. Hans-Georg Gundlach á Skolal, Þýskal. 35,53 ' GÆÐINGASKEIÐ: Stig 1. AðalsteinnAöalsteinsson á Baldri, Isl. 104,0 2. Reynir Aðalsteinsson á Sprota, Isl. 86,0 3. Johannes Pucher á Bjarka, Austurríki 75,5 4. Eyjólfur Isólfsson á Krák, Isl. 65,0 5. Els Dutilh á Mána, Hollandi 64,0 6. Alexander Sgustavá Dróma, Austurríki 64,0 Allar einkunnir voru reiknaðar beint inn á tölvu og lágu fyrir um leið, ásamt röð keppenda og heildarstigum. Þar sem tölvan var tengd prentara var hægt að fá þetta jafnóðum og var það mjög þægiiegt. ■G.T.K. A ð loknu Evrópu- meistaramóti íslandshesta i Þýskalandi Vilji einhver verða vitni að algjörri virðingu við Island, íslensku þjóðina og menningu hennar, þá ætti sá hinn sami að sækja hestamót Islandshesta á er- lenda grund eða til dæmis til Þýska- lands. Þar er nýlokið Evrópumeistara- móti Islandshesta, en það stóð yf ir 2. til 4. september sl. Þegar islenski fáninn er borinn á hestbaki fyrir öllum helstu þjóðfánum Evrópu og þjóösöngur okkar ómar yfir fánaborginni með frís og kumr að undirspili, þá hríslast undursamleg þjóðemistilfinning um merg og bein og stoltið gagntekur mann yfir því einu að vera Islending- ur. Islenski hesturinn hefur greinilega gagntekið hug og hjörtu fleiri en Is- lendinga sjálfra. Á Evrópumeistara- mótinu voru mættir til leiks keppendur frá tíu þjóðlöndum og áhorfendur voru um tíu þúsund manns. Hvert land átti sinn tryggja aödáendahóp, sem hvatti sína menn óspart með hrópum og lófa- klappi. Greinilegt var að útlendu kepp- endurnir tóku þessa keppni af fylistu alvöru og þótt misjafnt væri reiðlagið, þá var greinilegt að sumir erlendu knapanna gáfu Islendingunum ekkert eftir að sitja íslenska hestinn. Helst var að sjá i skeiðinu að landinn væri frekar heima hjá sér, enda voru sumir bestu skeiðknapar landsins mættir til leiks. I Þýskalandi einu er talið að séu um þrjátíu þúsund hestar af íslenska stofninum. Mikill f jöldi þeirra er fædd- ur á þýskri grund, enda hefur útflutn- ingur hesta staðiö nú í þrjátíu ár. Evrópubúunum er greinilega mikið í mun að halda sinni ræktun fram og sumir hestanna á þessu móti báru það með sér að sú ræktun hefur blessast ágætlega. Hitt er svo annað að stór hluti þessara erlendis ræktuðu hesta eru miðlungshestar og þar undir. Þetta skapast af því að á stóru hestabúunum á meginlandinu þar sem íslenski hest- urinn er ræktaöur er landið dýrt og landrými því lítið. öll folöld, sem fæðast, eru því sett á til þess aö fá há- marksnýtingu á hryssum. Þetta þýðir að sjálfsögðu það, að stór hluti hrossa- stofnsins veröur hæfileikalitlir miöl- ungar, enda hafa hrossaræktendur á Islandi alltaf þurft að grisja mikið á haustin, ef gæðin eiga aö halda sér. Utlendingamir viöurkenna þetta og segja að þeir þurfi alltaf á að halda hinu góða blóöi frá heimalandi hests- ins. Þeir þurfi alltaf að flytja inn góöa graðhesta og kynbótamerar, auk þess sem þeir sækjast alltaf eftir gæðingum til þess að halda nafni sínu á lofti á sýn- ingum og til útreiða. A hinn bóginn segja þeir að Islend- ingar séu ekki orðnir samkeppnisfærir við þá sjálfa í ræktun hins almenna fjölskylduhests, vegna þess að íslensku hestunum hættir til að fá exem fyrsta árið sem þeir koma út, og fjölskylda sem nýbúin er að kaupa sér hest og lendir í slíku missir einfaldlega áhuga á hestamennskunni, þegar þetta er í upphafi hreinar sjúkravitjanir. Einnig segja þeir að hið mikla fjör íslensku hestanna, sem uppeldi þeirra á Islandi getur gefið þeim, sé hreinlega ekki við færi almennings erlendis, sem fyrst og fremst þarf þægan fjölskylduhest, sem dólar á feti og skokki megnið af út- reiðatúrnum. I þessu sambandi getur spekt t.d. verið mikið atriði, en íslensk- fæddu hestamir em margir styggir enda aldir upp villtir. Hin miklu sam- skipti hestanna í uppeldinu við mann- inn erlendis gerir þá einfaldlega spaka og það getur orðið vandamál hvaö þeir em í rauninni beyglausir viö manninn, því þaö getur breyst í frekju í uppeld- inu og síðar kenjar í tamningunni. Sumir hinna erlendu ræktenda vilja þó halda því fram, að þeir hefðu aldrei Mjog vel fór um islensku gestlna i hestamótinu enda var það haldið f hinu undurfagra Eifel-héraði í RfnariHnHnm Hér er einn hópurinn, sem bjó i hlnum glesilega Eifel-Ferienpark rétt hjá smáborginni Daun. Frá vinstri: Jón Bárðarson, Hallgrímur HaUgrfmston, Ragna Bogadóttlr, Viðar HaUdórsson, Herbert Ölason (Kóki) og frú, Hreinn Elfasson, Pétur Bárðarson og Kari Höskuldur Guðlaugsson. Mikil kátína rfkti jafnan á áhorfendapöllunum og hvöttu áhorfendur landa sfna og „sína menn” ákaft. Hér hefur vel tekist til á skeiðvellinum og ánægjan leynir sér ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.