Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Blaðsíða 8
8 DV. MANUDAGUR 3. OKTOBER1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd MAFIAN KAUPIR HEILU BANKANA FYRIR HERÓÍN- GRÓDA SINN Fíkniefnabarónar mafíunnar eru famir aö kaupa sér heilu bankand til þess aö koma hagnaðinum af 10 milljaröa doliara fíkniefnaverslun sinni í umferö, eftir því sem for- stööumaöur fíkniefnaráös Banda- rík janna heldur fram. Thomas Cash segir í viötali við eitt ítölsku blaðanna aö mafían heföi allt- af þurft á bönkum aö halda til þess aö „vaska óhreina peninga”, illa fenginn gróöann af fíkniefnasölunni til Bandaríkjanna. En nú væru þeir sumir í mafíunni búnir að koma sér upp eigin bönkum. Það er talið aö fíkniefnaverslunin milli Bandaríkjanna og Italíu velti árlega eins og sum af 500 stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna. Cash segir í viötalinu aö í nýlegu dæmi frá Flórida hefði komið í ljós að stór heróíngrósseri væri eigandi aö lánastofnun sem velti milljónum dollara. — Ekki vildi hann tilgreina banka sem ítalskir dómarar hafa hugá aörannsaka. Hann sagöi að heróingróða væri einnig veitt í hótelrekstur, matsölur, skyndibitastaöi og svo framvegis. Fíkniefnaráö Bandaríkjanna (DEA) varð þess nýlega áskynja að fíkni- efnasali í Texas hafði keypt með lög- mætum hætti hlutabréf í Exxon-olíu- félaginu fyrir 25 milljónir dollara. Bandarísk yfirvöld standa í stór- herferð gegn fíkniefnabraskinu og einbeita sér að fimm stærstu mafíu,,fjölskyldunum” í Bandarikj- unum, sem kenndar eru viö Gamb- ino, Lucchese, Colombo, Genovese og Bonano. Hafa þau handtekiö hundruö grunaöra og lagt hald i ágúst á heróín sem nema mundi 50 milljónum dollara aö verðmæti á svörtum markaði. Grikkland: Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa, heimtar sjálfstjórn drúsa á yfirráðasvæðum þeirra í Líbanon. Hann sést hér (t.v. á myndinni) á tali við einn af dátum sínum. HÆTT VIÐ NATO- ÆFINGARNAR Joseph Luns, aöalritari Nato, hefur sagst harma þá ákvörðun Grikkja aö hætta viö þátttöku í flotaæfingum Nato á Miðjarðarhafi vegna ágreinings um stööu grísku eyjarinnar Lemnos, nærri tyrknesku ströndinni. Talsmaður grískra stjórnvalda hafði áöur tilkynnt í Aþenu aö Grikkir heföu ákveöið að hætta við þátttöku í æfingunum vegna þess aö Nato-ríkin hefðu látið undan tyrkneskum þrýstingi og ákveðiö aö hluti æfinganna, sem átti aö fara fram nærri Lemnos, yröi færöur til. ' Menn kunnugir innri málefnum Nato sögðu aö ákveðið heföi verið aö láta æfingamar fara m.a. fram á og um- hverfis Lemnos, en meö því skilyrði að Grikkír gerðu ekki úr því áróðurs- bragð. Falliö var frá þeirri ákvörðun eftir að grísk stjómvöld lýstu hana pólitískan sigur fyrir Grikki. Grikkir halda fram rétti sínum til aö hafa víg- búnaö á eynni en Tyrkir segja aö sam- kvæmt milliríkjasamningum megi ekki haf a þar herbúnað. Líbanonstjórn æf vegna sjálfstjórn- arhugmynda drúsa Rússarnir draga skák mótmælin til baka Sovéska skáksambandiö hefur dregiö til baka fyrri mótmæli sín vegna skipulagsins á áskorenda- einvígjunum, en vegna þeirra mót- mæla hafa sovéskir skákmeistarar sniðgengiö einvigin. Vitaly Sevastyanov, forseti sovéska skáksambandsins, hefur i skeyti til Florencio Campomanes, forseta FEDE (alþjóöa skáksam- bandsins), harmaö stælumar sem sprottiö hafa af málinu. „Sovéska skáksambandið gerir sér grein fyrir, aö í samræmi viö gildandi lög og reglur hefur FIDE- forsetinn rétt til þess aö taka á milli þinga ákvaröanir varöandi einvígi áskorendanna,” segir í skeytinu. Til þessa hafa sovéskir fjölmiölar og skáksambandið — og Karpov núverandi heimsmeistari — harö- lega gagnrýnt Campomanes fyrir aö hundsa óskir skákmeistaranna sjálfra í vali á Pasadena og Abu Dhabi sem einvígisstöðum. Sevastyanov sagði aö mótmælin heföu verið dregin til baka eftir aö skákmannaráöið, skipaö alþjóöleg- um stórmeisturum, heföi farið þess á leit við FIDE aö endursköuð yröi fyrri ákvöröun um aö úrskuröa Korchnoi sigur og Ribli eftir aö Kasparov og Smyslov höfðu ekki mætt til einvígis við þá. Kinnock formaður Verkamannaflokksins Neil Kinnock var í gær kjörinn for- maður breska Verkamannaflokksins á fyrsta degi flokksþingsins sem haldiö er í Brighton. Kinnock sem aldrei hefur setiö í ríkisstjóm, en er nú for- sætisráðherraefni Verkamannaflokks- ins, sigraöi þrjá aöra frambjóöendur i kosningunni en einn andstæöinga hans, Roy Hattersley, var síðan kjörinn vafaformaður i kosningu um þaö embætti. I dag veröur síðan fjallað um úrslit síðustu kosninga á flokksþinginu, en i síðustu kosningum beiö Verkamanna- flokkurinn versta ósigur í kosningum sem flokkurinn hefur mátt þola frá því 1918. Framkvæmdanefnd flokksins hefur viöurkennt að ágreiningur innan flokksins muni hafa átt sinn þátt í ósigrinum. Á verkefnaskrá þingsins í dag veröur einnig áfrýjun fimm marxista sem reknir voru úr flokknum í f ebrúar. Ákveðiö hefur veriö að engir nema þingfulltrúar fái að verða viðstaddir umræöur um þaö mál. Byrjuð er önnur vikan síðan vopna- hlé tókst á bardögum stjórnarhers Libanons og drúsa og annarra banda- manna Sýrlendinga en ekkert bólar á pólitiskri lausn ágreiningsins. Aðilarnir, sem boðiö hafði veriö til ráögerörar „þjóösáttarráöstefnu”, hafa ekki getað orðið ásáttir um staö eða stund og tilraunir diplómata til þess aö fá hlutlausa eftirlitsmenn til þess að fylgjast meö því aö vopnahléð sé virt hafa h'tinn eöa engan árangur borið enn. Heldur þótti draga úr líkum á því aö sættir tækjust þegar Líbanonstjórn lét Franskir tollgæslumenn hafa undir höndum lista yfir franska ríkisborgara sem taldir eru hafa meö ólögmætum hætti komiö peningum fyrir á svissneskum bankareikningum. I umræðuþætti í útvarpi í gær sagöi Jacques Dolors fjármálaráðherra að rannsókn væri nú hafin á þessum Frökkum. — „Ef rétt reynist (aö þeir hafi fé geymt á leynireikningum í Sviss) bjóðum við þeim sættir til þess að sleppa viö málshöfðanir og réttarhöld með öllum þeim óþægindum og tUkostnaöi sem því fýlgir,” sagöi hann. — Til þessa hafa flestir þeir sem staðnir hafa veriö að slíkum skatta- undanfærslum þegiö aö ganga að sáttatUboðinu og greitt þungar fjár- sektir. I síöasta mánuöi hélt vikublaðið ,,Le í ljós í gær hneykslun sína á hugmynd- um drúsa um að setja á laggimar eigin stjórn í Shouf-f jöllum og á öörum svæð- um sem byggö eru af drúsum. Talsmenn stjórnarinnar segja aö það gæti orðið fýrsta skrefið til skiptingar landsins. Gemayel forseti segist þegar byrjaöur undirbúning aö því aö hindra að þessi ráðagerð Walid Jumblatts, leiðtoga drúsa, nái fram aö ganga. Drúsar segja aö viöbrögö Gemayel- stjómarinnar beri keim af móðursýki. Hugmyndin um sjálfsstjóm sé bara ætluö sem bráðabirgðalausn og að Canard Enchaine” því fram að franskir tollgæslumenn heföu komist yfir þrjá lista á dulmáU meö nöfnum 5000 Frakka sem ættu reikninga í svissneskum bönkum. Sagöi blaðið aö dulmáUö hefði verið ráöið. Skömmu eftir aö sósíalista- flokkurmn var kominn í ríkisstjórn var settur nýr skattur á auömenn. Fljótt kvisaðist að stórar fjárhæðir streymdu úr landi. Var talið aö þeim væri smyglaö úr landi og inn á banka- reikninga í Sviss til þess aö foröa eig- endunum frá þyngri skattabyröum. Fyrr á þessu ári lét svissneskur þingmaöur, Jean Zeigler, svo ummælt aö F’rakkar ættu á reikningum í sviss- neskum bönkum yfir 500 miUjarða franskra franka. hægrisinna falangistar og kristnir menn hafi óátaliö fengiö að hafa sUkt á sínum yfirráðasvæöum árum saman. Jumblatt bakaði sér ennfremur gremju Gemayel-stjórnarinnar í gær þegar hann ávarpaöi 600 hermenn sem sagðir eru Uðhlaupar úr stjómarhem- um. Dátamir hafa lýst því yfir aö þeir muni ekki hlýöa fýrirmælum því að foringjar þeirra hafi att þeim gegn eigin landsmönnum. Þessa viku síöan vopnahléiö var samiö hafa bardagar legiö niðri og vopnahléið að mestu verið í heiðri haft. Sprengjutilræði ogmannrán íkosningunum DauðsföU, sprengingar og mannrán settu svip sinn á framhald kosning- anna í Smd-héraöi í Pakistan um helg- ina en boðaö hef ur veriö verkfaU í sum- um af þeim sex umdæmum þar sem kjósa skal. Lögregla og sjónarvottar greindu frá því að sex manns heföu beðið bana viö atkvæðagreiðsluna í gær og frést hefur af fjórtán sprengingum. Stjórnarand- stæðingar tóku ennfremur ellefu lög- regluþjóna og kosningaeftirlitsmenn fyrir gísla til þess að undirstrika mót- mæli sín viö kosningamar, sem margir hafa sniðgengið. Stjómarandstæðingar segja aö fáir hafi skUaö atkvæöum í þessum „skrípakosningum”, eins og þeir kaUa þær þar sem stjórnarandstöðuflokkun- um er bannað aö bjóöa fram í þeim. Ríkisf jölmiölar halda því fram að k jör- sókn sé mikil og sjónvarpið sýndi myndir meö löngum biöröðum viö kjörstaöi. Siöari áfangi kosninganna átti aö fara fram á föstudag en var frestað tU sunnudags vegna ólgu og mannvíga. Rannsaka Frakka sem fela fjármuni í bönkum í Sviss

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.