Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Blaðsíða 24
24 DV. MANUDAGUR 3. OKTOBER1983. íþróttir ■ íþróttir__________________íþróttir______________ íþróttir íþró Alfred Gíslason stórskyttan mikla hjá Essen skoraði sex mörk um helgina. Sex mörk Alfreðs dugðu Essen ekki Stórleikur Allreðs Gíslasonar nægði ekki liði Essen í v-þýska handknattleiknum þegar Essen lék i Niimberg. Niiraberg vann 14—13 eftir mikinn barning. Alfreð skoraði sex mörk fyrir Essen og var besti leikmaður liðsins í annars slökum leik. Sigurður Sveinsson skoraði tvö mörk þegar Lemgo tapaði fyrir Gummersbach 14—16 á heimavelli sínum. Mikið var um. brottrekstra af leikveUi og dómarar ieiks- ins þurftu lögregluaðstoð að leik loknum, svo mikill var hitinn þar. Urslit leikja i v-Þýska handboltanum varðþessi. Lemgo—Gummersback 14-16 Huttenberg—Dankersen 20-13 Giinzburg—Göppingen 23-26 Berlin—Hofweier 18-21 Bergkamen—Schwabing 16-15 Niimberg—Essen 14-13 Nítján högg undir pari hjá Ballesteros Spánverjinn Sevcriano Ballesteros varð öruggur sigurvegari í Lancome golfkeppn- inni sem lauk í Paris í gær. Hann lék 72 hol- urnar á 269 höggum sem er nítján höggum undir pari. Bandaríkjamaðurinn Corey Pa vin varð annar á 273 höggum. -SOS Víkingar komust ekki áfram á ein staklingsframtaki Norska liðið Kolbotn gerði Evrópudraum íslandsmeistara Víkings að engu — Við áttúm ekki von á því, að komast áfram í Evrópukeppninni. Þetta var hreint stórkostlegt — við erum komnir áfram í fyrstu Evrópukeppninni sem við höfum tekið þátt í, sagði liðstjóri norska liðs- ins Kolbotn, Stein Mamen, eftir að Kolbotn hafði slegið Víkinga út úr Evrópu- keppni meistaraliða. Norð- mennirnir komust áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli, en samanlögð markatala úr viðureign lið- anna varð 39—39. Kolbotn vann 20—18 í Osló en Víkingar 21—19 í Reykja- vík. Víkingar geta sjálfum sér kennt hvernig fór því að þeir voru með pálm- ann í höndunum — voru yfir 20—18 þegar 1.36 mín. voru til leiksloka og voru þá með knöttinn. Steinar Birgis- son reyndi þá ótímabært skot sem markvörður Kolbotn, Bjöm Steive, varði. Þar með voru Norðmennirnir með knöttinn og þegar 23 sek. voru til leiksloka skoraöi Vidar Bauer mark Kolbotn, 20—19, sem fleytti norska liðinu áfram. Víkingar urðu að skora tvö mörk á síðustu sek. en það tókst þeim ekki. Viggó Sigurðsson átti síð- asta orð leiksins — skoraði 21—19 þegar þrjár sek. voru til leiksloka. Einstaklingsframtak dugar ekki Vikingar ollu miklum vonbrigðum meö leik sínum. Þeir léku slakan hand- knattleik og lítið sást af skemmtileg- um leikfléttum. Það var einstaklings- framtakið sem réð ríkjum hjá Víking- um og kann það ekki góðri lukku aö stýra í Evrópukeppni. Þá vantaði algjörlega yfirvegun í leik þeirra. Víkingar létu æsa sig upp í tíma og ótíma og hafði maður þaö á tilfinning- unni að leikmenn Víkings ætluðu sér að skora tvö mörk í hverri sóknarlotu. Einstaklingsframtak Viggós Sigurðs- sonar og Sigurðar Gunnarssonar hélt Víkingum á floti í fyrri hálfleiknum en staðan var 12—11 fyrir Víking í leik- hléi. Þeir skoruöu þá sín fjögur mörkin hvor. Hörður tekur til sinna ráða Þegar Sigurður Gunnarsson var tek- inn úr umferð í seinni hálfleiknum tók Höröur Harðarson til sinna ráða — hann skoraði grimmt og náðu Víkingar þrisvar sinnum þriggja marka forskoti — 18—15,19—16 og 20—17. Hörður var þá óstöðvandi — skoraði fjögur möric og fiskaði vítakast sem Viggó Sigurðs- son skoraði úr. Allt á suðupunkti Þegar staðan var 20—17 var allt Jóhannes tekur við hjá Fram Jóhanncs Atlason fyrrum landsliðs- þjálfari mun taka við 1. deildarliði Fram í knattspyrnu keppnistimabilið 1984. Jóhannes aðstoðaði pólska þjálf- arann Strejlau i lok sumarsins og átti drjúgan þátt í því að liðið vann sér sæti íl. deUdáný. Jóhannes er ekki óþekktur í her- búöum Fram. Hann þjálfaði meistara- flokk liðsins fyrir nokkrum árum og íinnig hefur hann þjálfað yngri flokka 'élagsins með stórgóðum árangri. -AA. komið á suðupunkt — aðeins fimm mín. til leiksloka. Víkingar komast þá í hraðaupphlaup og gátu gert út um leik- inn. Sigurði Gunnarssyni brást þá bogalistin — hann lét Björn Steive verja frá sér og upp úr því var Björn rekinn af leikvelli fyrir að brjóta á Guömundi Guðmundssyni. Víkingar nýttu sér það ekki að vera einum fleiri, Hörður Harðarson braut klaufalega á einum Norðmannanna og var vísaö af leikvelli. Norðmenn minnkuðu muninn í 20—18 en þá fóru leikmenn Víkinga á taugum — hama- gangurinn var mikill og ótímabært skot Steinars varð þeim dýrkeypt. Víkingar slakir Þrátt fyrir einstaklingsframtak Harðar og Kristjáns Sigmundssonar, markvarðar Víkings, sem varöi grimmt undir lok leiksins, eru Víking- ar úr leik. Þeir hefðu haldiö áfram í Evrópukeppninni ef þeir hefðu leikið yfirvegað og markvisst gegn Kolbotn, þá hefðu þeir tryggt sér áframhald- andi farseðil í Evrópukeppninni. Mörk Víkings skoruðu þessir leik- menn: Staðan var 20—18 og 1.36 sek. eftir a reyndi ótímabært skot úr hægra hornii fyrir hjá Víkingum að þeir reyndu sk stæðinganna sundur. Viggó Sigurösson 8/4, Sigurður Gunnarsson 4, Hörður Harðarson 4, Steinar Birgisson 3, Karl Þráinsson 1 og Guðmundur Þ. Guðmundsson 1. Ricky Bruck. Bruck ekki af baki dottinn Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttamanni DV í Svíþjóð: — Frjálsíþróttamaðurlnn lit- ríki, Ricky Bruck, einn mesti krlnglukast- ari heims, gerðl sér lítið fyrir og kastaði kringlunni 67,06 m á frjálsíþróttamóti hér í Svíþjóð um helgina. Sænska metið hans er 68,24 m. Brack, sem er 37 ára, hefur haldið því fram að hann verði kominn á toppinn á ólympíuleikunum í Los Angeles næsta sumar og eftir árangur haus um helgina eru menn farnir að trúa þvi að þessi mikli keppnismaður ætli að standa við það. -GAJ/-SOS. íþróttir Bóhannes Atlason lengst til vinstri ásamt Kristni Jörundssyni (í miðju), fyrram markakóngi Fram, og Ólafi Orrasyni aðstoðarmanni Jóhannesar með yngri flokka Fram. DV-ljósmynd EJ. Það var oft hart barist í leik Víkings og Kolbotns á sunnudagskvöldiö. Hér sést Hörf sýndi góðan leik í seinni hálfleik og skoraði þá skemmtileg mörk. fþróttir Iþróttir mm Iþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.