Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Blaðsíða 28
28 DV. MÁNUDAGUR 3. OKTOBER1983. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Steve Coppell verður að leggja skóna á hilluna Kevln O’Callagban—átti snilldarleik með Ips wich. — í „sjónvarpsleiknum” á White Hart Lane Mark Falco var hetja Tottenham þegar Lundúnaliðið vann sigur 2—1 yf- Coventry tapaði sínum fyrsta leik íHighfield Road ir Nottingham Forest á White Hart Lane i Lundúnum í gær. Leiknum var sjónvarpað beint um Bretlandseyjar og sáu sjónvarpsáhorfendur og 30 þús. áhorfendur á White Hart Lane Falco skora sigurmarkið 10 min. fyrir leiks- lok með glæsilegum skaila, eftir fyrir- gjöf frá varamanninum Gary Brooke, sem sendi knöttinn fyrir mark Forest eftir aukaspyrnu. Brooke kom inn á fyrir Alan Brazil á 65. min. Það hefur vakið mikla athygli í Eng- landi að 30.956 áhorfendur voru á leikn- um. Reiknað var meö aö aðsókn minnkaöi, þar sem leiknum var sjónvarpað beint. Svo var ekki. Þess má geta að áhorfendur voru 30.662 sl. keppnistímabil, þegar félögin mættust. Forest fékk óskabyrjun þegar bak- vörðurinn Viv Anderson lék á Chris Hughton á 4. mín. og sendi knöttinn til Steve Wigley, sem tók knöttinn á hæl- inn og sendi hann til Colin Walsh, sem skoraöi 1—0. Tottenham jafnaði á 67. mín. þegar varamaðurinn Gary Brooke sendi knöttinn fyrir mark Forest þar sem Gary Stevens, sem Tottenham keypti frá Brighton, stökk hærra en allir aðrir og skallaði hann knöttinn örugglega fram hjá hollenska markverðinum Van Breukelen. Eins og DV sagöi frá á laugardaginn lék Frans Thijssen, fyrrum leikmaður Ipswich, sinn fyrsta leik með Forest. Hann er í láni hjá félaginu frá Vancouver Whitecaps. • Þess má geta að lokum að frétta- maöur BBC sagði aö Falco hefði skor- að sigurmarkið en Reuter fréttastofan segir að Steve Archibald hafi skorað markið eftir að Falco skallaöi knöttinn til hans. -SOS — honum var tilkynnt það á laugardagsmorguninn eftir rannsókn á hné hans 0 Steve Coppell — ferill hans á enda. enska landsliðinu og skoraði 7 mörk. Þá lék hann 390 leiki með United og skoraöi 77 mörk í þeim. Mikið blóðtaka — Ég er mjög hryggur yfir því aö- knattspyrnuferill Coppell sé á enda. Þetta er mikið blóðtaka fyrir Coppell, Manchester United og enska knatt- spymu, því að Steve Coppell hefur ver- ið einn besti knattspymumaður Eng- lands undanfarin ár, sagði Ron Atkins- son, framkvæmdastjóri United. -SE/-SOS. O Paul Mariner. Mariner er markahæstur Paul Mariner hjá Ipswich er nú orðinn markahæstur í Englandi — hefur skorað sjö mörk. David Swindlehurst hjá West Ham er næstur á blaði með sex mörk en síðan koma þrír leikmenn með fimm mörk. Það eru þeir Eric Gates hjá Ips- Wich, John Barnes hjá Watford og Simon Stainrod hjá QPR. -SOS. ell var lykilmaður í leik beggja liöa, auk þess sem mikill sjónarsviptir er aö þessum skemmtilega leikmanni af knattspyrnuvöllunum á Englandi. Steve CoppelL var keyptur á 40 þús. pund frá fjórðu deildar liöihu Tran- mere Rovers fyrir átta árum af þáver- andi framkvæmdastjóra United, Tommy Docherty. Coppell varð strax fastamaöur í liði Manchester United og var fljótlega valinn í enska landslið- ið eftir að hafa sýnt frábæra leikni með United sem sókndjarfur hægri útherji. Alls lék Coppell 42 landsleiki meö Steve Coppell, hinn frábæri útherji Manchester United og enska landsliðs- ins, hefur orðið að leggja skóna á hill- una eftir siæm meiðsli á hné er hann hlaut í landsleik með enska landsliðinu í leik gegn Ungverjum á Wembley á síöasta ári. Það var á iaugardags- morguninn sem lokaúrskurðurinn lá fyrir eftir að sérfræðingar höfðu rann- sakað hné Coppeli en þá hafði hann gengið undir þrjár skurðaðgerðir á því. Þeir sögðu honum að hann yrði að hætta að leika knattspyrnu til að forð- ast örkuml. Þetta er mikið áfall fyrir Manchest- er United og enska landsliðið því Copp- Mark Falco tryggði Tottenham sigur... Kevin O’Callaghan átti stórleik með Ipswich sem vann, 2-1 Sigurganga Dundee j Utd.varstöðvuð j — og Celtic eitt á toppnum í Skotlandi Það urðu 10.492 áhorfendur vitni að fyrsta tapi Coventry City á sínum eigin heimaveili, 1—2, gegn Ipswich Town. Ipswich sýndi allar sínar gömlu góðu hliðar á Highfield Road, sérstaklega í fyrri hálfleiknum en þá höfðu þeir al- gera yfirburði gegn hinu unga liði Coventry. Það var einkum vegna stór- Ieiks irska Iandsiiðsmannsins Kevin O’Cailaghan, sem lék gegn íslending- um á Laugardalsvellinum á dögunum, sem lagði grunninn að sigri aðkomu- liðsins. Á 25. mínútu leiksins gaf hann fal- lega sendingu á Paul Mariner sem skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Ips- wich. Aðeins þrem mínútum síðar braust O’Callaghan af harðfylgi fram- hjá tveim varnarmönnum Coventry inn í vítateig þeirra og skoraði snyrti- lega framhjá hinum júgóslavneska markverði Coventry Raddy Avra- movic, og staðan orðin 2—0 fyrir Ips- wich eftir aðeins 28 mínútur. Leik- menn Coventry máttu síöan þakka fyrir að fá ekki fleiri mörk á sig fyrir leikhlé, slíkir voru yfirburðir gest- anna. En í síðari hálfleik komu heima- menn ákveðnir til leiks og gerðu harða hríð að marki Ipswich og tókst þeim að minnka muninn á 63. mínútu. Þá lék Dave Bennet (fyrrum leikmaður Man- chester City) laglega framhjá George Burley bakveröi Ipswich og sendi fyrir markið. Þar var fyrir Nicky Platnauer og skallaði hann að markinu en knött- urinn fór í þverslána og af henni fyrir fætur Terry Gibson sem skoraði örugg- lega af stuttu færi. Eftir markið tví- efldust leikmenn Coventry og reyndu allt til að jafna metin. En enski lands- liðsdúettinn í vörn Ipswich, Terry Butcher og Russel Osman, átti stórleik og sá um að stöðva alla tilburöi sóknar- I manna Coventry, en þó þurfti Paul Cooper að verja mjög vel hörkuskot frá Dave Bennet. Ipswich átti af og til stórhættulegar skyndisóknir og úr einni slíkri bjargaði Sam Allardyce á marklinu skoti frá Mick D’Avray, en hann kom inn á sem varamaður fyrir Paul Mariner sem meiddist. Á síðustu mínútunum þurfti Aramovic að verja tvívegis á glæsileg- an hátt í bæði skiptin frá John Wark. Liöin sem léku á Highfield Road voru þannig skipuð: Coventry: Aramovic, Hormant- schuk, Roberts, Daly, Allardyce, Peake, Bennet, Grimes, Gibson, Plat- nauer og Adams. Ipswich: Cooper, Gernon, Burley, Wark, Butcher, Osman, O’Callaghan, Putney, Mariner (D’Avrey), McCall, ogGates. -SE. Glasgow Rangers stöðvaði sigur- göngu Skotlandsmeistara Dundee United í Dundee þar sem Rangers vann, 2—0. Það voru þeir Ally Mc- Coist, fyrrum leikmaður Sunder- land, og Sandy Clarke, fyrrum leik- maður West Ham, sem skoruðu mörk Rangers. Celtic skaust upp á toppinn í Skotlandi með því að gera jafntefli, 1—1, viö St. Mirren. Frank Mc- Dougall skoraöi mark St. Mirren en bakvörðurinn Brian Whittaker I jafnaði 1—1. Aberdeen stöðvaði sigurgöngu ' Hearts, meö því að vinna sigur, 2- I 0. Motherwell tapaði, 1—3, fyrir Dundee á heimavelli og skoruðu j leikmenn Motherwell tvö sjálfs- g mörk. Celtic er með 11 stig, Dundee | United og Hearts eru með 10 og Aberdeen 9.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.