Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Blaðsíða 45
DV. MÁNUDAGUR 3. OKTOBER1983.
45
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
LOKSINS ER VORIÐ
KOMIÐ í DALASÝSLU
— þrátt fyrir að almanakið segi að það sé haust
„Utgáfa plötunnar hefur tafist, en ég
lofa öllum því aö Voriö verður gott,
þrátt fyrir aö það sé komið haust nú
þegar platan kemur út,” sagði Kjartan
Eggertsson, skólastjóri Tónlistarskól-
ans í Dalasýslu, er Sviðsljósið rabbaði
við hann nýlega.
Platan sem Kjartan er aö tala um
nefnist Vor í Dölum. ,JEfnið er hluti af
því, sem hinir ýmsu kórar í sveitinni
hafa verið að fást við síðastliðin tvö ár.
Og þá kemur lúðrahljómsveitin einnig
viðsögu.”
Kjartan sagði að platan hefði verið
tekin upp í kirkjum og félagsheimilum.
Ætlunin væri að gefa út 350 plötur, en
það væri sá fjöldi, sem nauðsynlegt
væri að selja, til að platan kæmi út á
sléttufjárhagslega.
„Þetta er mórölsk og rómantísk
plata og ég veit að hún á eftir að
þjappa tónlistarfólki í Dalasýslu
saman,” sagði Kjartan, sem býr í Búð-
ardal.
Þeir kórar sem koma fram á plöt-
unni eru: Janúarkvartettinn, Söngfé-
lagar í Vorboðanum, Karlakórinn
Hljómur, Lúðrasveit Tónlistarskóla
Dalasýslu veturinn 1982—’83, Söng-
félagar í kirkjukórum Hvamms-, Stað-
arfells-, Dagverðarness-, Skarðs- og
Staðarhólskirkna ’83, Þorrakórinn og
Söngfélagar í kirkjukórum Stóra-
Vatnshoms-, Kvennabrekku- og Snók-
dalskirkju.
Við óskum Dalamönnum til ham-
ingju meö plötuna og vbnum að hún
geri sömu lukku og lagið .Jír ég kem
heim í Búöardal,” gerði fyrir nokkrum
árum. -JGH.
Kjartan Egggrtsson, skólastjóri Tónlistarskóla Dalasýslu, heldur á plötunni
Vor i Dal sem nú er að koma út. Ýmsir kórar í Dalasýslu syngja á plötunni.
Og Kjartan og fleiri eru ekki bangnir með plötuna þó að komið sé haust.
„Þetta ergott Vor". DV-mynd: GVA.
Olivia
mætti með
Mattanum
— sá er þrettán
árum yngri en hún
Söngkonan geðþekka, Olivia New-
ton-John, er komin með nýjan elsk-
huga. Sá heitir Matt Lattanzi og er
aðeins 22 ára, en Livvy eins og Olivia
er kölluð á meðal vina er orðin 35 ára.
Matt þessi er dansari að atvinnu.
Blaðasnápar komust að sambandi
þeirra, er þau skötuhjú komu til
London í síðustu viku til að njóta sæl-
unnar í Lundúnaþokunni.
Troðið niður
og troðið upp
— Rocky Stallone
fóráspariskónum
útísteypuna.
Sjérlákurinn
kominná vettvang
Eintreður, tvitreður, þr'rtreður. Rocky Stail-
one með fótsporið fræga fyrir framan leik-
húsið í Holly. „Það fara ekki allir í sporin
hans Rocky."
„Það fara ekki allir í sporin hans Rocky
Stallones,” sagði gamli múrarinn eitt sinn er
hann setti á sig boxhanskana.
Og það er kannski hverju oröi sannara.
Rocky tróð nefnilega niður í steypu með aðra
löppina nýlega þegar verið var að vígja leik-
hús í Hollywood.
Menn höföu á orði aö þetta væri bara byrjun-
in því að Rocky ætlaöi með þessu að sýna
mönnum fram á að það getur verið gott að
troða svona niður ef menn ætla aö troða upp
síöar meir.
Fótspor sem þessi þykja meiri háttar heiður
fyrir vestan og hver veit nema Stallone sé nú
oröinn ódauðlegur fyrir vikið.
Sviðsljósiö er klárt á því að svo sé því að nýj-
asta mynd hans heitir jú ,,Staying Alive,” sem
einhver lélegur myndi þýöa „„Höldum okkur
álífi,” eða „Verumlifani.”
Þurfti
hann
yenum
aðhalda?
— „MASH-skálkurinn” Alan Alda
fær 300 milljónir fyrir
sjónvarpsauglýsingu
Aðalmaöurinn í MASH-
þáttunum, Alan Alda, fær
tekjur víðar en frá þess-
um geysivinsælu þáttum.
Hann gerði nýlega
samning við japanska
fyrirtækið Atari um að
auglýsa fyrir þá vídeo-
tæki. Greiðslur? ,,Jú,
Alda, þú færð 300 millj-
ónir, og það íslenskar
fyrirvikið.”
Við óskum Alda til ham-
ingju með samninginn
sem verður að teljast
nokkuð góður, miðað við
aðstæður aö minnsta
kosti.
Alan Alda glottir hér við tönn.
Landsþing haldið að
Hótel Loftleiðum dagana
7.-9. okt. 1983.
DAGSKRÁ:
Föstudagur 7. okt. kl. 20.30.
Þingsetning: Eggert Jóhannesson, formaður.
Ávarp: Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra.
Ræða: Vilhjálmur Hjálmarsson, fv. ráðherra.
Milli atriða verður tónlistarflutningur.
Að lokinni þingsetningu er þingfulltrúum og gestum boðið til
kaffisamsætis í Kristalsal.
Laugardagur 8. okt. kl. 09.00.
Ráðstefna um málefni og markmið samtakanna. Stutt fram-
söguerindi: Fjallað verður um eftirtalda málaflokka, m.a. í
ljósi þeirra umræðna sem fram hafa farið innan samtakanna
á undanförnum árum:
1. Mennta- og skólamál: Einar Hólm Olafsson yfirkennari.
2. Langtímavistun/heimili: Lára Björnsdóttir félagsráðg.,
Jón Sævar Alfonsson skrifstofustj.
3. Atvinnumál: Friðrik Sigurðsson þroskaþjálfi.
4. Ráðgjöf og stuðningur viö fjölskyldur: Halldóra Sigur-
geirsd. húsm., Þorsteinn Þorsteinsson bóndi.
5. Ráðstöfun fjármagns til framkvæmda og uppbyggingar:
Bjarni Kristjánsson framkvst.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 13.30 Vinnuhópar taka til starfa og ræöa efni áður upptal-
inna erinda.
Kl. 15.30 Kaffihlé.
Kl. 16.00 Niðurstöður vinnuhópa kynntar.
Kl. 16.30 Erindi um réttindagæslu þroskaheftra. Jóhann Guð-
mundsson læknir.
Kl. 16.45 Stuttar umræður.
Kl. 17.00 Ráðstefnuslit.
Kl. 19.30 Sameiginlegur kvöldverður þingfulltrúa og gesta í
Blómasal.
Sunnudagur 9. okt. kl. 9.00—12.00
Aðalfundarstörf Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Kl. 13.30—17.30 Aðalfundarstörf Landssamtakanna Þroska-
hjálpar.
Ath.: Aðaláhersla veröur lögð á umræður um niöurstöður
vinnuhópa og ályktanir í framhaldi þeirra. Þessar umræður
hefjist strax að loknu matarhléi.
Ráðstefnan laugardaginn 8. okt. er öllum opin og er áhugafólk
um málefni þroskaheftra og aðrir sem því tengjast hvattir til
að sækja ráðstefnu þessa.
LANDSSAMTÖKIN ÞROSKAH JÁLP.