Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Síða 26
26 íþróttir DV. MÁNUDAGUR 3. OKTOBER1983, HAUSTFAGNAÐUR Islenzk-ameríska félagsins veröur í Víkingasal Hótel Loftleiöa laugardaginn 8. október kl. 19.45 til kl. 02.00. Miðasala og borðapantanir að Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 6/10 og föstudaginn 7/10 kl. 17—19 báða dagana. Aðgöngumiðaverð kr. 950,-. Skemmtinefndin. BANDALAGHÁSKÓLAMANNA HAGFRÆÐINGUR Oskað er eftir að ráða hagfræðing eða mann með sambærilega menntun sem ætlað er að starfa að launa- og kjaramálum há- skólamanna, þ. á m. samningagerð og könnunum á sviði efna- hags- og kjaramála. Hagfræðingur þessi verður starfsmaður Launamálaráðs ríkisstarfsmanna innan BHM og mun einnig sinna öðrum verkefnum fyrir BHM eftir nánari ákvörðun. Umsóknum skal skila á skrifstofu BHM, Lágmúla 7, fyrir 15. október nk. Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri bandalagsins í síma 82090 og 82112. Tilboð óskast í Volvo F-10 vöruflutningabifreið, árg. 1982, sem skemmst hefur í umferðaróhappi. Bifreiðin verður til sýnis að Skemmuvegi 26, Kópavogi, miðviku- daginn 5/10 '83, kl. 13—16. Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygg- inga, Ármúla 3 Reykjavík, fyrir kl. 16 fimmtudaginn 6/10 '83. SAMVINNU TRYGGINGAR AKMÚLA.3 SlMI6l4U HÁRGREIÐSLU- STOFAN SPARTA NORÐURBRÚN2 Opið alla daga frá kl. 9—18, Fimmtudaga frá kl. 9—19. Laugardaga frá kl. 9—12. Tímapantanir í síma 31755. VERIÐ VELKOMIN. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG • Deildartæknifræðingur (rafmagns) óskast í fullt starf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. • Raftæknir óskast í fullt starf hjá Rafmagnsveitu Reykja- víkur. Upplýsingar veitir starfsmannastjóri RR í síma 18222. • Sálfræðingar (í 1 og 1/2 starf) óskast við sálfræðideildir skóla á yfirstandandi skólaári. Upplýsingar veita forstöðumenn sálfræðideilda skóla í símum 28544 og 32410. • Fóstrur við eftirtalin dagheimili: Skóladagheimilið Hraun- kot (heilt starf). — Dagheimilið Ösp (heilt og hálft starf). — Leikskólann Ægisborg (hálft starf e.h.). — Leikskólann Leik- fell (hálftstarf f.h.). Upplýsingar um störfin veitir umsjónarfóstra í síma 27277 eða forstöðumenn við heimilin. Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a. frá menntun og starfsreynslu auk almennra persónulegra upplýsinga. Um- sóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkurborg- ar, Pósthússtræti 9,6. hæð, fyrir kl. 16 mánudaginn 10. október 1983. Iþróttir Óvæntur skellur „Rauða hersins” á Anfield Road Liverpool tapaði fyrir Sunderland, 0-1, West Ham tapaði í Stoke og Norwich vann upp þriggja marka forskot United Óvæntustu úrslitin í ensku knatt- spyrnunni ó laugardaginn voru tví- mælalaust tap Liverpool á heima- velli sínum, Anfield Road, gegn Sunderland (0—1). Þetta var aðeins annar sigur Sunderland ó Anfield í 48 ór. Eina mark leiksins skoraði Gary Rowell úr vítaspyrnu á 30. mínútu. Vítaspyman kom með þeim hætti að eftir mikinn darraðardans inni í víta- teigi Liverpool handlék Craig John- ston knöttinn á marklínunni eftir að Gordon Chisholm átti skalla að marki. Leikmenn Sunderland vörðust mjög vel eftir að þeir höfðu náð for- ystunni því að Liverpool sótti lát- laust það sem eftir lifði leiktímans en hafði ekki erindi sem erfiði, vöra Sunderland mjög sterk fyrir og gaf fá færi á sér. Mikið um langskot hjá Liverpool sem markvörður Sunder- land, Chris Turaer, varði af öryggi. West Ham steinlá gegn frísku liði Stoke Stoke City vann öruggan sigur á West Ham þegar liðin mættust á Victoria Ground í Stoke. Stoke byrj- aði leikinn af miklum krafti rekið I-......' ' .....- i URSLIT Úrslit urAu þessi í ensku knattspymunuí á laugardaginn: 1. DEILD: Birmingham—Leleester 2-1 Coventry—ipswich 1-2 Liverpool—Sunderland 0-1 Luton—Aston Vllla 1-0 Norwtch —Man. Utd. 3—3 Notts C.—Everton 0-1 QPR—Arsenai 2-0 Suuthampton—Wolves 1-0 Stoke—West Ham 3-1 WBA—Watford 2-0 SUNNUDAGUR: Tottenham—Nott. Forest 2-1 2. DEILD: Brighton—Charlton 7—0 Cambridge—Oldham 2-1 Cardiff—Barnsley 0-3 Derby—CarUsie 1—4 FuUiam—Swansea 5-0 Huddersficld—Chelsea 2—3 Man. Clty—Grimsby 2-1 Middlcsb.—C. Palace 1-3 Newcastle—Portsmouth 4-2 Sheff. Wed. —Blackburn 4—2 Shrewsbury—Leeds 5-1 3. DEILD: Bradford—Exeter 1-3 Brístol R.—Boiton 2-1 Burnley—Plymouth 2-1 GUlingham—Brentford 4—2 Lincoln—Bourncmouth 3-0 MUlwall—Sheff. Utd. 1-2 Preston—Oxford 1-2 Rotherham—Newport 0—1 WalsaU—Port Vale 2-0 Wigan-HuU 1-1 j Wlmbledon—Orieit 2-2 FÖSTUDAGUR: Scunthorpe—Southend 1-0 4. DEILD: Colchester—Chester 1—0 Hartlepool—Tranmere 0-1 Hereford—Bristol C. 0-2 Mansfield—Aldershot 5-2 Northampton—Chesterfield 1-1 Reading—Darlington 1-0 Swtndon—Rochdale 2-1 Wrexham—Hallfax 1-0 York—Blackpool 4-0 FÖSTUDAGUR: Crewe—Stockport 0-3 Þess má geta aA leik Bury og Peters- borough var frestaA vegna veikinda leik- manna Bury. áfram af stórleik þeirra Sammy Mcllroy og Micky Thomas sem byggðu upp hverja sóknarlotuna á fætur annarri sem buldi á vöm West Ham. Stoke náði síðan forystunni á 30. minútu og var það Dave McAughtrie sem skoraði með lag- legri hjólhestaspymu. Staöan 1—0 i hálfleik og var það vel sloppið hjá „Hammers”. 1 byrjun síðari hálf- leiks náöi West Ham sínum besta kafla í leiknum og á 60. minútu jöfn- uðu þeir metin þegar Ray Stewart skoraði úr vítaspymu og skömmu síðar munaði ekki miklu aö þeir næðu forystunni þegar Steve Whitton átti hörkuskot rétt yfir úr góðri að- stööu eftir undirbúning Brooking og Devonshire. En Stoke náði síöan öll- um tökum á leiknum að nýju og um miöjan hálfleikinn náðu þeir aftur forystunni þegar Mark Chamberlain skoraði og tíu mínútum fyrir leikslok innsiglaöi Micky Thomas sigurinn með góðu marki. Liðsmenn Stoke léku sinn besta leik á keppnistímabil- inu til þessa og yfirspiluöu því leik- menn West Ham langtimum saman og unnu sanngjarnan sigur. IMorwich með mikið „Come back" gegn United Þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka í leik Norwich og Manchester United stefndi allt í öruggan sigur United á Carrow Road, heimavelli Norwich. En á þessum tuttugu mínútum rúmum sem eftir lifðu tókst heimamönnum að skora þrívegis og jafna metin og kom jöfnunarmarkið aðeins 40 sekúndum fyrir leikslok. Norman Whiteside náði forystunni fyrir gestina í fyrri hálfleik með sínu fyrsta marki í deildarkeppninni síðan í apríl í fyrra og þá einnig gegn Norwich. Frank Staplcton bætti öðru markinu við á upphafsmínútum síöari hálfleiks, og á 55. minútu skoraði Norman White- side sitt annað og þriöja mark United. En þá fóru leikmenn Nor- wich í gang svo um munaði. Á 68. mínútu tókst Dave Bennett að laga stööuna aöeins og tíu mínútum síðar skoraði gamla kempan Mick Chann- on annaö markiö og allt var nú á suðupunkti. Þegar svo aðeins 40 sekúndur voru eftir af leiktímanum tókst 18 ára gömlum nýliða, Brian Donowa, að jafna metin er hann náði að pota knettinum yfir marklínuna eftir mikinn darraðardans í víta- teignum og Carrow Road bókstaf- lega „sprakk” af fagnaöarlátum, það ótrúlega hafði gerst, Norwich náði stigi úr að því er virtist gjör- tapaöri stöðu. Sigurganga QPR og WBA Þau lið sem einna mest hafa komiö á óvart í síðustu leikjum eru QPR og WBA. Hafa þau lagt að velli hvern andstæðinginn á fætur öðrum. Albion hafði í tveimur síðustu leikjum sín- um sigraö bæði West Ham og Ips- wich en nú var röðin komin að Wat- ford. Þaö voru blökkumennirnir sókndjörfu, Cyril Regis og Garry Thompson, sem skoruðu mörkin í (2—0) sigrinum á „The Hawthorns”. Komu bæði mörkin meö mínútu £ Frank Worthington — hinn 35 ára „táningur” hjá Southampton — í sviðsljósinu. millibili um miðjan fyrri hálfleikinn. Þreyta virtist sitja í leikmönnum Watford eftir erfiðan leik gegn Kaiserslautern í Evrópukeppninni á miðvikudaginn var. • 26.000 áhorfendur voru mættir á Loftus Road til þess aö horfa á inn- byrðis viðureign QPR og Arsenal. En þeim var ekki boðið upp á glæsilega knattspyrnu í fyrri hálfleiknum sem var vægast sagt hundleiðinlegur, var sem leikmenn héldu að þeir mættu alls ekki fara út úr miðjuhringnum. En sem betur fór bættu leikmenn ráð sitt í síðari hálfleiknum og varð hann stórskemmtilegur. Strax í upphafi hans náði John Gregory forystunni fyrir QPR með fallegu skallamarki eftir fyrirgjöf frá Mike Fillery. En Arsenal var óheppið að jafna ekki metin skömmu síðar en þá átti Charlie Nicholas hörkuskot í þverslá og mark var dæmt af Paul Davis. Þaö var síðan á 69. mínútu sem Rangers gulltryggði sigurinn (2—0), þá skoraði Warren Neal með hörku- skoti af 20 metra færi og átti Pat Jennings ekki möguleika á að verja. Worthington sá um sigurinn fyrir Southampton á elleftu stundu Frank Worthington, sem var „svarti sauðurinn” hjá Southampton sl. laugardag en þá var hann rekinn af leikvelli í leik gegn Aston Villa, var nú hetja þeirra er hann skoraði sigurmarkið fyrir liö sitt í leiknum gegn Ulfunum á The Dell aðeins átta mínútum fyrir leikslok. Southamp- ton átti sigurinn skilinn, þaö lék mun betur. Mark var dæmt af David Armstrong í fyrri hálfleiknum og Danny Wallace tókst ekki að nýta tvö gullin tækifæri. En þrátt fyrir það gátu „Dýrlingarnir” þakkað mark- verði sínum, Peter Shilton, að þeir klúðruðu ekki leiknum í jafntefli þegar hann varði meistaralega frá Wayne Clarke í lokin. Luton á uppleið eftir slaka byrjun Bobby Robson, landsliðseinvaldur Englendinga, var mættur á Kenil- worth Road, heimavöll Luton Town, til aö fylgjast með Paul Walsh, íþróttir íþróttii íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.