Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1983, Side 44
DV. MÁNUDAGUR 3. OKTOBER1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Stykk i stuöi eins og alltaf. Talið frá vinstri: Elvar Gunnlaugsson, Jóhann Rafnsson, Einar Steinarsson,
Heimir Jóhannsson og Pótur Rafnsson.
„STYKKARAR” ERU
ORÐNIR NÍU ÁRA
Það eru hreinar og beinar linur að
— „Stykkhljómurinn” hefur víða heyrst á þessum árum D V-myndir: Róbert Jörgensen.
og mörgum snúningnum hafa þeir valdið
Frá Róbert Jörgensen, fréttaritara
DV í Stykkishólmi:
Hljómsveitin Stykk úr Stykkishólmi
á 9 ára afmæli um þessar mundir.
Hljómsveitin er eitilhress og hefur
vakiö mikla athygli á Nesinu í þessi níu
ár.
Gítarleikari hljómsveitarinnar, Elf-
ar Gunnlaugsson, hefur veriö „Stykk-
ari” öll níu árin, en hinir hafa komiö
inn í hljómsveitina á síðustu árum. öll
árin hafa reyndar veriö miklar manna-
breytingar í Stykk. Líkja sumir því við
stökkbreytingar.
„Stykkarar” hafa spilað mest í
Borgarfirði, á Snæfellsnesi og á
Ströndum. Lagavalið er fjölbreytt, og
þeir eru fáir, sem ekki ná sér í góðan
snúning, þegar Stykkhljómamir ber-
ast út.
Við Hólmarar blásum á afmæliskert-
iö góða og óskum „Stykkurum” alls
hins besta á afmælinu. Svo aö sem
flestir geti notið Stykkhljómanna er
hægt að ná í hljómsveitina í síma 93-
8379. Ekki nokkur vafi að menn fá
strax Stykksón um leið og þeir lyfta
símtólinu. -JGH
Agnetha á gangi í New York í mikl-
um hitnm nýlega. „Það er greinilegt
aðhitinn erá.”
Yorkarar
hrifnir af
Agnethu
- og allir
„Eplahúarnir”
vita nú hver sú
Ijóshærða er
Abbastúlkan vinsæla, Agnetha
Faltskog, hefur að undanförnu verið
í New York að kynna litlu plötuna
sína „Can’t shake loose.”
Agnetha sagði við blaöamenn í
NewY ork að þaö hefði verið mikiö aö
gera hjá sér í „Stóra eplinu” eins og
borgin gengur gjarnan undir.
„Þetta hafa verið stöðug blaða-,
sjónvarps- og útvarpsviðtöl. En ég er
ánægð með þær viðtökur sem ég hef
fengið.”
„Allir viröast hér vita hver hljóm-
sveitin Abba er og ég heid aðallir viti
líka núna hver Agnetha Faltskog
er.”
Þess má geta svona í framhjá-
hlaupi að Agnetha og lögreglu-
maðurinn Torbjörn Brander sem
Agnetha tók aftur í sátt fyrir fáum
vikum ætla að gifta sig næsta vor.
HÚN DAVIS LÆTUR
SUNDIÐ EKKIDUGA
— og syndir nú hraðbyri á toppinn sem sýningardama
Þekktasta sundkona Breta, Sharron Davis, slær nú í gegn í heimalandi sínu
sem sýningardama.
Davis hefur auglýst að undanförnu alls kyns sportfatnaö sem þykirhinnfall-
egasti. Segja Bretar að það fari vel á því að stúlka eins og Davis sýni þennan
fatnað. Hún sé nefnilega ímynd friskleikans og hollustunnar og eldci skemmi
útlitiðfyrirhenni.
Fylgir sögunni aö þær vörur sem Davis auglýsir séu nú mjög eftirsóttar í
Bretlandi og vilja menn líkja sölunni við eitt allsherjar skriðsund.
Upp meö hendur
og í sportfatnaðinn.
Besta sund-
kona Breta,
Sharron Davis,
meö
jhendurnar í
Hvar fékk hún
Linda stólinn?
— það er mikilvæg spurning
Enska stúikan Linda Lusardi birtist Tjallanum nýiega á
þennan hátt. Hún sagðist hafa slappað vel af í stólnum og
notið útiverunnar.
Linda er þekkt ljósmyndafyrirsæta í Bretlandi. Hún er 24
ára að aldri og þykir afbragðsgóð í starfinu fyrir framan
Ijósmyndavéiarnar.
Ekki vitum við hvar hún hefur fengið „ennisólina,” sem
hún er með á myndinni. En ýmsir segja að það skipti nú
ekki öilu máli. Það sé mikiu mikilvægara að vita hvar stóll-
inn sem Linda situr í sé keyptur.
Við erum á því að svo sé, og birtum því myndina til að
fólk átti sig á „stólahönnuninni”.
Linda Lusardi slappar af. Ekki vitum við
hvort hún auglýsir sæigæti eins og buff,
og konfekt fyrirþá i Bretlandi.