Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1983, Blaðsíða 28
28
VIDEO—
OPIO ÖLL KVÖLD TIL KL. 23
K vikm yndamarkaðurinn
Skólavörðustig 19 — simi 15480.
Videoklúbburinn
Stórhottí 1. Simi 35450.
-----------------VIDEO----------
RYÐVÖRN sf.
SMIÐSHOFÐA 1. S 30945
BÍLARYÐVÖRN
UNDIRÞVOTTUR
MÓTORÞVOTTUR
Óskum eftir
1—3 herbergja íbúð til leigu fyrir starf smann okkar.
Upplýsingar gefur Guörún í síma 86700 kl. 9—5.
Laugavegi 178 — 105 Reykjavik —
DV. MANUDAGUR10. OKTOBER1983.
Starfsmenn skipadeildar Sambandsins eiga hugmyndina að nýja skipinu, en þessa aagana er verið aO
líkanprófa þaO i Hollandi.
SAMBANDIÐ MEÐ
ÓVENJULEGT
SKIP ÍSMÍÐUM
í ENGLANDI
SJÁLFSVÖRN
Karatefélagið Þórshamar er að fara af stað með
karate-sjálfsvarnarnámskeið sem stendur yfir til
áramóta. Eingöngu kennd afgerandi sjálfsvarnar-
tækni sem að gagni kynni að koma í neyðarvörn.
Bæði fyrir konur og karla eldri en 17 ára.
Uppl. í símum 22225 — 79046 — 32209.
HÁRGREIÐSLU-
ST0FAN
SPARTA
NQRÐURBRÚN2
Opið alla daga frá kl. 9—18.
Fimmtudaga frá kl. 9—19.
Laugardaga frá kl. 9—12.
Tímapantanir í síma 31755.
VERIÐ VELK0MIN.
„Eg á von á að fyrsta stálið í skipið
verði skorið innan fárra vikna og
draumurinn er að fá að sjá þetta skip
hér við land í október á næsta ári,”
sagði Axel Gíslason, framkvæmda-
stjóri skipadeildar Sambandsins, er
við spuröum hann um hið nýja skip
sem skipadeildin ætlar aö láta smíða i
Englandi.
Smíði þessa skips hefur þegar vakið
mikia athygli enda er þarna um mjög
sérstætt skip að ræða. Axel og hans
starfsfólk á hugmyndina að hönnun
þessa skips sem á engan sinn h'ka.
Skip þetta verður bæði gáma- og
frystiskip en til þessa hafa skipa-
félögin þurft að hafa tvö skip, annað
gámaskip og hitt frystiskip, i
flutningum á milli Islands og Banda-
ríkjanna. Hefur gámaskipið oftast
farið hálftómt út en fullhlaðið heim, en
frystiskipið hlaöið út og tómt heim.
Leit aö skipi sem uppfyllti skilyrði
beggja var gerð víða um heim en skip
af þeirri stæröargráöu sem leitaö var
að fannst hvergi. Settust þá Axel'og
hans menn niður og hönnuöu þetta skip
sem veröur um 3000 lestir.
„Það voru mörg vandamál sem við
þurftum að glíma við,” sagði hann.
„Það var til dæmis stöðugleiki skipsins
en það er annar stöðugleiki ’á gáma-
skipi en frystiskipi. Þá voru lúgumar
einnig vandamál en á öllum
frystiskipum eru litlar lúgur og
fiskpakkarnir fyrst sendir lóðrétt
niöur í skipið og síðan raöað lárétt um
lestarnar,” sagði Axel.
Nýja skipið verður með stórri lúgu
sem á verða litlar einingar sem hægt
er aö opna þannig að krani getur raöaö
vörunum í lestamar þar sem þær eiga
að vera. Veröur ahur fiskur sem með
skipinu fer fluttur á brettum og kemur
það til með að flýta allri losun og
lestun.
Leitaö var tilboða hjá um 30
skipasmíðastöövum víða um heim um
smiði skipsins. Bárust fjölmörg tilboö
en ákveðiö var að taka tilboðinu frá
Appledore Shipbuilders sem var mjög
hagstætt.
Axel sagði að nú í vikunni hefði
verið byrjað á Ukansprófun á skipinu.
Væri Ottar Karlsson skipaverk-
fræðingur nú í HoUandi þar sem
prófunin færi fram. Væri verið að finna
út heppUega lögun þess og ýmislegt
annað áður en framkvæmd við sjálfa
smíðina hæfist.
-klp-
AFGASHITINN FRÁ
AÐALVÉLINNI
HITAR UPP OLÍUNA
Hið nýja flutnmgaskip Sambandsins,
sem byrjað verður á að smíða innan
fárra vikna hjá Appledore Ship-
builders, rétt sunnan Bristol á Eng-
landi, kemur tU með að vera með aðal-
vél af finnskri gerð, Wartsila Vasa
8R32, sem er 4080 hestöfl.
Er vél þessi gerð tU að brenna
þykkri svartoUu eða IF 180 í staö IF 30
sem almennt er notuð. Er þetta mun
ódýrari olía og kemur til meö að spara
mikiö við rekstur skipsins.
Til aö hægt sé að nota þessa þykku
olíu þarf sérstakan hreinsibúnaö en
afgashitinn frá aðalvéUnni er
notaður tU að hita oUuna upp þannig að
hún fljóti og brenni betur.
-klp-
Þessir eldhressu starfsmenn Sláturfélags Suðurlands urðu á vegi okkar á Ölfrnár-
brúnni á dögunum. Þeir voru þar að koma úr vinnu í sláturhúsinu en þar hefur verið,
mikið að gera að undanförnu eins og í öðrum sláturhúsum víða um land. Þeir höfðu
fengið far úr vinnunni í traktorskerru og létu hvorki vindinn né hrystinginn hafa
áhrifá sigþrátt fyrir langan og erfiðan dag. -klp/D V-mynd EÖ.