Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1983, Blaðsíða 42
42
DV. MÁNUDAGUR10. OKTÖBER1983.
?
Rakarastofan Klapparstig
Sími 12725
Hárgretöshjstofan Kbpparetíg
Tímapantanir
13010
INNFLYTJENDUR - UMBOÐSSALAR
Prentum sjálflímandi smámiða
til merkinga hvers konar, vöru-
auglýsinga- og upplýsingabœkl-
LÍMMERKI
Síðumúla 21
simi 31244.
Inga. Merkiö erlenda bœklinga
eigin firmanafni. Fast verð fyrir
1000 mifla rúllu.
Innréttingar
Tökum aö okkur smíði á eldhúsinnréttingum,
klæöaskápum, baöinnréttingum, sólbekkjum
o.fl. Erum meö teikniþjónustu, sýnishom á
staðnum.
TRÉSMlÐAVERKSTÆÐI
ÞORVALDAR BJÖRNSSONAR,
Súðarvogi 7, sími 86940 — kvöldsími 71118.,
Notaður TCM
dísillyftari.
Lyftigeta 2,5 tonn.
Lyftihæð 3,5 m.
Nýyfirfarinn.
TCM, lyftigeta 4 tonn,
lyftihæð 4 metrar,
með húsi, sem nýr.
Auk þess ávallt á lager
nýir TCM rafmagns- og
dísillyftarar og handlyftarar,
TÖGGURHF.
Bildshöfða 16 - Sími 81530
NÝTT
SJÓN ER SÖGU RÍKARí
PÓSTSENDUM DA GLEGA
HOF
- INGÓLFSSTRÆT11
E
--1AB
Sími 1676^^,
Stórhnútað garn,
acryl, bómull
Mikið
úrval
af bóm-1
ullargarni
og aluilar-
garni
AUK ÞESS MIKIÐ ÚRVAL AF
PRJÓNUM
SMÁVÚRUM
■ TILBÚNUM DÚKUM 0G
SMYRNA.
Leikfélögin blómstra í kreppunni:
Verkefnaval
metnaðarfyllra
— og nægt f ramboð af þekktum leikst jórum úr Reykjavík
„Hér áður fyrr sá dreifbýlisfólk
ekki aðrar leiksýningar en þær sem
settar voru á svið í félagsheimilunum,
sjaldan og oft af miklum vanefnum,”
sagði Sigrún Valbergsdóttir hjá
Bandalagi islenskra leikfélaga í
samtali viö DV. ,,Nú bregður aftur á
móti svo við, eftir að sjónvarp og
myndbönd komu til sögunnar, að fólk
úti á landi verður kröfuharðara þegar
leiklist er annars vegar og endur-
speglast það vel í verkefnavali leik-
félaganna sem er metnaðarfyllra en
oft áður og gróska í leikstarfsemi
mikil.”
Kreppan virðist ekki setja strik i
reikninginn hjá leikfélaginu 81 sem
er aðili aö bandalagi islenskra leikfél-
aga. Á flestöllum stööum eru leik-
sýningar í gangi eöa undirbúningi og
má nefna aö leikrit Jónasar Ámasonar
eru á dagskrá á 6 stöðum víðsvegar um
land. Er myndarlega haldið upp á
sextugsafmæli skáldsins, sem var í
maí sl. Verið er að sýna Deleríum
búbónis í Stykkishólmi, seinna verður
sama leikrit frumsýnt á Sauðárkróki.
Verið er að æfa Þið munið hann Jörund
í Hafnarfirði og á Selfossi og flest
bendir til að leikritið verði einnig sýnt í
Mosfellssveit þegar líður á veturinn.
Ungmennafélagið Ármann á Kirkju-
bæjarklaustri er svo að hefja sýningar
á Skjaldhömrum.
Aö sögn Sigrúnar Valbergsdóttur
eru einu merkin um kreppuna í efna-
hagslífinu hvað varðar leiklistarstarf-
semina í landinu að merkja á miklu
framboði á þekktum leikstjórum úr
Reykjavík sem eru tilbúnir að fara út á
land og leikstýra áhugafólki. Ekki
Jónas Ámason sextugur og moð Mkrit i fjötunum á sex stöðum
viðsvegar um land.
hefur enn frést um að nokkur sé á leið kvennaleikhús og er þaö aðili að
til Luxemborgar en þar er starfandi Bandalagi islenskra leikfélaga. -EIR.
Umferðarviku á Akureyri
lauk með vélhjólakeppni
Bindindisfélags ökumanna
Umferðarvikunni á Akureyri lauk á
sunnudaginn var með vélhjólakeppni í
umsjá Bindindisfélags ökumanna á
Akureyri.
Keppnin var haldin við Glerár-
skólann og viðraði ekki vel til keppni.
Ekki aftraði það þó 7 vélhjólaköppum
frá að taka þátt í henni.
Lögreglan á Akureyri var með í
framkvæmd keppninnar og sá um aö
allt færi vel og friðsamlega fram.
Til að hægt væri að framkvæma
keppnina, sendi ungmennadeild
Bindindisfélags ökumenna tvo menn
frá Reykjavík flugleiðis til Akureyrar
meö tækjabúnað og sáu þeir um fram-
kvæmd keppninnar.
Flugleiðir styrktu keppnina með því
að gefa annan farmiðann milli Reykja-
víkur og Akureyrar og vill BFÖ færa
Flugleiðum hf. þakkir fyrir þennan
ómetanlega stuðning sem ekki er sá
fyrsti er þeir veita félaginu.
Keppnin var mjög spennandi og
keppt var á mjög erfiðri braut og voru
ekki nema örfá stig sem skildu að
keppendur í efstu sætunum. Þó fór svo
að Rúnar Pálsson, er keppti á Honda
MT, bar alveg af og það skemmtilega
við það var að hann tók þátt í ökuleikni
’83 á vélhjólum í sumar á Akureyri og
sigraði þar einnig. I þetta sinn fékk
hann aöeins 43 refsistig. I öðru sæti
varð Hafþór Jónmundsson, á Honda
XL, með 73 refsistig og með aðeins 1
sekúndu lakari árangur varð Halldór
Karlsson, á Yamaha MR, með 74
refsistig.
Að lokinni keppni fengu allir
keppendur áritað viðurkenningarskjal
og að sjálfsögðu fengu 3 efstu
keppendur gull-, silfur- og brons-
peninga sem Bindindisfélag ökumanna
gaf.
Óskablómið
opnað íHúsi
verslunarinnar
Verslunin Oskablómið var opnuð nú
fyrir skömmu í Húsi verslunarinnar. I
versluninni starfar faglærður blóma-
skreytingamaður, Kristján Ingi Jóns-
son, sem tekur að sér allar hugsanleg-
ar blómaskreytingar. Einnig eru á
boðstólum ýmsar aðrar vörur en blóm,
ýmsar gerðir af postulíns, kristalls og
handunnum ítölskum módelvörum.
Innréttingar í versluninni eru mjög
glæsilegar og sá Trésmiðja Hvera-
gerðisumþær.