Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1983, Blaðsíða 8
DV. MÁNUDAGUR10. OKTOBER1983.
(Jtlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Saka N-Kóreu
um sprengitil-
ræðið í Burma
Chun, forseti S-Kóreu, slapp naumlega en fjórir ráðherrar
hans fórust með fimmtán öðrum
Chun Doo Hwan forsetl S-Kóreu sakar nágrannana í N-Kóreu um tilræðið við hann
og ráðherra hans í gær.
Chun Doo Hwan, forseti Suður-Kóreu,
kom í morgun heim frá heimsókn sinni
í Burma og sakar Norður-Kóreu um
sprengitilræðið í Rangoon í gær. Nítján
manns fórust í sprengingunni og þar á
meðal fjórir af helstu ráöherrum
Seoul-stjórnarinnar.
Chun hefur aflýst sex landa ferð
sinni til Burma, Indlands, Sri Lanka,
Astralíu, Nýja Sjálands og Brunei.
Watt segir af sér
eftir háværar kröf-
ur um brottvikningu
James Watt, hinn umdeildi innan-
ríkisráðherra Reaganstjórnarinnar,
sagöi af sér embætti í gær. — „Ég ætla
að segja af mér um leið og eftirmaður
minn er fundinn,” sagði Watt við
fréttamenn.
Watt hefur tíðum veriö gagnrýndur
fyrir hin og þessi gáleysisleg ummæli
sín. Þykja þau oft hafa komið Reagan-
stjórninni og Repúblíkanaflokknum í
klípu. Að undanförnu hafa heyrst æ há-
værari kröfur um að Watt verði látinn
víkja.
I síðasta mánuði lýsti Watt skipan
ráðgjafanefndar í innanríkismálum,
sem honum þótti sett sér til höfuös, á
þann veg að í henni ættu sæti „svert-
ingi, kona, tveir júðar og kryppling-
ur”. — Samtök blökkumanna, kven-
réttingafélög, gyöingasamtök og
fatlaðir tóku þessi ummæli óstinnt
uppi. Allar þessar hreyfingar hafa
mikil áhrif í bandarískum stjómmál-
um og þótti mörgum repúblíkananum
sem Watt hefði þarha tekist að móðga í
einni setningu æði marga volduga
aðila.
Watt las í gær fyrir blaöamenn kafla
úr uppsagnarbréfinu sem hann sendi
Reagan forseta, þar sem hann sagði
m.a.: „Gagnsemi mín í þessari stjórn
er núá enda.”
1 yfirlýsingu sem Reagan sendi frá
sér í Washington, sagðist hann hafa
meðtregðu fallist á afsögn Watts.
Fyrir öldungadeildinni lá ályktun-
artillaga borin upp af 45 þingmönnum
þar sem krafist var afsagnar Watts.
Mörgum hefur verið illskiljanlegt
hversu lengi Reagan hefur liðið innan-
ríkisráðherra sínum ýmis fráhrind-
andi ummæli og yfirlýsingar. Watt
hefur þó notið eindregins fylgis hægri
manna í repúblikanaflokknum og
hefur verið öllum öðrum frammá-
mönnum flokksins — að undanskildum
Reagan sjálfum — duglegastur aö afla
fjár i kosningas jóði repúblíkana.
Walesa vill friðsamlegar leiðir
I viðtali sem birtist í Newsweek í gær
segir Lech Walesa að verkalýðs-
hreyfingin „Eining” verði að starfa
með „friðsamlegum hætti” ef hún
ætlar að vinna sigur. Um leið hvatti
hann neðanjarðarhreyfinguna til þess
að láta sem sjaldnast frá sér heyra.
,,Ég mun aldrei berjast með öðru en
friðsamlegum aðferðum,” sagði
Walesa. „Við höfum aldrei litið á okkur
öðruvísi en sem friðsama. Það tekur
lengri tíma en ber meiri árangur. ”
Aðspurður hvort hann hefði einhvem
boðskap að færa neðanjarðarhreyfing-
unni, sagði Walesa: „Þeir verða að
láta að sér kveða... eins mikið og þeir
geta en tala samt eins sjaldan og
mögulegter.”
Hann sagöi að sprengingin heföi
verið vel undirbúið tilræði við hann
sjálfan og vildi draga N-Kóreu til
ábyrgðar fyrir „þetta dæmalausa við-
urstyggðarsamsæri”. — Aðeins örfá-
um mínútum munaði að Chun væri
mættur við grafhýsi þjóðarpíslarvotta
Burma í Rangoon þegar sprengingin
varð. Annars þykir vísast aö hannhefði
veriðá meðal fórnariamba sjálfur.
Svo öflug var sprengingin að hluti af
þaki grafhýsisins, þar sem hinir
erlendu gestir ætluöu við hátíðlega
athöfn að leggja blómsveig, feyktist
burtu.
Sprengingin varð skömmu eftir að
sendiherra Suður-Kóreu ók í hlaðið viö
grafhýsið en hann var í diplómatabíl
sem bar fána S-Kóreu. Þykir hugsan-
legt að tilræðismennimir hafi mistekið
sig á því og talið Chun forseta vera þar
á ferð þegar hann var nokkrum bifreið-
um á eftir i lestinni.
Meðal þeirra sem fórast var Suk
Suk-Joon aðstoöarforsætisráðherra
sem í júlí í sumar var settur yfir efna-
hagsmálin í S-Kóreu. Sömuleiðis utan-
ríkisráðherrann, Lee Bum-Suk, við-
skiptamálaráöherrann Kim Dong-
Whie og loks orku- og auðlindaráðherr-
ann Suh Sang-Chul sem áður var full-
trúií alþjóöabankanum.
Tólf S-Kóreumenn aðrir fórust í
sprengingunni og þrír Burmabúar. 48
særðust.
San Yu. forseti Burma, fordæmdi
þennan verknaö. Japans- og Banda-
ríkjastjómir hafa tekiö í sama streng
og kalla verknaðinn jafn óskiljanlegan
venjulegu fólki og árás Sovétmanna á
s-kóresku farþegaflugvélina á dögun-
um.
Chun sagði, þegar hann kom til
Seoul í morgun, að fleiri en hann
mundu grana kommúnistana í N-
Kóreu um þennan verknað en
þeirra stjóm væri sú ómanneskjuleg-
asta i heimi. Sakaði hann N-Kóreu um
að hafa sömuleiöis staðiö að samsær-
inu um að ráöa hann af dögum í fyrir-
hugaörí heimsókn hans til Kanada í
ágúst en af heimsókninni varð ekki.
Kanadíska lögreglan handtók nokkra
Kanadamenn og Kóreumenn sem
Seoul-stjórnin sagöi tengda N-Kóreu.
Chun, sem kom til stjórnar í desem-
ber 1979 þegar herinn tók völdin eftir
að Park Chung-Hee forseti var ráðinn
af dögum, sagði „að enginn vafi væri
á því aö N-Kóreumenn væru að baki til-
ræðinu — ef menn hefðu í huga morð-
ingjaeðli þeirra og ofurtrú á ofbeldi og
blóðsúthellingum.”
600 þúsund manna her S-Kóreu var
hafður í viöbragðsstöðu í gær eftir
sprengitilræðiö í Rangoon. Fánar eru
þar i dag í hálfa stöng og era þó ekki
sex vikur liðnar síðan sorgin kvaddi
dyra hjá þjóöinni eftir að 269 manns
fórast með farþegavél frá KAL sem
skotin var niður af sovéskum orrastu-
þotum.
Pólverjar varaðir
við „njósnum”
bandaríska sendi-
ráðsins í Varsjá
James O. Watt, innanríkisráðherra
hefur þótt fullorðhvatur.
Póiska sjónvarpið sakaði í gærkvöldi
fyrrverandi starfsmann bandaríska
sendiráðsins í Varsjá um njósnastarf-
semi. Var gefið í skyn, að tengsl væra á
Hætta vegna ofsókna gegn
lestrarkennslu í Salvador
Menningar- og framfarastofnun
Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur
hætt afskiptum sínum af herferð gegn
ólæsi, sem nú fer fram í E1 Salvador.
Ástæðan er sú að morðsveitir hægri-
manna hafa veist mjög að starfsmönn-
um sem vinna að herferðinni og helsti
hægri flokkur landsins hefur gagnrýnt
herferðina harðlega á þeirri forsendu
að hún leiöi hug bænda að stjórnmál-
um.
Herferðin gegn ólæsi hefur staöið
yfir í þrjú ár og líta stjórnvöld í E1
Salvador svo á að hún sé einn hom-
steinninn undir umbótaáætlunum í
þjóðfélagsmálum. Þrír kennarar hafa
verið myrtir frá því í júlí og mennta-
málaráðherra E1 Salvador, Carlos
Aquilino Duarte sagði við fréttamenn
aö héldu árásir kennara áfram yrðu
stjómvöld að gefa herferðina upp á
bátinn.
Olæsi er að mestu bundið við dreif-
býli í E1 Salvador og tengist herferðin
umbótum í landbúnaðarmálum sem
stærsti stjórnmáiaflokkur landsins,
Arena-flokkurinn, undir stjórn
Roberto d’Abuisson er algerlega mót-
fallinn.
Þar sem stjómmálaástand í Mið-
Ameríku er mjög viðkvæmt og banda-
rískir hermenn aöstoöa stjórnarher E1
Salvador í baráttu gegn skæruliðum
hefur engin opinber tilkynning verið
gefin út á vegum UNESCO um þetta
mál.
F1ARKUGARIHANDTEKINN
Maöur nokkur var handtekinn í
Genf um helgina, grunaður um að
hafa reynt aö kúga fé út úr breskri
verslunarkeðju, með hótunum um
að eitra vörar sem til sölu vora þar.
Svissnesk stjómvöld búast nú við
framsalskröfu frá breskum stjóm-
völdum.
Nafn mannsins var ekki gefið
upp en rannsóknarlögreglumenn
leiddu manninn í gildru þegar þeir
þóttust vera starfsmenn verslunar-
fyrirtækisins og afhentu honum 50
þúsund bresk pund.
milli sendiráðsins og útgáfu neðan-
jaröarrits.
I sjónvarpsmyndinni vora nefndir
og myndir sýndar af tylft fyrrverandi
starfsmanna sendiráðsins og gefið í
skyn að þeir störfuðu á vegum banda-
riskuleyniþjónustunnar, CIA.
I þessum 20 mínútna þætti var
einnig nefndur Zbigneiw Roman-
szewski sem er félagi í andófssam-
tökunum KOR. Romaszewski, sem
einnig tók þátt í starfi „Einingar”, er
einn fjögurra KOR-félaga, sem bíða
réttarhalda, ákærðir fyrir andpólskar
aðgerðir.
Þvi var haldið fram að neðanjarðar-
vikuritið Tygodnik Mazowsze væri
þrykkt á sama pappír og banariska
sendiráðið í Varsjá notar.
Pólska lögreglan hefur vörð um
sendiráðsbygginguna og hefur gert
síðan í maí. Allir sem þangaö ætla inn
era krafðir um skilríki af lögreglunni.
Sumum er vísað frá.
Frá því í byrjun þessa árs hefur
hvoragt landið sendiherra hjá hinu.
Pólska stjómin bíður með að sam-
þykkja næsta sendiherra USA þar til
fyrir liggur hvað Bandaríkjastjóm
ætlar að gera varðandi viðskipta-
bönnin, sem sett voru á Pólland þegar
herlögin voru sett 1981.