Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1983, Blaðsíða 17
DV.MÁNtíD'ÁÖtJR ÍO. OKTÓBER1983: •'
Lesendur
Hver hefur
fundið rauða
skólatösku?
Helga Hannesdóttlr í Hatnarfirði baktaska, aiveg ný og í henni voru
hringdi og sagði að 11 ára sonur skólabækur sem koma aðeins Hlyni
hennar, Hlynur, hefði týnt skólatösk- að gagni. Þeir sem vita um töskuna
unni sinni á gamla fótboltavellinum eru beðnir um að hringja i Helgu í
á Víðistaðatúninu þann 30. septem- síma 50516-
ber síðastliðinn. Skólataskan er rauð
Ánægðir á
Löngumýri
Löngumýrargestlr skrlfa:
Það ber að viröa sem vel er gert. Við
sem dvöldumst aö Löngumýri í Skaga-
firði dagana 22. ágúst til 2. september
viljum þakka allt þaö góða er viö
nutum þar hjá þvi ágæta fólki sem þar
starfar. En sérstaklega eru þessar
línur þó til þess ætlaðar að þakka eina
eftirminnilega heimsókn.
Jóhann Már Jóhannsson kom ásamt
sinum snjalla undirleikara og söng
fyrir okkur eina kvöldstund. Þetta
hafa þeir reyndar gert oftar fyrir
aldrað fólk sem þama hefur dvalið. En
viö áttum þessa unaðsstund við fagra
list þessa unga söngvara og bónda úr
Hegranesi. Blessun fylgi honum á
söngbraut hans og í öllum hans
störfum. Hjartans þakkir.
Smurning
með bros á vör
Eva Valgeirsdóttir skrifar 6. október:
Nú í vikunni las ég frásögn i DV um
mann sem haföi fariö með bil sinn á
verkstæði, bílnum „lyft og slakaö”,
ekkert annað framkvæmt, en honum
gert aö greiöa á f immta hundrað króna
fyrir handtakið.
Þetta rifjaðist upp fýrir mér í gær
eftir að ég hafði fengið þá eftirminni-
legu þjónustu, sem nú skal greint frá.
Ég var komin meö samviskubit yfir
trassaskapnum að láta ekki yfirfara
gamla og lúna fararskjótann minn og
dreif mig því eftir vinnu upp á smur-
stöð, hvert ég vissi að hann þráði að
komast. Eg vissi að löngu var kominn
timi tii.
Þegar ég kom var mikiö að gera og
fólk beið. Eg skrapp frá og kom aftur
eftir hálftíma og enn voru jafnmargir
á undan, svo ég sá þann kost vænstan
að bíða. Ekki leið á löngu uns búið var
að hella upp á könnuna sjóðheitt kaffi,
sem var vel þegið, því kalt var úti og
skyndilega hafði skollið á hávaðarok
og allt á „útopnu”. Loks kom að mér
og var ég síðasti viðskiptavinurinn og
kominn lokunartími, klukkan rúmlega
sex.
Þarf ekki að orðlengja það að þessi
þarfasti þjónninn var á örvæntingar-
barmi. Þegar þessi kankvísi og hressi
maður opnaöi vélarhlífina húkti þar
vesæl viftureim á síðasta snúningi í
ankannalegri fléttu og andarslitrun-
um. Sneypuleg skrapp ég út á bensín-
stöð og keypti nýja. Kæfandi oliuþorsti
kvaldi bílinn og annað framhjólið var
afmyndað af tveimur bólguhnúðum.
Og ég hafði bara keyrt og keyrt, ha?!
Ungi maðurinn brá nú við hið snar-
asta að lækna þetta allt. Hann skipti
um dekk og reim (sem erfitt var að
komast aö — þurfti að taka pönnuna í
burtu, allt tók sinn tíma , ný olia sett á
o.s.frv.
Fyrir allt þetta borgaöi ég aðeins
ven julegt gjald og hundraðkall að auki
fyrir vikið, sem greitt var með glöðu
geöi. Innifalið var: Bros á vör,
skemmtileg orðaskipti, fyrirlestur um
meðf erð og viðhald bílsins og kaff i með
þægilegheitum.
Vegna þeirrar einstöku lipurðar og
skemmtilegu framkomu sem ég naut
finnst mér vera orð á gerandi og ekki
hægt að láta sér fátt um finnast. Ef svo
ólíklega vill til að einhver annar álíka
trassi er til og lesi hann þessi orð mín í
miðri umferðarvikunni þá læri hann af
því eins og ég.
Vonandi fékkstu svo ekki bágt fyrir
að koma seint heim í kvöldmatinn,
ungi maður á smurstöðinni í Hraunbæ
102.
Kærar þakkir.
17
RÚM - VAGNAR
VÖGGUR - KERRUR'4^y
lel
120 x 60 cm.
140 x 70 cm.
RÚM
leipoM
ÖLL
RÚM ERU:
• fjórlökkuð, smíðuö
úr harðviði,
• með stillanlegum botni
• meðhjólum.
POSTSENOUM.
GREIÐSLUKJÖR.
KLAPPARSTÍG
SÍMI 19910.
”'ij.
Gluggar og útihurðir frá Ramma hf. eru búnir undir það versta.
íslenskt veður gerir miklar kröfur til glugga og.útihurða. Og það gerum við einnig
hjá Ramma hf. Smíðum aðeins úr 1. flokks efni. Þá notum við eingöngu LOZARON
þéttilistann sem er sá besti sem við þekkjum. Hann heldur framúrskarandi
vel lögunsinniog gefur fullkomnaþéttingu. Listanner hægt að taka úrfræstri
raufinnisem hannsituríog setjaíaftur að málningueðafúavörn lokinni. Þessi nýjung
lengir líftíma listans meir en nokkuð annað. LOZARON þéttilistinn er ekki ódýrasti
kosturinn fyrir okkur, en hann er sannarlega hagkvæmur fyrir húseigendur.
Hitunarkostnaður er ekki svo lítill hluti af rekstrarkostnaði húsnæðis í dag.
LOZARON þéttilistinn
Nýr kröftugur þéttilisti sem
lækkar hitunarkostnað hússins.
Listann er auðvelt að taka úr við
málningu eða fúavörn. Þessi
nýjung auðveldar mjög allt viðhald.
■I Hart plast M Mjúkt plast
ga-
uiöaverksmiðja
Pósthólf 14 230 Njarðvík Sími: 92-1601 Söluskrifstofa í Reykjavik: Iðnverk hf. Nóatúni 17105 Reykjavik Simar: 91-25930 og 91 -25945
KIKTU ÞAISJOMANNABLAÐIÐ VIKING
— 70 síður af fróðlegu og skemmtilegu efni.
— 7. tbl. er komið út.
— Áskriftarsími: 29933.
Verð í lausasölu kr. 100.