Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1983, Blaðsíða 27
.E8B* K5IGCTSO Of nUDAfliIHAM .VO
DV. MANUDAGUR10. OKT0BER1983.
32
27
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Bikarslagur íV-Þýskalandi:
Kaiserslautem
fékk skell
Frá Hilmari Oddssyni — fréttamanni
DV í V-Þýskalandl.
Karlsuhe úr 2. delld gerði sér lítið
fyrir og sló lið Kalserslautern út úr bik-
arkeppninni v-þýsku á laugardaginn
5—4 voru lokatölur eftir framlengingu.
Leikurinn hafði upp á allt að bjóða
sem góðir bikarleikir þurfa að hafa.
Glæsileg mörk, mikinn hraða og gífur-
lega spennu. 25 þúsund áhorfendur
fögnuðu mikið í leikslok þegar Buhler,
fyrrum áhugamaður, í liði Karlsruhe
skoraði sigurmarkið með skalla á 120.
mín.
Kaiserslautern náði forystunni
strax á 5. mín. með marki frá Geyer.
Hann einlék upp allan völlinn og skor-
aöi fallegt mark. Allt virtist ætla að
ganga eðlilega fyrir sig hjá Kaiser-
slautern þegar Andreas Brehme bætti
öðru markinu við 7 mín. síðar. Það tók
leikmenn Karlsruhe um 30 mín. að
komast í takt við leikinn og eftir það
voru þeir líka vel með á nótunum. Boy-
sen minnkaði muninn í 2—1 eftir 31
mín. leik. Giinther jafnaði á
markamínútunni miklu 43. mín. og
þannig skildi í hálfleik.
Áhorfendur voru varla búnir að
koma sér fyrir eftir leikhlé þegar þessi
sami Giinther skallaði aftur í netiö og
náði þar með 3—2 forystu fyrir heima-
liðið. Brehme var aftur á feröinni fyrir
Kaiserslautem á 79. mín. og skoraði
heppnismark. Hann tók aupaspyrnu,
knötturinn fór í bak eins varnarmanna
Karlsruhe, breytti um stefnu og hafn-
aði í markinu. Þetta þýddi að fram-
lengingar þurfti við. Kaiserslautem
byrjaði betur og Eilenfeld tókst að pota
fjórða markinu. Gúnther skoraði sitt
þríöja mark og fjórða mark Karlsruhe
á 102. mín. og Buhler innsiglaði sigur-
inn á síðustu mínútunni, eins og fýrr
sagði.
Þessi leikur var í alla staði frábær
og bar af í 32 liða úrslitum bikarkeppn-
innar. Urslit urðu þessi:
Gladbach-Bielcfcld 3-0
Köln-Kickers Offcnbach 6-2
Braunschweig-Osnabriick 2-1
Aachen-Mannheim 1-0
Freiburg-HSV 1—4
Karlsruhe-Kaiserslautem 6-4
Augsburg-Bayem Miinchen 0-6
Burglengenfeld-Bremen 0-3
Kiel-tirdingen 1-2
Köln áhugaml.-Stuttgart 0-8
SCC Berlin-Schalke 0—3
Bocholt-Stuttgarter Kickers 3-1
Heidingsfeld-Hannover 96 1-3
Neu Isenburg-Göttingen 0—1
Neuhausen-Hertha 6-2
Furth-Liidenscheid 1-0
• Gladbach óð í tækifærum á
heimavelli sínum gegn Bielefeld. Það
var aðeins stórgóður leikur Wolfgang
Kneib í marki Bielefeld sem kom í veg
fyrir stærri sigur. Svo mörg vom tæki-
færin sem Gladbach skapaði sér aö það
ætti að nægja til sigurs í þremur leikj-
um en mörkin urðu aðeins 3 að þessu
sinni. Þaö var NorðmaðurinnKai-Erik
Herlofsen sem skoraði fyrsta markið
og þeir Mattheus og austurríski lands-
liðsmaðurinn Krauss bættu hinum
tveimur við. Lienen, fyrrverandi leik-
maður Bielefeld, var besti leikmaður
vallarins.
• Köln virðist alltaf ná sér á strik
þegar bikarleikir em. Aðeins 6 þúsund
áhorfendur mættu á leikinn gegn
Offenbach. En þeir fóm allir ánægöir
heim. Það vakti athygli að varnar-
menn liðanna voru aliir í essinu sínu og
flest mörkin skoruð af þeim. Þeir
Steiner og Strack komu í 2—0 og þriðja
markið var sjálfsmark. Hartmann
skoraði fjóröa mark Kölnar. Þá var
komið að Kutzop, vamarmanni Offen-
bach, að minnka muninn í 1—4.
Fischer skoraði 5. markið áður en
Kutzop svaraði aftur. Lokaorðiö átti
vamarmaður Kölnar, Steiner, og
skemmtilegum leik lauk því með 6—2.
• Stuttgart fór létt með að sigra
áhugamannalið Kölnar 8—0. Mótherj-
ar næstu umferðar verða þó öllu erfið-
ari, því þá fær liðið sjálfa Evrópu-
meistara Hamborgar í heimsókn. Við
skulum þá líta á hvaða lið mætast í-
næstu umferö sem fram fer þann 14.
janúar 1984.
Urdingen-Bayern Miinchen
Fúrth-Gladbach
Göttingen-Hertha
Hannover-Köln
Aachen-Bremen
Stuttgart-Hamborg
Schalke-Karlsmhe
Bochholt-Braunschweig
-HO/-AA.
Dundee United
aftur á toppinn
Skotlandsmeistarar Dundee United
unnu góðan sigur 2—1 yfir Celtic og
skutust upp á toppinn í Skotlandi að
nýju. Billy Kirkwood skoraði fyrst með
þrumufleyg af 20 m færi og síðan bætti
Richard Gough marki við með skaila.
Það var ekki fyrr en sjö mín. fyrir
leikslok að Jim Melrose, fyrrum leik-
maður Leicester, náði að svara fyrir
Celtic.
• Aberdeen vann stórsigur (5—0)
yfir St. Mirren. Það voru þeir Billy
Stark (2), Mark mcGhee, Willie Fál-
coner og Willie Miller sem skomðu
mörkAberdeen.
• Irinn John McClelland tryggði Rang-
ers sigur (1—0) yfir Hips. Dundee lagði
St. Johnstone að velli 2—0 með mörk-
um frá Walter McCall og Andy Geddes.
• Hearts mátti sætta sig við jafntefli
0—0 gegn Motherwell og kom mark-
vörður Motherwell í veg fyrir sigur
Hearts með snilldarmarkvörslu.
• Dundee United er með 12 stig eftir
sjö umferðir en siðan koma Aberdeen,
Celtic og Hearts með 11 stig. Glasgow
Rangers er með 7 stig.
-sos
Raenar hefur
skrifað undir
hiá Örgrvte
— og byrjar að leika með Gautaborgarliðinu 1984
Ragnar Margeirsson, landsliðsmaö-
ur í knattspyrnu frá Keflavík, hefur
skrifað undir samning við sænska 1.
deildariiðið örgryte og byrjar að leika
með liðinu í byrjun árs 1984. Sænska
blaöiö Dagens Nyheter sagði frá þessu
fýrir helgi.
Ragnar, sem er 21 árs, var hjá
félaginu á dögunum og kunni mjög vel
viö sig í Gautaborg. Tveir íslenskir
landsliðsmenn hafa leikið með örgryte
— þaö eru þeir öm Oskarsson frá Vest-
•mannaeyjum og Sigurður Björgvins-
sonfrá Keflavík.
Ragnar hefur leikið með þremur
erlendum félögum undanfarin ár —
Hamburg í V-Þýskalandi og belgísku
félögunum AA Gent og CS Brugge.
-sos
Top 10 körfuboltaskór.
Nr. 38 -50, kr. 1564.
Tiger körfuboltaskór.
Nr. 38 -49, kr. 1546.
Leikfimifatnaður.
Nr. 116-164 og 38-44.
Stuttermabolir,
langermabolir,
hlýrabolir,
samfestingar,
buxur.
New York æfingagallar.
Litur: dökkblátt.
Nr. 34 -56, kr. 2992.
Schulsport innanhússskór.
Nr. 33-47, kr. 893.
Badmintonvörur, spaðar — kúlur — skór — net.
Speedo sundvörur, skýlur
Leikfimiskór/fimleikaskór, sundhettur.
leður m/hrágúmmísóla, kr.
356. Boltar: fótboltar nr. 4 og 5, handboltar — dömu ogl
herra, körfuboltar, leður — nælon, blakboltar, stutt
-------- buxur — stuttermabolir.
bolir — gleraugu
Orion trimmskór.
Nr. 36 -47, kr. 1071
Kreditkortaþjónusta.
Opið laugardaga.
PÓSTSENDUM
SAMDÆGURS
Leikfimiskór/fimleikaskór,
leður m/leðursóla, kr. 332.
Universal leður.
Nr. 36-49, kr. 1196.
Sportvöruverslunin
Yfir 15 teg. af töskum.
Verðkr. 102-1461.
Stockholm GT, btáir, rúskinn.
Nr. 36-46, kr. 1196.
Ingólfsstræti 8. Simi 12024.
NÝOG BETRI
BIFREIDADEILD SAMBANDSINS
BÍLASALA HÖFÐABAKKA 9-SÍMI 39810
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 9—18
(OPIÐ í HÁDEGINU) LAUGARDAGA KL. 13—17