Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1983, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1983, Síða 1
40.000 EINTÖK PRENTUÐ í DAG ITSTJORN SÍMI 86611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 270 DAGBLAÐIЗVÍSIR 247. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1983. Diýttarbáturínn Magni, hafnsögubátur, olíubáturínn Héðinn, björgunarbáturinn Gísli J. Johnsen og sanddæluskipið Pería samstilltu aðgerðir sínar á björgunarstað í því augnamiði að skipið héldist alveg á hvoifi uns það strandaði. Björgunarmenn voru komnir með tilheyrandi áhöld á kjöl. -GS/DV-mynd Eiríkur Jónsson. Sandey II. hvolfdi á Viðeyjarsundi ímorgun: Fjórir innilokaðir Tveimur bjargað á Fjórir skipverjar á Sandey n. voru enn innilokaðir í skipinu klukkan 11 í morgun en skipiö maraði hálft í kafi á hvolfi á Viðeyjarsundi eftir að því hvolfdi skyndilega þar laust eftir kl. 9 í morgun. Sex manna áhöfn var á skip- inu en tveim mönnum, sem staddir voru í brúnni þegar skipinu hvolfdi, tókst að komast úr skipinu og var þeim bjargað. Var annar þeirra mjög þjakaður og voru þeir báðir fluttir á sjúkrahús. Hafnsögubátur bjargaði öðrum manninum en hinum var bjargað um borö í gúmmibát. Þegar síðast fréttist var verið að reyna að draga Sandey upp á Engeyjarrif og stranda henni þar, því menn þoröu ekki að logskera gat á botn skipsins á meðan það var á floti, af ótta ■ við að það sykki samstundis ef loftið kæmist út undan þvi. Strax og björgunarmenn komust á kjöl Sandeyjar bönkuðu þeir í hann til að gera vart við sig. Fengu þeir svörun við bankinu, sem gaf til kynna að menn væru á lífi um borð. Mikinn fjölda skipa, báta og björgunarmanna dreif þegar á slys- stað og þyrla var til taks. Sex til átta froskmenn reyndu einnig köfun og eru öll áhöld til reiðu til að komast ofan í skipið um leið og það strandar. Sanddæluskipinu Sandey n. hvolfdi fyrir utan Kirkjusand með sex manns um borð klukkan liðlega 9 í morgun. Sandey n. er sanddæluskip í eigu Björgunar hf. Upphaflega var skipið bandariskur landgönguprammi en var endursmiðaö sem sanddæluskip í Stálsmiðjunni í Reykjavík 1976. Sandey var að fylla sig á dælustaö á Sundunum er slysið varð. Orsakir þess að skipinu hvolfdi svo skyndilega eru meðölluóljósar. -GS.-EIR-KLP. Síðustu fréttir: Þegar blaðiö fór í prentun hafði tekist að opna skipið og búið var að bjarga fyrsta manninum. Hann er talinn i lífshættu. Sjá einnig fréttirog myndir á baksíðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.