Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1983, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1983, Side 7
DV. FÖSTUDAGUR 28. OKT0BER1983. 7 Útlönd Útlönd „ Gíslamartröðin mátti ekki end- urtaka sig” - segir Reagan forseti til skýringar á innrásinni á Grenada „Við komum þar rétt í tæka tíð,” sagði Reagan Bandaríkjaforseti í sjón- varpsræðu í gærkvöldi, þar sem hann Hjarta- aðgerðir ónauð- synlegar? Allt að 20 þúsund Bandaríkja- menn gangast undir hjartaaögerðir á ári hverju þótt lyf jameðferð myndi gera þeim sama gagn. Þetta er niðurstaða könnunar, sem gerö var á vegum Henry Ford sjúkrahússins í Detroit. 780 sjúklingar, lang- flestir karlmenn, voru í úrtaki í könnuninni, helmingur þeirra gekkst undir upfiskurð en helmingur fékk lyfja- meðferð viö hjartasjúkdómi sínum. „Sex árum seinna voru 90% þeirra sem fengu lyf jameðferö á lífi og 92% þeirra sem gengust undir skurðaðgeröir,” sagði Thomas Killip læknir, sem stjórnaði könnuninni. Hann sagöi einnig aö þetta væri besta útkoma sem fengist hefði við samanburð á lífslíkum sjúklinga sem gengist hefðu undir skurðaðgerö annars vegar og þeirra sem fwgið hefðu lyf jameðf erð hins vegar. Thatcher í vandræðalegri stöðu. Kolanáma- menn í launadeilu Leiötogar samtaka breskra kolanámamanna hafa ákveðiö að halda áfram yfirvinnubanninu, sem tekur til um 200 þúsund félags- manna. Slitnaði í gær upp úr launa- samningaviðræðum þeirra við þaö opinbera. Yfirvinnubannið hefst aftur á mánudagsmorgun, og segjast for- svarsmenn kolanámamanna ekki ætla að láta það aftra sér þótt mikl- ar kolabirgðir séu til í landinu og því ekki líklegt aö yfirvinnubanns- ins muni gæta mikið. sakaði Kúbu um að hafa ætlað að gera Grenada aö stökkpalli til útbreiðslu á kommúnisma og skæruhemaöi á meginlandinu. „Okkur var sagt að Grenada væri vinsamleg feröamannaparadís,” sagði Reagan. „En hún vár það ekki. Hún var sovésk-kúbönsk nýlenda sem unnið var að því aö breyta í meiri háttar hemaðarvirki til þess að breiða þaðan út hryðjuverk til þess að grafa undan lýðræði.” Reagan lagði áherslu á að átta önnur ríki í Karíbahafinu hefðu óskaö þess af Bandaríkjamönnum að þeir hlutuö- ust til um þróun mála í Grenada en sagði að fyrst og fremst hefði það verið öryggi bandarískra ríkisborgara á Grenada sem stjóm hans hefði veriö efstihuga. „Gíslamartröðin frá því í Iran mátti ekki endurtaka sig,” sagði Reagan. Kallaöi hann valdaránsmennina, sem tóku Maurice Bishop forsætisráð- herra af lífi, „marxíska bófa”. Sagði hann, að Kúbumennimir, sem kallaöir hefðu verið „verkamenn”, hefðu reynst vera hermenn og að hjá þeim hefðu fundist miklar vopnabirgðir og fjarskiptastöð, auk ýmissa skjala sem bentu til þess aö Kúba hefði haft i ráð- umaðhertaka eyjuna. „Komum rétt í tæka tíð,” segir Reagai nm innrásina. Thatcher vill ekki fordæma innrásina — og kannast ekki við að landstjóri Breta hafi óskað eftir innrásinni Breska stjórnin þykir vera í vand- ræðalegri stöðu vegna innrásar Banda- ríkjamanna inn í eitt samveldislandiö, Grenada. Margaret Thatcher forsætis- ráðherra hefur neitað að láta undan þrýstingi þeirra sem vilja að stjómin fordæmi innrásina. I því sambandi hefur Thatcher með- al annars rifjaö upp að þegar Bretar ákváðu að ráðast gegn innrásarliði Argentínu á Falklandseyjum í fyrra hafi Bandaríkjastjóm ekki fordæmt þá. Né heldur hafi verið klagaö yfir því þótt Bretar hefðu ekki haft fullt sam- ráð við Washingtonstjórnina fyrir Falklandseyj astríðið. Hún sagöi á fundi í neðrí málstofu breska þingsins í gær að stjóm hennar mundi meö samúð taka til gaumgæfi- legrar athugunar ef beiðni bærist um að breskt herlið tæki að sér friðargæslu á Grenada við brottflutning innrásar- liðsins. Thatcher bar á móti því að bresku stjórninni væri kunnugt um að sir Paul Scoon, landstjóri á Grenada, hefði óskað eftir íhlutun, eins og haldiö var framífréttumígær. Sovétríkin: Vatnsból tveggja borga eyðilagt Milljónir fiska dóu og takmarka varð neysluvatn í tveim sovéskum borgum þegar stífla rofnaöi við áburðarverk- smiðju í Okraínu svo að fljótið Dnestr mengaðist illa, að sögn Nikolai Vasilyev, sovésks ráðherra, í viðtali við sovéska dagblaðið Izvestia. Þúsundir tonna af vatni, sem var mjög mengað af eiturefnum, sluppu út í ána þegar stifla rofnaði i geymsiustöö fyrir eiturefni við Drogolich, sunnan borgarinnar Lvov. Vatnið flæddi 25 kílómetra yfir akra, vegi og járn- brautarspor og komst í ána, þann 15. september sl. Rúmlega 2200 tonn af fiski í ánni drápust af eitruninni sem barst um 500 kílómetra niður eftir ánni og settist til í vatnsbólinu Novo-Dnestr en það er mikilvægt vatnsból sem borgimar Odessa og Kisinev nota. Eiturefnin hafa sest til i uppi- stöðulóninu svo að enn má fá drykkjar- hæft vatn í efstu lögum þess en í mun minna mæli en borgimar þurfa. Því hefur þurft að grípa þar til vatns- skömmtunar. Slík slys komast yfirleitt ekki í fréttir í Sovétríkjunum en vatns- skömmtunin hefur haft svo mikil áhrif að stjómvöldum hefur eflaust sýnst ekki vera stætt á öðm en gefa almenn- ingi skýringu á því sem gerðist. Fyrir slysið var áin Dnestr talin hreinasta á í Sovétríkjunum. I viðtalinu í Izvestia kom fram að slysið varð vegna smíðagalla sem kom í ljós þegar of mikið var lagt á mann- virkin. Atta manns hafa veriö kærðir fyrir hlut sinn í slysinu. Góð fjárjörð til sölu Jörðin Múli í Kollafirði í Barðastrandarsýslu er til sölu og á- búðar. Þar eru mjög góö skilyrði fyrir sauðfjárbú og e.t.v. fiskirækt. Á jörðinni er nýtt íbúðarhús, 130 fm, og rafveituraf- magn, fallegt bæjarstæði í þjóðbraut. Jörðin verður aðeins seld til fastrar ábúðar. Upplýsingar hjá oddvita Gufudalshrepps, sími 93-4799,og aug- lýsingaþjónustu DV, sími 27022. H—380 m Opið laugardaga kl. 10-12. Síðumúla 17 -Sími 37140 Pósthólf 5274-125 Reykjavik Sendum gegn póstkröfu HJÓLA-TJAKKAR komnir aftur Tvær stærðir: 2 tonn kr: 3.950. 11/2 tonn kr: 3.800 Einnig spindiltjakkar, gírkassalyftur og búkkar. lega og myndar- SÍMINN ER 82260 HAFIÐ SAMBAND STRAX JOLAGJAFAHANDBÓK kemur út um mánaðamót nóv/des. Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að auglýsa í JÓLAGJAFAHAND BÓKINNI vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild Síðumúla 33, Reykjavík, eða í síma 82260 milli kl. 9 og 17.30 SEM ALLRA FYRST.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.