Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1983, Side 32
27022
AUGLÝSINGÁR
SÍÐUMÚLA33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI11
86611
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1983.
Hafnsögubátur kom með einn skipverja af Sandey II. á land i
Reykjavíkurhöfn skömmu eftir að slysið varð. Farið var
með hann á Landakotsspítala. Stuttu síðar tókst að bjarga
öðrum og var farið með hann á slysadeild. Enn voru þá fjórir
félagar þeirra innilokaðir í skipinu sem maraði í kafi, með
kjölinn upp og brúna 10 m undir yfirborði sjávar.
DV-mynd S.
„Við vorum að fylla skipið af möl á
Engeyjarrifi. Rétt áður en við fylltum
lagðist það á bakborðshliðina. Þetta
gerðist bara á nokkrum augna-
blikum,” sagði Sigurður Sveinbjörns-
son, annar tveggja skipverja sem
bjargað hafði verið þegar blaðið fór í
prentun.
„Ég var að koma upp í brú. Ég fór í
sjóinn. Einn náði að komast á kjöl. Það
var sá sem bjargaöi mér,” sagði
Sigurður.
DV ræddi við Sigurð á Landakots-
spítala. Þar var hann að hressast.
Fjölskylda hans var komin til hans.
Eiginkonan, Sigfríður Jónsdóttir,
hlýjaði manni sínum.
-KMU.
A Landakotsspítala klukkan 10.15 í morgun. Sigurður Sveinbjömsson fær hlýju frá
eiginkonu sinni, Sigfríði Jónsdóttur. D V-mynd S.
GERÐIST Á
AUGNABUKI
FULLTRÚAR NEYTENDA
HAFNA EGGJAEINOKUN
Sjómannafélag Reyk javíkur og Landssamband iðnaðarmanna hóta úrsögn úr sexmannanefnd
Fulltrúar neytenda munu
endanlega hverfa úr sexmanna-
nefndinni ef hugmyndir Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins um
stofnun eggjasamlags koma til fram-
kvæmda. Telja þeir að eggjasamiag
muni leiða til verðhækkana á eggjum
tilneytenda.
Sigurður Kristinsson, forseti
Landssambands iðnaðarmanna,
sagði í ræðu á Iönþingi í gær að sam-
þykkt hefði verið innan sambandsins
að það drægi fulltrúa sinn úr nefnd-
inni ef verðskráning eggja yrði felld
undir Framleiðsluráð og sexmanna-
nefnd. Hugmyndir þessar eru and-
stæðar verðlagningarstefnu Lands-
sambandsins og með þeim er stigiö
stórt skref aftur á bak. Engu virðist
skipta þótt framleiðendur megin-
hluta eggjanna á markaðnum séu á
móti samlaginu. „Allir eiga að selja
á sama verði og vofir refsivöndur
laganna yfir þeim sem dirfast aö
bjóða á lægra verði. Breytir þar engu
þótt einstakir framleiöendur geti
sýnt fram á að tilkostnaður þeirra
viö eggjaframleiösluna sé aðeins
brot af hinu opinbera einokunar-
verði,” sagði Sigurður.
Sexmannanefndin er skipuö
þremur fulltrúum neytenda og þrem-
ur fulltrúum bænda til samkomulags
um verðlagningu landbúnaðarvara.
Landssamband iönaðarmanna,
Sjómannafélag Reykjavíkur og ASI
tilnefna fulltrúa neytenda. ASI dró
fulltrúa sinn úr nefndinni fyrir
mörgum árum og tilnefnir félags-
málaráðherra fulltrúa í hans stað.
Nú hefur fulltrúi Sjómannafélagsins
tilkynnt að hann muni hætta störfum
i sexmannanefndinni ef eggja-
samlagiö verður stofnað.
„Ef þessari einokunarhugsjón
verður haldið til streitu mun
Sjómannafélagið draga sinn fulltrúa
út úr neftidinni lika,” sagði Gunnar
Hallgrimsson, fulltrúi Sjómanna-
félagsins i sexmannanefnd, i samtali
við DV. „Sjómannafélagið vill ekki
vera á eitt á móti fulltrúum rikis-
valdsins. Okkur fyndist þetta þá
vera hálfgerður skripaleikur. Eg
veit að þetta er afstaða félags-
manna,” sagði Gunnar.
-ÖEF.