Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1984, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1984, Síða 16
16 DV. MIÐVIKUDAGUR11. JANUAR1984. Spurningin Ferð þú oft í leikhús? Krlstin Lú&vfksdóttir sölumaður: Nei, en mig langar til þess. Rg gef mér ekki tíma til þess. Rg ætla aö fara í óperuna og sjá Rakarann í Sevilla. Þaö versta er að bóndinn hefur engan áhuga. örn Sæmundsson loftskeytamaður: Aldrei, ég hef bara ekki áhuga á því, aö minnsta kosti ekki eins og er. Þaö er video-tæki heima og ég fæ mér oft spól- ur. Þaö er þó lítið um bláar, þó viö og við, ég tek aðailega sakamálamyndir. Susan Jörgensen húsmóðir: Rg hef ekki farið enn enda tiltölulega nýflutt til landsins Rn nú er ég aö flytja til Reykjavíkur og ég hef hugsaö mér að fara og sjá eitthvert leikrit. Guðmundur Danieisson bifreiðar- stjóri: Nei, ég fer ekki oft í leikhús. Það er mest sjaldan, en ég hef þó gaman af því að fara. Rg hef ekkert hugsaö mér enn að fara, en ef ég fer, þá færi ég aö sjá eitthvert létt verk. Sigrún Pálsdóttir húsmóðir: Nei, ég fer sjaldan. Rg veit nú ekki af hverju ég fer svo sjaldan, sennilega er það framtaksleysi. Mér finnst gaman í leikhúsi þegar rnaður er kominn þang- að. Kristólina Jónsdóttir húsmóðir: Nei, mjög sjaldan. Rg hef ekki farið síðan ég sá Gullna hliðiö í Þjóöleikhúsinu. Rg hafði reglulega gaman af því. Maður veit ekki hvað gæti orðið, kannski að1 maður fari í vetur. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur ILL MEDFERD —á útigangshrossum Egili Ölafsson skrifar: Þarfasti þjónn nútímans, bíllinn, hefur átt erfiða daga að undanförnu. Þarfasti þjónn gamla timans, hestur- inn, hefur ekki síöur átt erfiöa ævi í óveörinu. Þegar kemur fram á þennan árstíma er yfirleitt ekki mikið fyrir hross að hafa og þaö litla sem þau ná að kroppa upp úr freðinni jöröinni er næringarlítii sina. Um langan aldur hefur það viögeng- ist hér á landi að hross séu látin ganga sjálfala á veturna án þess að eigendur þeirraskiptisérnokkuöafþeim. Þetta er kallaö að „setja á guð og gaddinn”. Veturinn reynist því útigangshrossum oft erfiöur eins og eftirfarandi saga ber með sér. Um mánaöamótin nóvember — des- ember tóku menn eftir því að hestur, sem lengi haföi flækst einn um, var horfinn af þeim staö sem hann var van- ur að vera á. Fyrir einhverja tiiviljun gengu menn fram á hestinn þar sem hann lá afvelta, frosinn fastur í jörð- ina. Greinilegt var að hesturinn var búinn aö liggja þarna ósjálfbjarga í nokkurn tíma því vargfugl var byrjað- ur að kroppa í hann lifandi. Þeir sem fundu hestinn losuðu hann úr klakan- um og komu honum á fætur og skildu síöan viö hann án þess aö athuga hver ætti hestinn. Nóttina eftir að hrossiö losnaði var 12 stiga frost. Síðan þetta var er liðinn rúmur mánuöur og enn lifir hesturinn en hvort hann lifir til vorserannaðmál. Svona atburðir eru því miður ekki. einsdæmi. Meðferö á útigangshross- um ber oft vott um furöulegt afskipta- leysi og grimmd. A sama tima og svona atburðir ger- ast beina dýraverndunarmenn kröft- um sínum að því að reisa „kattahótel” og að því aö vernda ormafulla seli. Ekki á hann Gráni gott þegar úti er veður vont. En hann og fieiri hross sem látin eru ganga úti á veturna þurfa oft að þola afskiptaleysi og grimmd, segir i bréfi þessu. Skólahaldi ætti að aflýsa áður en skólabörn fara i skólann, segir móðir i Breiðholtinu. Það veitist mörgum oft erfitt að koma börnum sinum i skóla islæmum veðrum. ,Ansans, þar fór I verra," aagði konan þegar töhran renndi yfir númerið hennar án þess að draga ó það vinning. Þama er veriO aO draga i Happdrætti Háskólans en þar, eins og i öllum happdrættum, fá færri vinn- ing en vilja. Fæ aldrei vinning —íhappdrættinu Astahringdi: Eg var búin aö eiga happdrættis- miöa í Happdrætti Háskóla Islands í tuttugu ár þangað til í hittifyrra og aldrei hlotiö vinning. Strax næsta ár eftir að ég hætti féllu tveir vinningar á gamla númerið mitt, þar af annar hæsti vinningur mánaðarins. Alltaf er maður jafnseinheppinn. Nú er alltaf veriö aö auglýsa að fjórði hver hljóti vinning og ef það er rétt þá hlýt ég að eiga inni hjá þeim vinning. Mig langar því til gamans aö spyrja þá hvernig á því standi aö ég hef aldrei fengið vinning þó ég hafi spilaðítuttuguár. Jóhannes L. L. Helgason, forstjóri, Happdrættis Háskóla Islands, sagði aö HHI gæfi út 60.000 miða árlega og af þeim væru 15.000 dregnir út sem vinn- ingsmiðar. Það væri því að jafnaði fjórði hver miöi sem hlyti vinning þeg- ar miöað væri við allt áriö. Aflýsið skólahaldi — áður en kennsla hefst Móðir í Brciðholtinu hringdi: Miðvikudaginn 4. jan., klukkan rúmlega 10 um morguninn, þegar veð-. ur var orðið ansi slæmt hér í Fellunum, hringdi ég á Fræðsluskrifstofu Reykja- víkurborgar þar sem ég þurfti að fara að senda 8 ára gamla dóttur mína í skólann en ekkert hafði heyrst um niðurfellingu kennslu. Fræðslustjóri og skólafulltrúi voru vant við látnir þannig að ég spurði því starfsmann á skrifstofunni hvort ekki hefði verið rætt um aö aflýsa skóla- haldi í borginni. Þar var því svarað með spurningunni hvort ég teldi eitt- hvaö vera að veðri. Rg varð hvumsa við svo ábyrgðarlausu svari og spurði því hvort ekki væri fylgst meö veöur- fréttum og var þá svarað aö ekki væri hlustaðá útvarp þar. Mér finnst að skólahaldi ætti að af- lýsa áöur en skólabörn fara í skólann en ekki eftir aö skóli hefst, eins og reynslan hefur sýnt okkur, þannig aö börnin lendi í erfiðleikum viö að kom- ast heim. Derrick og Harry lltii njóta mikilla vinsmlda meOal sjónvarpsáhorfenda enda menn myndarfegir og skarpskyggnir. Brófritari vill aO þeir og aOrir þættir veröi sýndir fyrr ákvöldin. Færið dag- skráriiðina Sjónvarpsáhorfandihringdi: vilja heldur ekki missa af þessum Mig langar til að spyrja þá hjá góöuþáttum. sjónvarpinu hvort ekki sé hægt að DV fékk þau svör hjá sjónvarpinu breyta niöurröðun á dagskrárliöum að margir hefðu komið með slikar á kvöldin, sem sagt að flytja þætti óskir til þeirra, bæöi um aö flytja eins og Derrick og Dallas, sem fólk þessa þætti aftar á dagskrána og horfir mikið á, fram í dagskrána framar. Þeir hefðu því tekið þá þannig að fólk þurfi ekki að bíða stefnu að sigla milli skers og báru. fram á nótt eftir því aö horfa á þessa Þessir þættir væru annar dagskrár- þætti. Það eru margir sem þurfa aö liöur af þrem á kvölddagskránni og mæta snemma í vinnu næsta morgun þannig teldu þeir að komiö væri og vilja því fara snemma aö sofa en til móts við flesta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.