Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1984, Síða 19
DV. MIÐVKUDAGUR11. JANUAR1984.
19
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
Ian Rush — markaskorarinn mikli hjá Liverpool sést hér í welska lands-
liðsbúningnum. Hann verður í sviðsljósinu á Laugardaisvellinum.
íslendingar mæta
Walesbúum fyrst
— í undankeppni HM í knattspyrnu
— Við munum leika okkar fyrsta landsleik í
heimsmeistarakeppninni gegn Wales og mun sá
leikur fara fram á Laugardalsvellinum 12.
september, sagði Ellert B. Schram, formaður
KSÍ, þegar DV hafði samband við hann í París í
gærkvöldi en í gær var raðað niður í leikjunum í
þeim riðli sem íslendingar leika í. Fulltrúar frá
Spáni, Skotlandi og Wales voru þar saman
komnir.
— Niðurröðunin var ekki eins og við
óskuðum okkur en hún er samt viðun-
andi. Við leikum einn leik heima í ár og
síðan fáum við Spánverja og Skota í
heimsókn á næsta ári, sagði Ellert.
Ellert sagði að Islendingar myndu
leika gegn Wales 12. september í
Reykjavík og gegn Skotlandi í Glasgow
17. október. — Við mætum síðan Wales
aftur 14. nóvember úti, sagði Ellert.
— Þetta verða þeir landsleikir sem
við komum til með að leika í ár. Við fá-
um einnig Norðmenn í heimsókn 20.
júní, sagði Ellert.
Ellert sagði að þaö væri ljóst að at-
vinnumennirnir okkar í V-Þýskalandi
yrðu örugglega lausir í leikina gegn
Wales í Reykjavík og gegn Skotlandi
þar sem landslið V-Þjóðverja væri að
leika á sama tíma og því ekkert leikið í
V-Þýskalandi. — Því miður var ekki
Danir glíma við
Frakka í Parfs
—í fyrsta leik EM í knattspyrnu
Það kemur í hlut Dana að leika
fyrsta leikinn í Evrópukeppni lands-
liða í knattspymu sem hefst í Frakk-
landi 12. júní. Danir mæta gestgjöfum
Frakka í fyrsta leiknum og verður
hann leikinn á Parc des Princes í
París. Frakkar eiga harma að hefna
því að þeir töpuðu stórt (1—3) fyrir
Dönum í vináttulandsleik í Kaup-
mannahöfn sl. sumar og skoraði
Michael Laudrup þá tvö mörk í leikn-
um.
Það var dregið í tvo riöla í Evrópu-
keppni landsliða í París í gær og leika
HMíRúss-
landi 1990?
Sovéska fréttastofan Tass hefur
sagt frá því að Joao Havelange, forseti
FIFA, hafi tilkynnt Sovétmönnum að
þeir eigi mjög góða möguleika á að fá
að haida heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu 1990. Havelange sagði á
fundi með fréttamönnum í Leningrad
að þeir leikvellir sem hann hefði séð í
Sovétríkjunum — í Kiev og Minsk,
stæðust fyllilega þær kröfur sem FIFA
gerði til leikvaUa og einnig væra veU-
irnir í Moskvu og TbUisi og Leningrad
mjög góðir.
Aðrar þjóðir sem hafa óskað eftir að
halda HM 1990 eru England, Italía og
Grikkiand.
-SOS
Frakkar, Danir, Belgíumenn og Júgó-
slavar í riðli 1. Evrópumeistarar V-
Þjóðverja, Portúgalir, Rúmenar og
Spánverjar leika í riðU 2.
Oneitanlega virkar fyrsti riðillinn
sterkari. Áður en drátturinn hófst var
ákveðið að Frakkar og V-Þjóðverjar
yrðu hvor í sínum riðU og þá voru
nöfn Júgóslavíu og Spánar tekin frá,
þannig að byrjað var að draga úr hatt-
inum þar sem nöfn Portúgal,
Danmerkur, Rúmeníu og Belgíu voru í.
Þegar það var búið var dregið um í
hvorum riðlinum Júgóslavía og Spánn
yrðu.
Leikdagar og leikir í Evrópukeppn-
innieruþessir:
12. júni:
Frakkland—Danmork í París
13. júní:
Belgía—Júgóslavia í Lenz
14. júni:
V-Þýskaland—Portúgal í Strasbourg
Rúmenía—Spánn í St. Etienne
16. júní:
Frakkland—Belgia íNantes
Danmörk—Júgóslavía í Lyon
17. júní:
V-Þýskaland—Rúmenia í Lenz
Portúgal—Spánn i Marseille
19. júní:
Frakkland—Júgóslavía í St. Etienne
Danmörk—Belgia í Strasbourg
20. júni:
V-Þýskaland—Spánn í París
Portúgal—Rúmenía í Nantes
• Undanúrslitaleikirnir fara fram
23. og 24. júní: sigurvegarinn í fyrsta
riðU mætir því landi sem er í öðru sæti í
öðrum riðli í Marseille og sigurvegar-
inn í öðrum riðU mætir því landi sem
verður í öðru sæti í fyrsta riðli í Lyon.
• UrsUtaleikurinn fer fram í París
27. júní.
-sos
hægt að raða niður leikjunum í sam-
ræmi við landsleiki Belgíu, þar sem
Belgíumenn væru ekki búnir að raða
niður sínum landsleikjum, sagði
Ellert.
Tveir heimaleikir 1985
Islendingar mæta siðan Skotum í
Reykjavík 28. mai 1985 og Spánverjar
koma svo hingað 12. júní. Síöasti leikur
Islands í HM verður svo gegn Spán-
verjum á Spáni 22. september 1985.
— Það var ljóst að Spánverjar vildu
draga það sem lengst að mæta Islend-
rngum. Þeir muna eftir leikjunum í
EM sem fóru báðir 0—1 og það getur
EUert B. Schram — formaður KSÍ.
verið að þeir hafi verið að hugsa um að
þeir gætu unnið Isiendinga eins stórt
og Möltu —12—1, sagði Ellert.
Ellert sagði að 21 árs landsleikimir
færu fram daginn áður en leikir A-
landsliðanna færu fram — og þá í sama
landi. Allar f jórar þjóðirnar tefla einn-
ig fram 21 árs liðum.
-SOS
Devonshire
skorínn upp
— við meiðslum íhné
Enski landsliðsmaðurinn Alan
Devonshire hjá West Ham, sem meidd-
ist í bikarleik West Ham gegn Wigan á
iaugardaginn, var skorinn upp við
meiðslum í hné i gærmorgun. Þessi
snjaUi miðvaUarspUari verður frá
keppni í tvo mánuði.
Ray Clemence, markvörður Tott-
enham sem meiddist í bikarleik félags-
ins gegn Fulham, leikur ekki með Tott-
enham í kvöld. Það verður varamark-
vörðurinn Tony Parks sem mun Ieika í
staöinn fyrir Clemence í kvöld.
-sos.
Al.ia Devonshire.
fl ,Þet ta i vai rm ■ ■■ _ ^ jog
ái iægj íul legu irsi gur”
— sagði Stenmark eftir að hann hafði sigrað í stórsvigi í Adelboden í Sviss
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta-
manni DV í Svíþjóð: — Þetta var mjög
ánæg julegur sigur þvi að hann sýnir að
ég get enn veitt þeim bestu í stórsvig-
inu harða keppni. öfugt sem ýmsir
hafa haldið fram, sagði skíðakappinn
Ingimar Stenmark eftir að hann hafði
orðið sigurvegari í stórsvigi í heims-
bikarkeppninni sem fór fram í Adel-
boden í Sviss í gær.
Stenmark, sem vann sinn 75. sigur í
heimsbikarkeppninni síðan hann hóf
að keppa í henni, sagði að Adelboden
hefði aUtaf verið í miklu uppáhaldi hjá
sér. — Hér hef ég unniö marga góða
sigra á undanförnum árum, sagði
Stenmark sem náði bestum brautar-
tíma í báðum umferðunum.
Stenmark hefur unnið sigur 39 sinn-
um í stórsvigi og 36 sigra í svigi en til
að byrja með var aðalgrein hans stór-
svig en nú er hann sterkari í svigi.
Heimsbikarkeppnin hófst 1967 og síð-
an þá hafa Austurríkismenn unnið 100
sigra, Svíar 77 og Svisslendingar 75.
Stenmark hefur unnið 75 sinnum fyrir
Svía en Stig Strand tvisvar sinnum — í
bæði skiptin í svigi.
Bandaríkjamaðurinn Phil Mare,
sem er handhafi heimsbikarsins, hefur
ekki náð sér á strik í vetur — hann
keyrði út úr brautinni í fyrri umferð-
inni í gær og varð þar með úr leik.
Þeir skíðamenn, sem náðu bestum
tíma, voru:
Stenmark, Svíþjóð 2:27,36
Strolz, Austurríki 2:28,04
Zurbriggen, Sviss 2:28,16
GirardeUi, Lúxemborg 2:28,61
Franko, Júgóslavíu 2:29,05
Enn, Austurríki 2:29,27 -GAJ/-SOS
(þróttir
Iþróttir
(þrótti
íþróttir