Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR 18. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1985. T uborg vill brugga bjór hjá Sanitas Danska Tuborg-fyrirtækið hefur áhuga á þvi að hinn þekkti bjór þess verði bruggaður á tslandi. Fulltrúi Tuborg kom til landsins í síðustu viku og skoðaði verksmiðjur Sanitas við Köllunarklettsveg i Reykjavík og Sana á Akureyri. „Það hafa verið viðræður milli okkar og Tuborg og Vífilfells, sem er umboðsaðili fyrir Tuborg,” sagði Páll G. Jónsson, stjórnarformaður Sanitas hf., í samtali við DV. Það er ekki komin nein endanleg niðurstaða. Ýmsar hugmyndir um framtíðarskipan mála hafa verið viðraðar. Margs konar sjónarmið hafa komið fram,” sagðiPáll. „Tuborg-menn hafa verið mjög hrifnir af ölgerð okkar á Akureyri,” bættihannvið. Þessar þreifingar Tuborg eru m------------------► Verksmiðjustjóri Sana á Akureyri, Ragnar Tryggvason, sýnir bjórinn sem Sanitas flytur út. Verður Tu- borg-merkið sett á flöskurnar? óháðar því hvort sala áfengs öls verði leyfð á íslandi á næstunni. Tuborg gæti eins hugsað sér að byrja á léttölinu. „Við höfum áhuga á samstarfi við Tuborg vegna tækniþekkingar þeirra og reynslu,” sagði Páll. Tuborg sýndi Sanitas-verk- smiðjunum fyrst áhuga fyrir ári. Þá kom fulltrúi þess hingað til lands til viðræðna við Sanitas um samstarf. Sanitas framleiðir, sem kunnugt er, auk pilsners, bjór til útflutnings. -KMU. Um klukkan 10 i morgun vann allt slökkviið Reykjavíkur að þvi að ráða niðurlögum elds i fyrirtœkinu Bossa, Skemmuvegi 8 í Kópavogi. I Bossa eru framleiddar bleyjur. Tveir starfsmenn voru i húsinu klukkan 9.30 i morgun er eldsins varð vart. Er talið að kviknað hafi i út frá rafmagnsofni. Réðust starfsmennirnir að honum meö slökkvitœki en allt kom fyrir ekki. Eldurinn breiddist óðfluga út og þegar síðast fréttist höfðu slökkviliðsmenn rofið þak hússins og dældu vatni þar i gegn. Þá var og mikill reykur i nærliggjandi fyrirtækjum en voru þau ekki tal- in í hættu. EH/-EIR. Myndbandamaöur farinn úr landi Eriendur ríkisborgari, sem rekið hefur eina umdeildustu myndbanda- leigu í Reykjavík, er farinn af landi brott. Skilur hann eftir sig 4 mál í Hæstarétti og 6 í bæjarþingi Reykja- víkur. Eru málin þó ekki höfðuð gegn honum persónulega heldur mynd- bandaleigunni er hann veitti for- stöðu. Fyrir skömmu lagöi lögreglan hald á um 300 myndbönd í leigu hans; öll ólögleg. „Maður þessi var fremstur í flokki þeirra sem verst haga sér á myndbanda- markaðnum,” sagöi Friðbert Páls- son, formaður Samtaka rétthafa myndbanda, í morgun. -EJR. Kastaðist iírbflnum Datsun bifreiö fór út af veginum á Alftanesi í nótt. Ökumaðurinn, miðaidra kona, kastaðist út þegar bíllinn fór af veginum. Konan var flutt mikið slösuð á slysadeild Borg- arspítalans. Grunur leikur á að konanhafiveriðölvuð. -EH. FiskflutningarSH: Víkur meö lægstatilboö Skipafélagið Víkur var með lægsta tilboðið í fiskflutninga Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna til Cambridge í Bandaríkjunum. SH bauð út flutning á um 18 þúsund tonnum á freðfiski sem á að skipa út á 10 höfnum hérlendis. Flutningar þessir hafa fram til þessa verið í höndum Eimskipafélagsins. Skipafélagið Víkur bauð 119,5 doll- ara fyrir hvert tonn. Næst kom Fær- eyska skipafélagið með 120 dollara farmgjöld fyrir flök og blokkir en 140 dollara fyrir lausfrystan fisk sem er um 3% af heildinni. Tilboðið var þó ófullnægjandi. Eimskipafélagið bauð 125 dollara fyrir flök og blokkir en 150 dollara fyrir iausfrystan fisk og skipadeild Sambandsins bauð 135 dollara fyrir flök og blokkir en 202,5 dollara fyrir lausfrystan fisk. Haf- skip bauð 137 dollara fyrir flök og blokkir en 178 fyrir lausfrystan fisk. Ekki hefur enn verið tekin ákvörð- un um hvaða tilboði verður tekið. ÓEF T ugur manns handtekinn í fíknief naveislu á ísafirði — tveir úrskurðaðir í sjö daga gæsluvarðhald Tveir menn sitja nú í gæslu- varðhaldi eftir að upp komst um umfangsmikið fikniefnamál á Isa- firði um siðustu helgi, eins og DV skýrði frá í gær. Komu mennirnir tveir til bæjarins á föstudag og bókuöu sig inn á hótelið á Isáfirði. Var afar gestkvæmt hjá þeim. Fylgdist lögreglan með at- buröum alla helgina, þar sem grunur lék á að mennirnir hefðu með sér fíkniefni. Lét lögreglan svo til skarar skríða á sunnudagsmorgun. Var margmenni samankomið á hótelher- berginu, bæði utanbæjar-Æg heima- nenn, og mikil fíkniefnaveisla í gangi. Handtók lögreglan tíu manns sem þama voru staddir. Varð að flytja suma I fangelsi til Bolungar- víkur því fangageymslur fylltust á Isafiröi. Hefur öllum verið sleppt nema mönnunum tveimur sem hafa verið úrskurðaðir í sjö daga gæslu- varöhald, vegna sölu, dreifingar og neyslu á hassi og amfetamíni. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni á Isa- firði. Ekki er enn ákveðið hvort málið verði sent fíkniefnalögreglunni i Reykjavík. -EH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.