Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1984, Page 12
12
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR1985.
Spurningin
Tekur þú lýsi?
Bylgja Guðjónsdóttlr húsmóðir: Já,
ég tek lýsi. Þó ekki í þessu venjulega
fljótandi formi, heldur tek ég lýsis-
pÚlur.
Indriði Arnórsson verkfræðlngur:
Nei, ekki lengur. Eg tók lýsi þegar ég
var strákur en núna tek ég vítamín
og læt það duga.
Atli Orlygsson nemi: Já, ég tek alltaf j
lýsi á morgnana. Það er alveg
nauðsynlegt að taka lýsi vegna þess
að það er svo hollt.
Stefán Sæmundsson nemi: Nei, ég tek
ekki lýsi lengur. Ég drakk of mikið af
því sem bam, þannig aö mér finnst
það vont núna.
Guðrún Mgnúsdóttir húsmóðir: Já, ég
er nýfarin að taka lýsi. Það er hollt
og manni veitir ekki af því þegar
maður er komin á þennan aldur.
Unnur Guðmundsdóttir afgreiðslu-
stúlka: Nei, ég tek sko ekki lýsi. Mér
finnst það ógeðslegt og hef ekki hugs-
að mér að byrja að taka það.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Gagnrýni á val íþróttamanns ársins 1984:
„Að fyllast þjóðarstolti”
tslendingur skrifar:
Að undanförnu hafa hinir ýmsu
„spekingar” ruðst fram á ritvöllinn,
óánægðir með að Asgeiri Sigurvins-
syni hlotnaðist sá heiður aö vera út-
nefndur íþróttamaöur ársins 1984 en
ekki Bjarna Friðrikssyni. Það hefur
verið broslegt að sjá hvernig menn
hafa tjáð sig. Minnst á „þjóðarstolt”,
„hneyksli” og „siðferöilega rangt
kjör”.
Þaö er enginn rökstuöningur hjá
því fóiki, sem hefur skrifað greinar
og lesendabréf, aö benda á að
bronsið hans Bjarna hefði átt að
nægja honum til að verða útnefndur
íþróttamaður ársins, einfaldlega
vegna þess aö Ásgeir Sigurvinsson
vann miklu meira afrek og þaö afrek
sem hann vann er tvímælalaust eitt
það mesta, ef ekki mesta, sem ís-
lenskur íþróttamaður hefur unnið.
Að leiða Stuttgart til sigurs í hinni
erfiðu Bundesligu í fyrsta skipti í 32
ár er frækilegt afrek. Asgeir stóö á
hátindi glæsilegs knattspyrnuferils
og knattspyrnukappinn Karl-Heinz
Rummenigge sagöi þá: „Forráða-
menn Stuttgart geta þakkað Sigur-
; vinssyni að þeir hampa nú meistara-
titlinum.” Sama dag og titillinn var í
höfn í Stuttgart kusu leikmenn í
Bundesligunni Ásgeir knattspyrnu-
mann ársins. Ásgeir fékk 198 atkvæði
en næstur kom Rummenigge með 32
atkvæði.
Við Islendingar eigum að vera
stoltir af að eiga slíkan afreksmann.
Við eigum aö vera eins stoltir af Ás-
geiri og hann er stoltur af að vera Is-
lendingur.
V-Þjóöverjar hafa öfundað Island
af að eiga afreksmann á borð við Ás-
geir og þeir hafa oft óskað þess að
hann væri Þjóðverji en ekki Is-
lendingur.
V-þýska blaöið KICKER, sem er
eitt víðlesnasta íþróttablað heims,
spurði Ásgeir, eftir að hann hafði
verið svo mikið í sviðsljósinu, hvort
hann hefði hug á aö gerast v-þýskur
ríkisborgari til að vera gjaldgengur í
landsliö V-Þýskalands.
Ásgeir hló við þeirri spurningu og
sagöi:
— „Eg er Islendingur og verð allt-
af tslendingur og ég er stoltur af
því.” Blaðið sagði síðan að Ásgeir
ætli aö nota krafta sína fyrir Stutt-
gart og Island í framtíðinni.
Konan sem skrifaði hér lesenda-
bréf á dögunum, sem sagðist hafa
fyllst miklu þjóöarstolti og verið
hreykin af því að vera íslensk þegar
hún frétti að Bjami hefði unniö
bronspening á OL, ætti einnig að
fyllast þjóöarstolti við lestur um-
mæla Ásgeirs. Sú kona sagði einnig í
grein sinni aö Ásgeir væri ekki að
skora mörk fyrir Island í V-Þýska-
landi.
Þaö er ekki rétt hjá henni. Ásgeir
er að skora mörk fyrir Island. Hann
er besti fulltrúi Islands úti í hinum
stóra heimi. Sá Islendingur sem hef-
ur haldiö merki þjóðarinnar hæst á
lofti undanfarin ár og hefur fengið
menn til að fyllast miklu þjóðar-
stolti. Ekki einu sinni heldur dag
eftir dag og ár eftir ár.
Þaö var enginn annar en Ásgeir
sem átti nafnbótina iþróttamaður
ársins 1984 skilið og það þarf enginn
að skammast sín fyrir það.
Ásgeir Sigurvinsson, iþrótta-
maður ársins 1984, í baráttu um
knöttinn vifl Karl-Heinz Rummen-
■990, fyrrum fyrirlifla Bayern.
„Reykingamenn, sýnifl tillitssemi vifl þá sem ekki reykja og virflið lögin"
skrifar ein 13 ára.
Reykingalögin:
„HVAR Æm
HÚN AÐ BORDA?”
EFNAHAGSKREPPAN
OG LAUSN HENNAR
J.R. skrifar:
Hvers vegna fara lífskjör versnandi
á sama tíma og framfarir og fram-
leiðslugeta stóraukast? Hvað er efna-
hagskreppa?
Ef við lítum í kringum okkur kemur í
ljós, að allar þjóðir eru skuldugar við
erlenda banka. Sumar eru svo skuld-
ugar að þjóöartekjur þeirra duga vart
fyrir vöxtum og afborgunum. Þetta
þýðir að þjóðirnar geta ekki haldið
uppi eðlilegum viöskiptum en afleiðing
þess er aukið atvinnuleysi og óeðlilega
hörð samkeppni.
En hver er orsök efnahagskreppu?
Það er eigið fjármagn bankanna
(höfuðstóll). Einstök fyrirtæki og
einstaklingar eiga þátt í að mynda
þennan höfuðstól en bankinn er lang-
stærsti aöilinn. Það er lögmál sem
ríkir milli framleiðslu og fjármagns.
Sem dæmi tökum við 10% af fjármagni
úr umferð (höfuðstóll bankanna) og
það myndi þýða 10% samdrátt.
Ríkið getur frestað vandanum með
því að taka lán en í raun stækkar vand-
inn með hverju láni — höfuöstóll
bankanna vex og biliö milli f jármagns
og framleiðslu eykst.
Hvernig á þá að leysa þennan
vanda? Ef viö ætlum að búa við
stöðugan hagvöxt má enginn eiga
meira fjármagn en hann eyðir. Við
verðum að tryggja að fjármagnið sé í
stööugri hringrás efnahagskerfisins.
Þaö verður að rífa niður höfuðstól
bankanna til þeirra sem mynduðu
hann með of háum vöxtum. Þannig
kemst jafnvægi á aftur. Ríkið á svo að
taka alla bankastarfsemi í sínar
hendur. Þá er hægt að fylgjast með
fjármagnsstreymi í þjóöfélaginu og
koma umframgróða banka, fyrirtækja
og einstaklinga aftur út í efnahagshfið.
68-66-11
I kl. 13 til 15
ISIMA
Guðrún, 13 ára, skrifar:
Mig langar að gera athugasemdir
við grein sem birtist í lesendadálknum
16. þessa mánaðar þar sem Hallur
nokkur var að mótmæla nýsettum
reykingalögum. Sér í lagi þar sem
bannað er að reykja opinberlega.
Þessi lög eru ágæt og skerða ekki
persónufrelsi eins eða neins. Þau eru
ekki aöeins sett til þess að fá fólk til að
hætta að reykja heldur einnig fyrir þá
sem ekki reykja og verða fyrir óþæg-
indum vegna sígarettureyks.
Eg þekki konu sem verður fyrir
miklum óþægindum vegna sígarettu-
reyks. Hún fær óþægindi í háls, augn-
rennsli og sviða í augu. Hún getur
hreinlega ekki verið þar sem reykt er.
Hvemig heldur Hallur að henni líði í
mötuneyti þar sem reykt er? Hvar ætti
hún annars að borða ?
Eg veit einnig af minni persónulegu
reynslu aö reykur getur valdið köfn-
unartilfinningu og ógleði sem reyk-
ingamenn finna ekki.
Reykingamenn, sýniö tillitssemi við
þá sem ekki reykja og virðið lögin.
Hvað er ungbarnaeftirlit?
Móðir skrifar:
Eg, sem móðir þriggja barna, hef
þurft á ungbarnaeftirhti að halda
eins og margir aðrir. En hvað er ung-
barnaeftirlit? „Það þjónar einungis
sprautun fyrir ungbörn og svo er
fylgst með lengd og þyngd barna,”
var svarið sem ég fékk er ég hringdi
á eitt ungbarnaeftirlitið og þurfti að
fá tíma strax fyrir bamið mitt. Mér
var neitaö um tíma og sagt að snúa
mér til heimilislæknisins, sem er
enginn sérfræðingur um ungbörn,
eða barnalæknis, sem tekur niður
pantanir. Sá er auk þess fokdýr,
kostar 270 kr.
Hvað er eiginlega að í heilbrigðis-
kerfinuhér á landi? A ungbarnaeftir-
litið ekki að vera með eftirlit fyrir
ungbörn, eða hvað?