Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Síða 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR
23. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1984.
Sendibfll brann í Múlanum:
„Orðið þungt fyrír
brjósti af reyk"
Álit sænska ráðgjafafyrirtækisins Marson:
ÍSLAND GÆTIRÁÐ-
H) ÁLAMARKAÐNUM
„Þar sem tsland hefur yfirburði í
hagkvæmum framleiðslukostnaði og
jafnframt aögang að stærstu ála-
mörkuðum í Evrópu, Norður-
Ameríku og Japan, getur það orðið
ráðandi álaframleiðsluland í heim-
inum. Lækki verðið er Island eina
landið sem það getur staðist.”
Þetta eru ályktunarorð í skýrslu
sænska ráðgjafafyrirtækisins
Marson sem dr. Sigurði Helgasyni á
Keldum barst fyrir fáum dögum.
Ráðgjafarnir álíta að heita vatnið
hér ráði úrslitum. Þeir segja að ála-
markaðurinn taki við 30.000 tonnum
1985 og framboðið verði að óbreyttu
. 10.000 tonnumminna.
Verð á ál er hliðstætt verði á laxi
og gætu 10 þúsund tonn gefið 1.5—2.0
milljarða í tekjur, gróflega reiknað.
Að áliti sænsku ráðgjafanna er ála-
rækt mjög gróðavænlegt fyrirtæki.
Þeir bera saman álaræktina og laxa-
rækt og segja markaðshorfur vegna
laxaræktar þær að Norðmenn séu að
fylla markaðinn og þegar verð á laxi
lækki muni þeir einir standast sam-
keppni á þeim markaöi, svo fullnægj-
andiverði.
Að sögn Arna Gunnarssonar, sem
er í öðrum af tveim hópum áhuga-
manna um álaeldi hér á landi sem
mest ber á nú, er beðið úrskurðar
landbúnaðarráðherra um það hvort
álastofn fáist fluttur inn frá
Englandi. Hann kvað menn bæði hér-
lendis og erlendis tilbúna til þess að
leggja féíálaeldið.
Til samanburðar við þá tekju-
möguleika sem Marson telur ónotaða
í álaræktinni, er að fiskiskipaflotinn
fékk 6,7 milljarða fyrir afla sinn á
síðasta ári.
-HERB.
„Eg fann lykt, stoppaði bilinn og fór
út. Þá gaus eldur og reykur á móti mér
þegar ég opnaði vélarhlífina,” sagði
Þorsteinn Leifsson bílstjóri í samtali
við DV í gær. Hann var að aka vörum
til Olafsfjarðar fyrir flóabátinn Drang
og var á leiðinni fyrir Múlann kl. rúm-
lega 18 í fyrradag, þegar eldur kvikn-
aði í bíl hans. Þetta er sendibílskálfur
afBenz gerð.
Þorsteinn sagöist ekki hafa ráðið
neitt við eldinn. Honum hefði tekist að
ná í félaga sinn á SendibQastöðinni á
Akureyri gegnum talstöð. Lögreglan
þar hafði siðan samband viö Dalvík og
þaðan komu lögregla og slökkvilið. Var
þá kominn mikill eldur fremst í bilinn.
Meðan Þorsteinn beið eftir hjálp
reyndi hann að ná út tækjum sem voru
laus frammí en vörurnar voru ekki í
hættu af eldinum. „Mér varð orðið
þungt fyrir brjósti af reyk,” sagði
hann „auk þess fékk ég smáblöðrur á
fingur en það er ekki neitt. ”
SendibOlinn er mjög mikið skemmd-
ur. Farmurinn var 3 1/2 tonn af
mjólkurvörum og verður tjónið á þeim
ínetið í dag. Talið er að þær hafi ekki
skemmst mikið.
-JBH/Akureyri
SendibíHinn er illa útieikinn eftir eldinn sem kviknaði i honum i Múianum í
fyrradag. DV-mynd JBH/Akureyri.
Uppsagnir
hjá RARIK
Tíu starfsmönnum hjá Rafmagns-
veitum ríkisins var sagt upp störfum
í gær. I uppsagnarbréfum þeirra, er
undirrituð voru af Sverri Hermanns-
syni iðnaðarráðherra, er m.a. til-
greind sú ástæða að störf viðkom-
andi manna verði lögð niður frá og
með 15. febrúar næstkomandi.
Kristján Jónsson rafmagnsveitu-
stjóri sagði í viðtali við DV í morgun
að ekki væri alls kostar rétt sem
komið hafði fram í blöðum um þetta
mál. Rekstrarstjóra RARIK hefði
ekki verið sagt upp störfum heldur
tilkynnt að starf hans yrði lagt niður
frá ofangreindum tímamörkum.
Hins vegar hefði honum veriö boðið
að vinna út árið hjá fyrirtækinu. Þá
hefði þrem öðrum starfsmönnum
ekki verið sagt upp heldur hefðu þeir
óskaö sjálfir eftir að hætta þegar
þeim hefði verið gerð grein fyrir
þeim breytingum sem gerðar yrðu á
störfum þeirra. Því hefði í rauninni
sex manns verið sagt upp störfum.
I hópi þeirra er hætta hjá RARIK
um miðjan febrúar eru þrír yfir-
menn fyrirtækisins. Uppsagnimar
eru tilkomnar í kjölfar athugunar
sem Hagvangur gerði á rekstri og
stjómskipulagi fyrirtækisins en í
framhaldi af þeim verður tekið upp
nýtt skipulag fyrirtækisins um
miðj an næsta mánuð. -JSS
Norðmenn
hugsaKreml
þegjandi
þörfina
— sjáfréttiraf
njósnamáliTreholts
ábls.4og6
Deiltum
Kodakfilmur
- sjá bls. 5
JónL
stigahæstur
íslenskra
skákmanna
— sjá bls. 3
Meirísnjór
væntanlegur
-sjábls.2
Togaramir
bundnirífjóra
mánuði?
-sjábls.2