Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR1984.
IÓNL.
EFSTUR!
Skáksnillingurinn ungi, Jón L.
Arnason, er nú orðinn stigahæstur
íslenskra skákmanna samkvæmt
nýjustu útreikningum Alþjóða-
skáksambandsins. Hann hefur 2500
alþjóðleg ELO-stig en á eftir
honum koma Friðrik Olafsson meö
2495 stig, Guömundur Sigurjónsson
2470, Margeir Pétursson 2465, Helgi
Oiafsson 2445’og Jóhann Hjartar-
son2415stig.
Friðrik Olafsson stórmeistari
hefur til þessa verið langsamlega
stigahæstur íslenskra skákmanna,
allt frá því að stigareikningar
hófust fyrir um það bil hálfum
öðrumáratug.
Stig eru reiknuð út tvisvar á ári,
1. janúar og 1. júh', og hefur Jón
hækkað um ein 40 stig á aðeins
hálfu ári — vissulega frábær
árangur en þarf þó engan aö undra
sem fylgst hefur með taflmennsku
hans upp á síðkastið. Jón L. Árna-
son tók þátt í 6 sterkum skák-
mótum á seinni helmingi ársins
1983, vann eitt og var ævinlega i
efstu sætum. Hann er nú
alþjóölegur meistari og mun tefla á
Búnaöarbankamótinu sem hefst í
Reykjavík í kvöld og því næst 11.
Reykjavíkurmótinu. -BH.
Flateyri:
Togarinníviðgerð
Frá Reyni Traustasyni, fréttarit-
ara DV á Flateyri.
Gyllir, togari Flateyringa, fór til
viðgeröar á Isafirði vegna bilunar í
togspUi þann 22. janúar. Vonir
standa til að viðgerð taki aðeins 4—
5 daga.
Afli hefur verið tregur hjá togar-
anum síðan í nóvember og mikil
ótíð. Heldur hefur verið skárra hjá
linubátum, en langt að sækja.
-GB.
Matthías Bjamason samgönguráðherra um hallarbyltingu i Hafnamálastofnun:
„Skýrslan er ekkert
til sýnis fyrir þá”
„Við höf um rætt ýmis mál við
Hafnamálastofnun. Það komá hér
athugasemdir við hverja einustu
stofnun og margar þeirra leiða til úr-
bóta.” En hefur skýrsla Ríkisendur-
skoðunar og Hagsýslustofnunar ekki
verið sérstaklega rædd við hafna-
málastjóra? „Nei, skýrslan er ekk-
ert til sýnis fyrir þá,” segir Matthías
Bjamason sjávarútvegsráðherra.
,,0g þaö er algerlega úr lausu lofti
gripið aö einhver verði settur af,”-
sagði ráðherrann einnig. En nú er
lagt til að afgreiðslu frumvarps til
Matthías Bjarnason samgönguráðherra.
nýrra hafnalaga verði flýtt, stöður
yfirmanna Hafnamálastofnunar
auglýstar lausar og tækifærið notað
til þess aö skipta um menn. „Já, en
það er engin stefna af minni hálfu.
Auðvitað verða stöðurnar auglýstar
þegar ný lög hafa tekið gildi en það
veröur ekkert sérstaklega í þessum
tilgangi.”
I skýrslunni kemur fram afar hörð
gagnrýni á stjórnun Hafnamála-
stofnunar. „Eg ræði ekki innihald
þessarar skýrslu,” svaraði ráðherr-
ann.
-HERB.
Aðalsteinn Júlíusson haf namálastjóri um gagnrýni á sig:
„TRÚNAÐARMÁL
HJÁ RÁÐHERRA”
„Eg skil ekki hvaöan þið hafið upp-
lýsingar úr þessari skýrslu. Eg veit
það eitt um hana að hún var afhent
ráðherra sem trúnaðarmál. Þarsem
ég hef ekki séð hana og samgöngu-
ráðherra hefur ekki rætt efni hennar
við mig veit ég ekki um hvað hún
snýst og get ekkert um þetta sagt,”
sagði Aðalsteinn Júlíusson hafna-
málastjóri.
I áliti og tillögum tveggja fulltrúa
Ríkisendurskoðunar og Hagsýslu-
stofnunar frá í maí er stjómun
Hafnamálastofnunar harölega
gagnrýnd, eins og DV skýrði frá í
gær. Þeir leggja til að afgreiðslu
frumvarps til nýrra hafnalaga verði
hraðað og stöður yfirmanna Hafna-
málastofnunar auglýstar lausar.
-HERB.
Aðalsteinn Júlíusson hafnamála-
stjóri.
SÍFELLD ÞJÓNUSTAl
SÍFELLD BÍLASALA
SALURINN
A 3. HÆÐ I FIAT HUSINU
800 FERMETRA SÝNINGARSALUR
/ dag se/jum við m.a:
Austin mini special '79.
Datsun 120 Y '79.
Mazda 616 '78.
Volkswagen Polo '79.
Fiat 127 special '80.
Fiat Panda '82.
Fiat 127 special ‘76.
Fiat 125 P '78.
Bronco pickup '68.
Volkswagen 1300 '72.
Austin Mini 1000 '75.
Audi 100 L S '74.
og margt fleira - Skipti oft möguleg.
Ford Cortina 1600 st. '74.
Mazda 626 '81.
Chevr. Concours '77.
Fiat 131 Mirafori '79.
Fiat 127 special '82.
Fiat 132 1600 '79.
Fiat 125 P '80.
Fiat 125 P '77.
Willys Wagoneer '66.
Volkswagen 1303 '73.
Mercedes Benz 280 S '70.
Volvo 142 '71.
Kjör sem erfitt
er að trúa —
en eru staðreynd
EV—SÉRKJÖR
LÁNUM í 3,6,9 EÐA
JAFNVEL12 MÁN.
NOTAÐIR BILAR í EIGU UMBOÐSINS
Opið frá kl. 9—19 Laugardaga frá kl. 10—17
1929 Egill Vi/hjálmsson hf. 1984
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944