Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Page 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR1984.
Útlönd
Utlönd
Utlönd
Útlönd
Norðmenn hugsa
Kreml þegjandi þörfina
Oryggisráð norsku ríkisstjórnarinn-
ar hélt f und í gær og ræddi þá Treholts-
málið, sérstaklega öryggisráðstafanir
til að koma í veg fyrir að það sama
endurtaki sig. Enn er allt á huldu um
hvaða ráðstafanir ríkisstjórnin 'muni
grípa til en hún mun sennilega bíða
meö sinn mótleik þangað til rannsókn
málsins gefur henni betri heildar-
mynd.
Norska ríkisstjórnin hefur einkum
fimm möguleika til viöbragða:
I fyrsta lagi mjög hörð skrifleg mót-
mæli. I öðru lagi að reka sovéskan
sendiráðsmann úr landi þó svo að sá
hafi ekki haft neitt meö Treholtsmálið
að gera. I þriöja lagi frestun á öllum
heimsóknum og menningarsambandi
milli landanna. I fjóröa lagi frestun á
öllum öðrum samskiptum. I fimmta
lagi aö hætta við ráðgert samstarf um
oliuvinnslu í Barentshafi, þar sem
Norömenn áttu aö leggja til sína
reynslu í olíuleit.
Ef norska ríkisstjórnin ákveður að
reka sovéskan diplómat úr landi er
fyrsti ritarinn í rússneska sendiráðinu,
Stanislav I. Tsjebotok á þunnum ís.
Hann er talinn aöalmaður KGB hér í
Noregi vegna sambands síns við
stjórnmálamenn og æskulýðshreyfing-
ar í Noregi. — Tsjebotok hvarf mjög
skyndilega frá Danmörku 1976,
skömmu áður en dönsk yfirvöld ætluöu
að vísa honum úr landi fyrir ólöglega
starfsemi. Það var vegna þess að hann
vildi fá Ritt Bjærregaard til aö njósna
fyrir sig. Hann bar á góma í fjöl-
miölum í Noregi 1981 þegar norska lög-
reglan óskaði þess að utanríkis-
ráöuneytið vísaði honum úr landi, sem
ekki varðþó af.
Æskulýðssamband Noregs hefur
ákveöið að slita öllum samskiptum viö
sovéska sendiráðiö. I fréttatilkynningu
þar um segir sambandið að það vilji
með því reyna aö koma í veg fyrir að
KGB nái að festa klæmar í unga og
efnilega Norðmenn. Fyrir nokkrum
dögum ákváðu ungkratasamtök það
sama.
Verdens gang, norska blaöið, ýjar að
því í fréttum í morgun að til sé í Noregi
leyniáætlun um að einn maöur eða
kona taki við stjórnartaumum í Noregi
ef löglega kjörin ríkisstjórn landsins
falli frá fyrir einhverjar sakir á
ófriðartímum. Segir blaöið möguleika
á því að Treholt hafi upplýst Rússa um
hver sú manneskja eigi að vera sam-
kvæmt núgildandi áætlun.
-JónEinaríOsló.
FBINIOSNAÐI
UM TREHOLT
Heimildarmenn innan bandarísku
alrikislögreglunnar FBI hafa upplýst
að samskipti Arne Treholts við KGB í
New York hafi fariö allt annað en
leynt. Treholt var undir nánu eftirliti
FBI frá febrúar 1979 til ágúst 1982 eða
þann tíma sem hann starfaöi í sendi-
nefnd Noregs hjá Sameinuðu þjóö-
unum.
Það var fyrir tilstilli norsku öryggis-
lögreglunnar aö FBI fylgdist með Tre-
holt.
Einn starfsmanna FBI segir í sam-
tali við Dagbladet í gær að það hafi
þótt undravert hve stefnumót Treholts
við KGB í til dæmis Central Park hafi
verið lítt dulbúin og því hafi verið leik-
ur einn að gefa honum gætur.
FBI á í fórum sínurn fjölda ljós-
mynda af þessum fundum Treholts og
KGB-manna sem fram fóru undir yfir-
skyni skokks í Central Park. Einnig
liggja fyrir ljósmyndir af Treholt og
KGB-mönnum á veöhlaupabrautum í
New York.
FBI haföi eftirlit meö Treholt úr húsi
í nágrenni byggingar Sameinuöu þjóð-
anna. Staöfest hefur verið að FBI
hleraði síma Treholts, opnaöi öll bréf
til hans á tímabilinu ’79 til ’82 og tók
afritaf þeim.
-PÁíOsló.
Sendiherra Noregs
kallaður heim
Sendiherra Noregs í Sovétríkjunum,
Dagfinn Stenseth, hefur verið kallaöur
heim til Noregs til viöræðna við utan-
ríkisráðuneytið og ríkisstjórnina. Sam-
kvæmt Aftenposten í morgun var þessi
ákvöröun tekin áöur en Arne Treholt
var handtekinn síðastliðinn föstudag.
Sendiherrann mun meðal annars
ræða þrjár væntanlegar heimsóknir
sovéskra ráðamanna til Noregs á
þessu ári. Samkvæmt upplýsingum
Aftenposten er ekki útilokað að einni
eða fleiri þessara heimsókna verði
frestað eða jafnvel aflýst vegna Tre-
holtsmálsins. Heimkall sendiherra
þykir sterk aðgerö og standi hann við í
Noregi lengur en nokkra daga túlkast
þaö í sjálfu sér sem kröftug mótmæli
gegn Sovétstjórninni.
-PÁíOsló.
ÞYRLA REAGANS
NAUÐLENTI
Þyrla með Reagan Bandaríkjafor-
seta innanborðs nauðlenti í flugstöð
flotans í Washington í gær eftir aö
rautt viðvörunarljós hafði kviknaö í
mælaborði og gefið til kynna einhverja
bilun.
Engin alvarleg hætta mun hafa verið
á ferðum en til öryggis var gripið til
annarrar þyrlu til þess að flytja forset-
ann.
Reagan gerði að gamni sínu þegar
hann sté í varaþyrluna: „Þessi er í
góðu lagi, veit ég, því að ég sparkaöi í
dekkintil að gá.”
Sýndu Daginn
eftir í Póllandi
Eitt atríði úr kvikmyndinni,, The DayAfter
Pólska sjónvarpið sýndi í gærkvöldi
hina umræddu kjamorkustríðsmynd
Daginn eftir, en eitt orö í myndinni var
lagað til, svo að Pólver jar gætu blekkst
til aö halda annað um það sem þá var
sýnt.
Það er talið aö um 21 milljón Pól-
verja (Af 36 milljón íbúum landsins)
hafi setið við sjónvarpstækin til að sjá
myndina í gærkvöldi en hún f jallar um
afleiðingar kjamorkuárásar á smábæ
einníKansas.
Snemma í kvikmyndinni sést frétta-
þulur greina frá því að a-þýskt herlið
hafi gert uppreisn gegn Varsjárbanda-
laginu, sem Pólland er aðili að. Það á
að vera einn aðdragandi kjarnorku-
stríðsins, sem myndin greinir frá.
Pólska orðiö fyrir austur
„wschodnio” hafði veriö stytt í
„.. .odnio”, svo að skilja mátti þaö
fyrir „zachodnio”, sem er pólska fyrir
vestur. Mátti þá halda að fréttaþul-
urinn væri að segja frá uppreisn
vestur-þýsks herliðs.
Fyrir sýningu myndarinnar hafði
pólskur dagskrárkynnir veist aö
Bandaríkjunum fyrir að stefna að
hernaðaryfirburðum og sagt að
Washington hefði ekki farið að for-
dæmi Sovétstjórnarinnar, sem heitið
hefði því að verða ekki fyrr til að beita
kjamorkuvopnum.