Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Qupperneq 7
w»pr nAfr/ii, vsHtiíiArrnTPf',3 vo
DV. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR1984.
7
Útlönd
Útlönd
Sdtt/ afturgeng-
inn sauðaþjófur
a pnnsinn
Tvennt úr konungsfjölskyldunni
bresku mun hafa tekið þátt í galdra-
særingum til þess að kveða niður
draug sem gekk aftur á heimili
þeirra, eftir því sem Daily Express
segir.
Blaðið greinir frá því að Michael
prins af Kent og eiginkona hans hafi
kropiö við bænir ásamt kaþólskum
presti og mótmælendapresti sem
stökktu vígðu vatni í hverju herbergi
heimilis þeirra.
Viðkomandi halda því fram að
þarna hafi einfaldlega farið fram
blessun heimilisins en viðhafðir
helgisiðir þykja minna meira á
særingar til þess að hrekja burtu illa
anda, segir blaðið.
Þær sögur ganga af húsinu, sem er
skammt frá Stroud á Vestur-Eng-
landi, að ár hvert gangi þar aftur
draugur jámsmiðs nokkurs sem
hengdur var fyrir 300 árum vegna
sauðaþjófnaðar.
Þingmenn
vildu ekki
launahækkun
Fulltrúar í öldungadeild Bandaríkja-
þings greiddu því atkvæði í gær við af-
greiðslu fyrsta frumvarpsins eftir ára-
mót að hafna 3,5% launahækkun, sem
taka átti gildi 1. janúar, og hækka laun
þeirra úr 69.800 dollurum á ári í 72.243
dollara.
Þessi launahækkun hafði verið af-
greidd meö hægðinni í fulltrúadeildinni
skömrnu fyrir þinghlé í nóvember.
Niðurfelling launahækkunarinnar
tekur aðeins til kjörinna f ulltrúa þings-
ins en opinberir starfsmenn munu fá
sínar hækkanir, eins og gert hafði
verið ráð fyrir upphaflega í frum-
varpinu.
Hitnar í ráðherra
stólunum í Bonn
— vegna uppsagnar Kiesslings hershöfðingja
Það þykir horfa til stjórnarkreppu í
V-Þýskalandi vegna uppsagnar NATO-
hershöfðingjans Giinter Kiessling, en í
dag hefur Die Welt eftir Franz-Josef
Strauss, leiðtoga eins stjórnarflokk-
anna, aö málið krefjist ráöherraskipta
ístjóminni.
Þýska blaðið birtir raunar fréttina
gegn mótmælum Strauss, en ritstjór-
inn segir hana rétt hafða eftir símavið-
tali viö iforsætisráðherra Bæjara-
lands. Var haft eftir Strauss að hann
mundi fús til að taka að sér vamar-
málaráðuneytiö ef Manfred Wörner
neyðist til að segja af sér vegna Kiessl-
ingsmálsins.
Mjög þykir kreppa að Wörner og há-
værar kröfur um að hann segi af sér
vegna þess bráðlætis að hafa vikið
Kiessling frá „fyrir kynvillu” án
nægra sannana þar um. — Hers-
höfðinginn hefur höfðað meiöyrðamál
gegn ráðuneytinu fyrir að nafn hans
hefur veriö bendlað við kynvillu sem
hann sver af sér við helga bók.
I viðtalinu við Strauss er haft eftir
honum að hugsanlega þurfi að skipta
um ráðherra í utanríkismálum og
efnahagsmálum. — Þeim embættum
gegna leiðtogar frjálslyndra, minnsta
stjómarflokksins. Otto Lambsdorf
efnahagsmálaráðherra liggur undir
Leynilegar tækniteikningar af eld-
flaug fyrir Alphaherþotu vestur-þýska
flughersins fundust í stolinni skjala-
tösku, sem skilin hafði verið eftir í
símaklefa í Stuttgart.
Töskunni hafði verið stoliö af starfs-
manni Dornier-flugvélaverksmiðj-
anna þegar hann var á ferö með járn-
brautarlest til Koblenz. Hann var á leiö
ákæm um að hafa þegið mútur fyrir
flokkssjóö frjálslyndra frá Flick-fyrir-
tækjasamsteypunni á síðasta áratug
fyrir undanlátssemi viö beiðni fyrir-
tækisins um skattaívilnanir upp á
hundruð milljóna marka.
Strauss hefur gefið út yfirlýsingu
vegna fréttar Die Welt og segir þar
orðin lögð sér í munn.
til birgöakaupastofnunar hersins í
Koblenz en sú stofnun hef ur legið undir
ámæli fyrir sleifarlag í gæslu
hernaðarleyndarmála.
Fyrr í vikunni fundust í skuröi
pappírar með tölvuskrám yfir kaup
hersins á hergögnum og voro þær frá
sömu stofnun. Skrár þessar átti að
vera búiö að eyðileggja.
LEYNISKJÖL Á GLÁMBEKK
~ Fyrirtæki, einstaklingar
Höfum til leigu vel útbúnar gröfur til snjómoksturs
einnig vörubíla ef fjarlægja þarf snjó eða annað.
KRAFTVERK HF
SÍMI 42763.
Skíða-
kynning
Halldór Matthíasson, skíðagöngugarp-
urinn landskunni, leiðbeinir viðskipta-
vinum um val á gönguskíðabúnaði í
versluninni í dag frá kl. 14—18.
TYROLIA
DACHSTEIN
adidas ^
TOPPmerkin
í jkíöavörum
Öfiíá d Cauc^dayuvK
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKINN 105 REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670