Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Page 11
DV. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR1984.
„Mest spennandi augnablikið þegar embættismenn S.Þ. þökkuðu mér sérstaklega minn þátt igerð haf-
réttarsáttmáians,"segir Guðmundur Eiriksson þjóðréttarfræðingur. DV-mynd GVA.
„Ætlaði alltaf
í alþjóðasamskipti”
—segir Guðmundur Eiríksson, verkf ræðingur
og þ jóðréttarf ræðingur
Guðmundur Eiríksson þjóðréttar-
fræðingur í utanríkisráðuneytinu var
fyrir skömmu kjörinn forseti nýstofn-
aörar Norður-Atlantshafslaxavernd-
unarstofnunar á fundi sem haldinn var
í Edinborg. Það er við hæfi þar sem
Islendingar áttu stóran þátt í að stofn-
un þessari var komið á fót. En hver
skyldi svo vera tilgangur stofnunar
með svona langt nafn?
„Hann er sá aö stuðla með samráði
og samvinnu að vérndun, endurnýjun,
eflingu og skynsamlegri nýtingu laxa-
stofna í Norður-Atlantshafi,” sagði
Guðmundur í samtali við DV.
Það er hlutverk Guðmundar að hafa
yfirumsjón með allri þessari starf-
semi, stjórna fundum og koma fram'
fyrir hönd stofnunarinnar.
Með Islendingum í stofnuninni eru
Bandaríkin, Danmörk, fyrir hönd
Færeyja, Kanada, Noregur og
Efnahagsbandalag Evrópu. Svíþjóð og
Finnland munu gerast aöilar innan
tveggja mánaöa. Guðmundur var
spurður hvort hagsmunir Islendinga
stönguðust á við hagsmuni hinna þjóð-
anna.
„Ef laxinn er veiddur af öðrum,”
sagði hann. „Við viljum að hann sé
tekinn í ám á Islandi eöa sem næst
landi. Tvær þjóðir veiða nú lax í úthafi,
Færeyingar og Grænlendingar, og það
er stefna ríkisstjórnar Islands að láta
draga úr þeim eða stöðva þær.”
— Heldurðu aö það takist?
„Það er auðvitað samráðs- og sam-
vinnuspursmál. Þaö eru allir sammála
um aö koma í veg fyrir ofveiði, en það
er annaö mál hvernig kakan á að skipt-
ast.”
Guðmundur kom til starfa í ut-
anríkisráðuneytinu árið 1977 og annast
þar ráðgjöf um þjóðarétt og gerð milli-
ríkjasamninga fyrir hönd Islands. Þar
áöur vann hann hjá Sameinuöu
þjóðunum, í þeirri deild sem sá um haf-
réttarráðstefnuna. Hann var spurður
hvert væri mest spennandi verkefniö
sem hann hefði fengist við.
„Eg held aö þaö sé gerð hafréttar-
sáttmálans. Eg tók virkan þátt í gerð
hans hjá Sameinuðu þjóðunum og mest
spennandi augnablik starfsins var á
lokafundi 2. nefndar hafréttarráðstefn-
unnar þegar embættismenn þökkuðu
mér sérstaklega minn þátt í gerð
samningsins. Eg átti ekki von á því.”
Guðmundur er ekki einasta lög-
fræðingur heldur hefur hann einnig
BA próf frá heimspekideild Rutgers
háskóla í Bandaríkjunum, að
ógleymdu prófi í verkfræði. Hann var
spurður hverju þetta sætti.
„Ég ætlaði alltaf að fara út í alþjóða-
samskipti, en mér fannst nauðsynlegt
að vera tæknimenntaður líka. Ég er þó
ekki að gera lítið úr lögfræðinni, en ég
ætlaöi mér aldrei að starfa sem verk-
fræðingur.”
— Gefast einhverjar frístundir frá
alþjóðlegri samningagerð?
„Já, ef maður skipuleggur daginn.
Eg er í píanónámi í tónlistarskóla FlH,
ég er í körfubolta og er í stjórn körfu-
knattleiksdeildar KR og svo er ég í
tennis og reyni að hvetja fólk til tennis-
iðkunar,” sagöi Guðmundur Eiríksson
þjóðréttarfræðingur.
Guðmundur er kvæntur Þóreyju
Olafsdóttur félagsráögjafa og sálfræði-
nema og þau eiga tvö börn.
-GB.
Hveragerði:
FIÁRHUNDUR í
VÖRSLU YHRVALDA
—eigandinn vill ekki borga lausnargjald
„Mér er gert að greiða 800 krónur til
að leysa hundinn út og ég er ekki sáttur
við það. Þetta er nytjahundur og ef ég
tjóðra hann hef ég ekki not fyrir
hann.”
Þetta sagöi Guðmundur Þórðarson,
bóndi í Reykjakoti 2 í Ölfusi, í samtali
við DV en fjárhundur Guömundar var
gómaður í Hveragerði á föstudag og er
nú í vörslu yfirvalda þar.
Guömundur sagöist ætla að hafa
samband við lögfræðing til að vita hver
réttur sinn væri, sér þætti vænt um
hundinn og hann vildi ekki missa hann.
Hundahald í Hveragerði er háð leyfi
og að sögn Karls Guðmundssonar
sveitarstjóra er alltaf nokkuð um þaö
að starfsmenn hreppsins fangi lausa
hunda. Aðspurður sagöi Karl að þaö
breytti engu þó að þetta væri sveita-
hundur.
„Það gilda sömu reglur um þá og
aðra hunda sem ganga nú lausir,”
sagöi Karl.
Sú regla gildir í Hverageröi að
eigendur fangaðra hunda geta leyst þá
út tvisvar sinnum, en við þriðja brot er
hundunum lógað. Ekki hefur þó komið
til þess að framfylgja þyrfti þessari
reglu. -GB.
11
CAR RENTAL SERVICE - @ 75
FAST VERÐ - EKKERT KÍLÓMETRAGJALD
SÖLUSKATTUR INNIFALINN í VERÐI
MITSUBISHI MITSUBISHI
COLT GALANT
MITSUBISHI V* CV
GALANT STATION ~
Leitið upplýsinga.
SMIÐJUVECI 44 D • KÓPAVOGI - ICELAND
AÐALSÍMI: 75 400 & 78 660
KVÖLD OC HELGARSÍMI: 43 631 & 46 211
TELEX 2271 IÐN IS
*ags 'wu tawÁsvert* »’|
Gr\sa^a^. * Bacon
* Háóeg'sPV'*,®a> B\óipV'sa
SaÍlŒÍ
ðruggari akstur
á ísiiögðum vegum
Cott grip í brekkum
meö lausum snjó
Stöðuglelkl
í háiku
Góðlr hemlunareiglnleikar
við erflðar aðstæður
GOODYEAR vetrardekk eru gerð úr sér-
stakri gúmmíbiöndu og með mynstri
sem gefur dekkinu mjög gott veggrlp.
GODDYEAR vetrardekk eru hljóðlát og
endingargóð.
r-uiikomin hjölbaröal
Tölvustýrö Jafir
IHEKIAHF
| Laugavegi 170-172 Sirr* 21240