Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Side 15
MPrRAO'VT.AT. w TmnAfTTTTHnW V(T
DV. FOSTUDAGUR 27. JANÚAR1984.
15
Lesendur
Lesendur
Lesendur
] OV Akureifri
Fleiri barnatíma í sjónvarpið
Egill Bjarkason, 7 ára, fékk ömmu
sína tU að skrifa þetta bréf af því hann
kann ekki vel aö skrifa sjálfur:
Viltu birta þetta bréf svo fólkið í
barnatímanum í sjónvarpinu geti lesið
það.
Málið er það að mér finnst vanta
fleiri barnatíma í sjónvarpið. Það
væri til dæmis ágætt að hafa bama-
tíma kl. 6—7 á skóladögum meðan
mamma og pabbi eru að elda kvöld-
matinn og svoleiðis og allir eru orðnir
þreyttir. Svo væri líka gott að hafa
barnatíma kl. 11—12 fyrir hádegi á
laugardögum því þá er svo oft verið að
taka til í húsum og krakkar eru alltaf
fyrir.
Eg á tvo frændur í Ameríku og þar
er mikið af skemmtilegum teikni-
myndum og líka fræðslumyndum fyrir
krakka einmitt þegar mamma og
pabbi em að elda og allt þaö. Þá geta
strákamir líka slappaö af á meðan
þeir eru aö bíða eftir matnum og pabbi
þeirra og mamma fá meiri frið meöan
þaueruað vinna.
I Ameríku er þaö svoleiðis að
skemmtilegar myndir eru oft sýndar
oftar en einu sinni og líka mikið af
gömlum myndum. Ef það væri gert
hér og líka sýndur aftur Páll Vil-
hjálmsson, sem alla langar til að sjá,
held ég ekki að þetta yrði neitt miklu
dýrara heldur en að vera alltaf með
nýtt og nýtt í bamatímanum og stund-
um leiðinlegt. Þaö er alltaf langmest
gaman að heyra skemmtilegar sögur
oft og líka að sjá skemmtilegar mynd-
ir oft, eins og sumar auglýsingar. Svo
væri líka gaman aö sjá Skvamp og
Dúfnabæ oftar.
II"
II
BLAÐBURÐARBARN
VANTAR í HVERFI:
MIÐBÆR-BREKKUGATA
"III
Upplýsingar gefnar á afgreiðslunni,
Skipagötu 13, sími 25013.
11111... ..iuJll
nll
Akureifri
„Þó að ég sé ekki alltaf sammála honum i pólitikinni get ég vel unnt hon-
um vináttu hundsins, "sagði kattaeigandi.
Enn um Albert og tíkina:
Hættið þessum
lióta leik
Kattaeigandi hringdi:
Manni er nú farið að blöskra sú um-
ræða er nú stendur um hinn fallega
hund Alberts Guðmundssonar. Hættið
þessum ljóta leik, dragið kæmna til
baka, í guðanna bænum. Má nú mað-
urinn ekki lengur stofna til vináttu við
hund. Ljótteraðheyra. LeyfiðAlbert
aö halda sínum hundi er stuðlaö getur
að lífshamingju hans. Manni eins og
■ Albert sem er að vasast í pólitíkinni af
jafnmiklum þrótti veitir ekki af vin-
áttu hunds.
Þó ég sé ekki alltaf sammála honum
í pólitíkinni get ég vel unnt honum vin-
áttu hundsins. Hættiö þessari bölvaðri
átthagahundapólitík. Hún er innan-
tómt kjaftæði og af hinu illa.
Hundum í þéttbýli líður hvorki betur
né verr en hundum í dreifbýli. Hið
sama gildir um þingmenn. Stöðvið
þessa hneisu á hendur Albert Guð-
mundssyni.
Á Islandi er vítt til veggja og hátt til
lofts, jafnt í borgum, bæjum og sveit-
um. Nægjanlegt rými er fyrir hunda og
menn til yndis og skemmtunar.
Eg veit ekki betur en tíkin hans Al-
berts sé sómatík og óska henni alls
hins besta.
Góð skemmtun
áSkaganum
Valdimar Leó skrifar:
Mig langar til að koma á framfæri
þökkum til Litla leikfélagsins í Garði
fyrir frábæra skemmtun þann 14. jan-
úar í Bíóhöllinni á Akranesi. Sýndu
þa u þar leikritið Spanskflug una.
Sem góöum frasa sæmir gekk þetta
hratt og örugglega fyrir sig og hvergi
var feilpúst að sjá. Allur leikur var
mjög góður, svo og gervi, enda nægði
manni að sjá sumar persónumar til að
skella upp úr.
Ekki spillti ánægjunni, nema síður
væri, mjög svo lifandi undirleikur
píanista á einu homi sviðsins.
Einkennilegt þykir mér hversu fáir
sóttu sýninguna en ætla má að upp-
setning leikfélagsins Sunnan Skarðs-
heiðar á sama verki fyrir 2 til 3 árum
hafi þar ráðið einhverju um.
En hvað sem því liður þá vom
undirtektir viðstaddra mjög góðar
enda skemmtum við okkur hið besta.
Takk.
Í5VEKW
A ÖLLUM BLAÐSÖLUSTÖÐUM
13 Viðtal Vikunnar
Kannabismaðurinn
færstyttri
greföslufrest
, , ■ . Rætt við
Þórarin Tyrfingsson.
lækni í Vogi
Efnim.a.: „Hassistar hafa möguleika ámeöferð hérheima,”
segir Þórarinn Tyrfingsson, læknir hjá SÁÁ.
AFMÆLISGETRAUIM II
heldur áfram.
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJISHUSINU11 JliHUSINU
OPIÐ i ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 0 i KVÖLD
Þorramatur , í úrvali. Munið okkar Beint úr kjötborðinu á þorranum: JL grillið Grillréttir ailan daginn
vinsælu heitt saltkjöt. Réttur dagsins:
þorrabakka. svið og rófustappa. I kl. 12-14.
EURQCABD
OPIÐ Á MORGUIM,
LAUGARDAG, KL. 9-16.
V/SA
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
JIS
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
i