Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1984, Side 28
DV. FÖSTUDAGUR 27. JANUAR1984.
Kærur á lögreglu í hend
ur ríkissaksóknara
— er ein af tillögum réttarfarsnef ndar
Fáskrúðsfjörður:
Stuttar
veiði-
ferðir
Nema skatt-
svikin 5 millj-
örðum króna?
togara
— vegna óveðurs
á miðunum
Frá Ægi Kristinssyni, fréttaritara
DV á Fáskrúðsfirði:
Skuttogarinn Hoffell landaði á
mánudaginn alls 50 tonnum af
blönduðum fiski eftir 6 daga veiði-
ferð. Þá landaöi skuttogarinn
Ljósafell einnig alls 7 tonnum eftir
sólarhrings veiöiferð.
Báðir togararnir komu inn vegna
óveðurs á miðunum. Það sama
hefur einnig gilt um bátana. Þeir
hafa lítið getaö verið við veiðar
vegna brælu á miðunum.
A meöal þeirra báta er landaö
hafa er vélbáturinn Þorri sem er
á linuveiðum. Hann landaði 5
tonnum eftir um tveggja daga
veiðiferð. Þorri er með 40 bjóö.
Vélbáturinn Sæbjörg, sem er á
trolli, landaði fyrir helgi 11 tonnum
eftir viku útvist. Þá hefur Sólborg-
in einnig landaö en afli hefur verið
tregurhjá henni.
Nokkur loðnuskip eru nú hér á
Fáskrúðsfirði vegna brælu og eins
hefur lítið fundist af loðnu eftir ára-
mótin.
Réttarfarsnefnd hefur skilað áliti
um meðferð mála við þær aðstæöur
þegar bornar eru fram kærur eða um-
kvartanir vegna meints harðræðis af
hálfu lögreglumanna í samskiptum við
almenna borgara. Aliti sínu skilaði
nefndin að beiðni dómsmálaráðherra
og las hann það upp er hann svaraði
fyrirspurn Stefáns Benediktssonar á
Alþingi fyrr í vikunni um kærur á
hendur lögreglumönnum.
Iálitinefndarinnarsegir: „Nefndin
lítur almennt svo á að eigi sé rétt að
mæla fyrir um sérstaka rannsóknar-
hætti að því er varðar sérstaka brota-
flokka eða brot manna úr tilteknum
stéttum, nema einhverjar óvenjulegar
aðstæður séu fyrir hendi. Leggur
nefndin áherslu á að almennt er þaö
helst trygging fyrir vandaðri rann-
sókn aö hún fari þar fram sem fyrir
hendi er kunnátta og þjálfun til slíkra
starfa. Verður eigi talið varhugavert
almennt að rannsókn út af kærum á
hendur lögreglumönnum fari fram hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins. Að sjálf-
sögðu er nauðsynlegt að þeir einir séu
valdir til rannsóknarinnar sem hæfir
eru og eigi hætta á að kunni aö vera vil-
hallir. Æskilegt væri aö lögfræöingar í
þjónustu RLR (deildarstjórar) stýrðu
sjálfir slíkum rannsóknum og er hægt
að koma slíku fyrirkomulagi á án
nokkurra lagabreytinga.”
I niðurlagi álits réttarfarsnefndar
segirsíðan:
„Niðurstaöan verður því sú, aö rétt
sé að umræddar kærur sæti almennum
reglum um rannsóknir brotamála, en
sérstakur rannsóknarlögreglustjóri
yrði skipaður í hvert mál, ef einhver
hætta þykir á að rannsóknarlögreglu-
stjóri eða starfsmenn hans muni verða
vændir um að líta ekki óhlutdrægt á
mál. Einnig gæti komið til greina að
stjóm slikra rannsókna verði í höndum
ríkissaksóknara framar en tíðkast
samkvæmt núgildandi reglum.”
Réttarfarsnefnd var skipuð áriö
1972 og er hlutverk hennar aö endur-
skoða dómstólakerfi landsins á héraðs-
dómstigi og gera tillögur um hvernig
breyta megi málsmeöferð í héraði til
þess að afgreiðsla mála yrði greiðari.
I nefndinni eiga nú sæti Magnús Thor-
oddsen hæstarréttardómari sem er
formaður hennar, Friðgeir Bjömsson
borgardómari, Halldór Þorbjömsson
hæstaréttardómari, Asgeir Pétursson,
bæjarfógeti í Kópavogi, og Jón Steinar
Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaöur.
I svari sínu til Stefáns Benedikts-
sonar vísaði dómsmálaráðherra til
þess hvernig farið væri með kæmr á
hendur lögreglumönnum í öðmm lönd-
um. Sagði hann að sérstök nefnd hefði
verið sett á laggirnar í Danmörku árið
1966 í kjölfar mikilla skrifa í f jölmiöl-
um um kærur á hendur lögreglumönn-
um og rannsókn þeirra hjá lögreglu.
Sagði dómsmálaráðherra að í skýrslu
þeirrar nefndar hefði komið fram að í
flestum Evrópuríkjum sættu kærur af
þessu tagi engri sérmeðferð og annaö-
ist lögreglan sjálf rannsókn á kærum á
hendur lögreglumönnum eins og gerð-
ist á Islandi. I Danmörku hefur réttar-
farslögum hins vegar verið breytt á
þann veg að sérstakri nefnd er falin
rannsókn á kærum á hendur lögreglu-
mönnum. I nefndinni eiga sæti lög-
reglustjóri, fulltrúar lögreglumanna
og fulltrúar úr hópi sveitarstjórnar. I
Bretlandi voru árin 1964 og 1965 settar
sérstakar reglur um meðferð kæra af
þessu tagi, en eftir sem áður er það
lögreglan sjálf sem annast rannsókn
þeirra. ÖEF
- ,
W
Nú er fjör í Lœkjarási!
DV-mynd GVA.
• SKERJAFJÖRÐ II
• HÖFÐAHVERFI
• BLÖNDUHLÍÐ
EINNIG VANTAR OKKUR SENDLA Á AFGREIÐSLU. VINNUTÍMI
KL. 12-18 AÐ FULLU EÐA HLUTA. ATH. ÞARF AD HAFA HJÓL.
AFGREIÐSLA
SÍMI27022
Nema skattsvik á árinu 1983 rúmum
5 milljörðum króna að söluskatts-
svikum undanskildum? Ef rétt er
nemur þessi upphæð 33% af heildar-
tekj um ríkiss jóðs á árinu 1984.
Þessar tölur um skattsvik eru settar
fram í þingsályktunartillögu um út-
tekt á umfangi skattsvika sem þing-
menn Alþýðuflokksins lögðu fram í
fyrradag. Þar er lagt til að ríkisstjóm-
in komi á fót starfshópi til að kanna
umfang skattsvika hérlendis miðað
við upplýsingar um þjóðartekjur í
þjóðhagsreikningum og öörum
opinberum gögnum annars vegar og
upplýsingar um framtaldar tekjur
hins vegar. Starfshópnum er einnig
ætlað aö kanna í hvaða atvinnustéttum
og atvinnugreinum skattsvik eiga sér
helst stað, hvert sé umfang söluskatts-
svika og hvaða leiðir séu vænlegastar
til úrbóta í þessum efnum.
I greinargerö vitna flutningsmenn
tillögunnar í grein eftir Olaf Björnsson
hagfræðing frá árinu 1975 þar sem
segir að við samanburð á þjóöartekj-
um, sem annars vegar eru reiknaðar
samkvæmt upplýsingum um magn og
verðmæti þjóöarframleiðslu og hins
vegar samkvæmt skattframtölum,
komi fram að þaö skakki 10 til 11%
hvað skattframtölin eru lægri en
þjóðhagsreiknitölumar. Ef þetta hlut-
fall er fært fram til þjóöartekna á
árinu 1983 þá hafa skattsvikin á því ári
verið 5 milljaröar og 283 milljónir
króna og em þá söluskattssvikin
undanskilin.
I greinargerðinni er einnig vitnað til
rits sem gefið er út af International
Fiscal Association á síöasta ári þar
sem fram kemur að skattsvik í
Bandaríkjunum nemi 10% af
mögulegum skatttekjum, í Svíþjóð sé
undandrátturinn 10% af þjóðarfram-
leiöslu og í Frakklandi er áætlaö að
23% af tekjuskatti tapist vegna skatt-
svika.
Jóhanna Siguröardóttir, framsögu-
maður tillögunnar, sagði í samtali við
DV að þetta mat byggði á gömlum
tölum en nú væru viðameiri upplýsing-
ar fyrir hendi til að áætla umfang
skattsvika hér á landi. Sagöist hún
hafa aflað sér upplýsinga um aö
skattaeftirlit tæki aðeins til rannsókn-
ar 1 til 2% af skattframtölum eigenda
og fyrirtækja í atvinnurekstri og
stafaði það af því að ekki væri nægi-
lega mikiö af hæfum mannskap til aö
yfirfara skattframtöl fyrirtækja.
ÖEF
HUGMYNDASAMKEPPNIUM
HÖNNUN EININGAHÚSA
Samtök fimm einingahúsa-
framleiðenda hafa ákveðið að hrinda
af staö hugmyndasamkeppni um
hönnun einingahúsa úr steinsteyptum
einingum. Tilgangur samkeppninnar
er að hanna hús sem byggð verði upp
úr einingum sem hægt sé að fjölda-
framleiða og eiga á lager án þess að
það bitni á útlitsgæðum og fjölbreytni
húsanna.
Aætlað er að tilkynna úrslit sam-
keppninnar um miðjan mars þetta ár.
Nýhús ætla síðan að ráöa einhvern
verðlaunahafann til áframhaldandi
þróunar á tillögu sinni.
Að Nýhúsum standa Húseininga-
verksmiðja Páls Friðrikssonar, Loft-
orka, Strengjasteypan, Húsiön og
Brúnás. Þessi fyrirtæki eru víðs
vegarumlandið. -ÞóG