Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Síða 3
DV. ÞKIÐJUmGUR 14. FEBRUAR1984.
3
HREIN SKULDA-
AUKNING1388
MILUÓNIR KRÓNA
Hrein skuldaaukning ríkissjóös i
löngum erlendum lánum mun nema
1388 milljónum króna eöa um 2
prósentum af áætlaðri þjóöarfram-
leiöslu, samkvæmt frumvarpi til
lánsfjárlaga sem nú er til meðferöar
á Alþingi. Frumvarpiö gerir ráö
fyrir aö heildarlántaka á árinu 1984
veröi 4584 milljónir króna en endur-
greiðslur af löngum lánum eru áætl-
aöar 3160 milljónir. Samkvæmt spá
Seðlabankans er áætlaö aö löng
erlend lán verði í lok þessa árs tæp
60% af þjóðartekjum.
I umræðum um frumvarpið á
Alþingi í gær gagnrýndu þingmenn
stjómarandstöðunnar þaö fyrir að
gefa ekki rétta mynd af því hvemig
lántökum rikisins veröi hagaö á yfir-
standandi ári. Eiöur Guönason,
framsögumaður minnihluta fjár-
hags- og viðskiptanefndar, benti á aö
ýmsir liðir væru vanáætlaöir eða
væru utan frumvarpsins eins og til
dæmis f jármagnskostnaöur Sjóefna-
vinnslunnar á Reykjanesi sem er aö
80% í eigu rikissjóös. Eiöur benti
einnig á að rætt hefði verið um að
taka sérstök lán til aö efla innlenda
skipasmiöi, um 150 milljónir króna,
og ennfremur væri fyrirhuguö lán-
taka til aö styrkja stööu út-
gerðarinnar. Þessir Úöir em ekki í
frumvarpi til lánsfjárlaga. Þá var
þaö skoöun minnihluta nefndarinnar
aö lántökur til atvinnuveganna, sem
gert er ráð fyrir að nemi 1 milljarði
króna, séu verulega vanáætlaöar.
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra sagöi að þaö væri stefnu-
mark núverandi ríkisstjómar aö
halda skuldastööunni viö útlönd
innan við 60% af þjóöarframleiöslu
og sagöist vona aö þaö gæti tekist.
En jafnframt sagöi hann þaö sína
skoðun að ef þaö tækist ekki væri
stefna ríkisstjórnarinnar sprungin
og ætti þá aö láta kjósa á ný um nýja
stefnu.
-ÖEF.
Fríiðnaðarsvæði
á Suðumesjum
Karl Steinar Guðnason alþingis-
maður hefur nú endurflutt þings-
ályktunartillögu um aö Framkvæmda-
stofnun verði faliö að gera athugun á
hvort hagkvæmt sé aö koma á fót
fríiðnaðarsvæði við Keflavíkurflug-
völl. Tillaga þessi hefur veriö flutt á
fimm síðustu þingum en ekki verið út-
rædd.
I greinargerð meö tillögunni segir að
varla geti talist hagkvæmt aö bjóöa
erlendum fyrirtækjum sömu kjör og
gert er á öörum fríiðnaðarsvæðum en
full þörf á aö kanna hvort erlend fyrir-
tæki sæju sér hag í að nýta þær sér-
stöku aöstæöur sem hér eru í boði, svo
sem jaröhita, ódýrt rafmagn, vinnuafl
meö tækniþekkingu í sjávarútvegi
aögang að Evrópumörkuöum, sem er
aö mestu tollfrjáls, og legu landsins
mitt á milli Evrópu og Bandaríkjanna.
Dæmi er tekið um fríiðnaöarsvæðið
viö Shannon-flugvöll á Irlandi þar sem
nú starfa um hundrað fyrirtæki sem
veita 4500 manns atvinnu og er fram-
leiðsla þeirra einkum á sviöi rafeinda-
og raftækjasmíöi, efnaiðnaðar og verk-
færagerðar. Fyrirtækium bar er veitt
algjört tollfrelsi aö því er snertir inn-
flutning á hráefnum, vélum og tækjum
til framleiöslunnar og sama máli
gegnir um útflutning fullunninnar
vöru.
Bent er á nokkur dæmi um hvaöa
fyrirtæki gætu séö sér hag í að reka
fyrirtæki á fríiðnaðarsvæði hér á landi.
Japönsk og bandarísk fyrirtæki gætu
séö sér hag í aö reka hér samsetning-
arverksmiðju vegna nálægðar við
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráöherra hélt til Moskvu á
sunnudagsmorgun til aö vera
viðstaddur útför Yuri Andropovs,
forseta forsætisnefndar Æösta ráös
Sovétríkjanna, sem fram fer í dag,
Evrópumarkað og vegna þess toll-
frelsis sem þau nytu gagnvart inn-
flutningi til landa EFTA og Efnahags-
bandalagsins. Ekkert annaö fríiön-
aöarsvæði getur boöiö upp á jaröhita
en hann mætti nýta til framleiöslu á
verömætum krabbadýrum, svo sem
humri og rækju. Þá eru taldir ýmsir
möguleikar í þessu sambandi í raf-
eindaiönaði sem tengdur er sjávarút-
vegi. -OEF.
þriöjudaginn 14. febrúar. I fylgd meö
forsætisráöherra er Guðmundur
Benediktsson, ráöuneytisstjóri í for-
sætisráðuneytinu. Steingrímur Her-
mannsson er væntanlegur heim aftur
ámorgun.
Steingrímur við
útf ör Andropovs
ÖRUGGASTA OG BESTA VALIÐ
MICRA ÖRYGGIÐ FELST í:
- GÆÐUM OG ENDINGU SEM NISSAN VERKSMIÐJURNAR EINAR GETA TRYGGT.
GULLTRYGGÐ ENDURSALA
- VERÐISEM ER ÞAÐ LANGBESTA SEM NOKKUR KEPPINAUTANNA GETUR
B0ÐIÐ Á BÍLUM SEM EIGA AÐ HEITA SAMBÆRILEGIR.
ÞETTA FÆRÐU ÞEGAR ÞÚ KAUPIR NISSAN MICRA:
• Framhjóladrif • Útvarp • Upphituð afturrúða
• 5 gíra kassi • Halogenljós • Þurrka og vatnssprauta á afturrúðu
• Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum • Litað öryggisgler • Tveir baksýnisspeglar.
• 57 hestafla vél • Hlíf yfir farangursskut stillanlegir innan frá
• Tvískipt aftursæti sem hægt er • Vandað áklæði • Skuthurð opnanleg úr
að leggja niður, annað eða bæði • 3ja hraða kraftmikil miðstöð, ökumannssæti
• Quartsklukka alveg nauðsynleg á íslandi • Þykkir hliðarlistar
• Sigarettukveikjari • Geymsluhólf í báðum hurðum • 2ja ára ábyrgð á bíl
• Hanskahólf • Innbyggð öryggisbelti • 6 ára ryðvarnarábyrgð
• Pakkahilla • Blástur á hliöarrúður • Eldri bílar teknir upp í nýja
• Eigin þyngd 615 kg • Þurrkur á framrúðu míbiðtima • Góð lánakjör
LEGGÐU ÞETTA Á MINNIÐ EF ÞÚ GETUR 0G GERÐU SAMANBURÐ
NOKKUR DÆMI UM ÞAÐ HVERNIG
MICRA HEFUR VERIÐ TEKIÐ
HÉRLENDIS SEM ERLENDIS:
DAGBLAÐIÐ VÍSIR.
Fyrirsögn greinar Ómars Ragnarssonar um Nissan Micra
var svona: „Fisléttur. friskur bensinspari sem leynir á
sér." Og Ómar segir ennfremur: ,,. . . mér fannst billinn
betri en ég átti von á, þægilegri og skemmtilegri i bæjar-
akstri en vonir stóðu til og það virðist vera erfitt að fá
hann til að eyða bensini svo nokkru næmi, þótt frisklega
væri ekiö".
AUTO MOTOR SPORT:
„Að meðaltali eyðir NISSAN MICRA aðeins 5,4 I á
hundraöi. Enginn annar bill nálgast MICRA i bensin-
sparnaði."
MOTOR:
„MICRA er eyðslugrennri en nokkur annar bíll sem Motor
hefur reynsluekið og það er þeim mun lofsverðara að
MICRA kemst mjög hratt og er þess vegna bensíneyðsla
bilsins mæld á meiri hraða en venja er til."
QUICK:
„Bensineyðsla er aðeins 4,21 á hundraði á 90 km hraða og
5,91 á hundraði í borgarakstri."
BILEN, MOTOR OG SPORT:
Stór fyrirsögn é grein er fjallaði um reynsluakstur á
NISSAN MICRA var svona: „Nýtt bensinmet — 19,2 km á
lítranum." Það jafngildir 5,2 á hundraði. I greininni segir
m.a.: „MICRA er langsparneytnasti bill sem við höfum
nokkurn tima reynsluekið. Bersýnilega vita NISSAN
framleiðendur hvað bensinsparnaður er þvi sá sem kemst
næst NISSAN MICRA er NISSAN SUNNY 1,5 með 17,2
km á litranum." Það jafngildir 5,8 á hundraði.
AUTO ZEITUNG:
Eftir mikið lof á NISSAN MICRA segir svo: „En einnig hið
mikla innrými á lof skilið. MICRA býður ekki bara öku-
manni og farþega i framsæti upp á frábært sætarými
heldur gildir það sama um þá sem i aftursæti sitja."
NISSAN MICRA DX 249.000,- - NISSAN MICRA GL 259.000,-
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.