Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Síða 4
4
DV. HUÐJUDAGUR14. FEBRUAR1984.
Illa gengur að opna Suðurlandsveg:
Milljónatjón
í vatnselgnum
um helgina
Nú er ljóst aö erfiölega mun ganga
að opna Suðurlandsveg viö Markar-
fljót þar sem hann fór í sundur á þrem-
ur stööum í asahlákunni og rigning-
unni um helgina. I gær unnu vega-
vinnuflokkar baki brotnu viö aö fylla í
60—70 metra skarö sem myndaðist í
vamargarö rétt ofan viö Dímon og
heldur Markarfljóti í skefjum undir
venjulegum kringumstæðum. Skortur
mun vera á grjóti og ööru uppfyllingar-
efni þannig aö vegaviögeröarmenn
veröa að byrja á því aö sprengja grjót
til aö eiga í uppfyllinguna. Munu þessi
vandræöi seinka opnun vegarins sjálfs
því óhugsandi er aö hef ja það verk fyrr
en vamargaröurinn er oröinn vel
þéttur. Á meðan flæöir hluti Markar-
fljóts yfir eyramar og þjóðveginn sem
er illa farinn.
Aftur á móti er viðgerö á Skeiöa- og
Hrunamannavegi lokiö þar sem hann
fór í sundur við Stóru-Laxá og hann nú
fær öllum bílum.
Viðgerð á vegum á Suö-Austurlandi
gekk bærilega í gær og var stefnt aö
því aö opna þá allri umferð í gærkvöldi
eðaídag.
Aö sögn vegaeftirlitsmanna em
skemmdir á vegum á Suður- og Suð-
Austurlandi langt í frá fullkannaðar en
þó er ljóst aö milljónatjón hefur orðið í
vatnselgnum um helgina. Vegavinnu-
flokkar frá Vegageröinni í Austur-
Skaftafellssýslu, Rangárvallarsýslu
og Arnessýslu hafa unnið aö viö-
geröum og er þar í öllum tilvikum um
bráöabirgöaviðgeröir aö ræða. -EIR
Krístjana Milla Thorsteinsson. Einar K. Cuðfinnsson.
TVEIR NÝIR
VARAÞINGMENN
Tveir nýir varaþingmenn, sem ekki
hafa setiö á þingi áöur, tóku sæti á
Alþingi í gær.
Kristjana Milla Thorsteinsson viö-
skiptafræðingur, sem skipaði 5. sætiö á
lista Sjálfstæöisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi, tekur nú sæti Gunnars G.
Schram. Þá tekur Einar K. Guðfinns-
son stjómmálafræöingur sæti
Matthíasar Bjarnasonar, en Einar
skipaöi 3. sætiö á lista Sjálfstæöis-
flokksins í síöustu kosningum. ÖEF
Hluti Markarfíjóts mun halda áfram að fíæða yfir Suðurlandsveginn vestan Markarfljótsbrúar á meðan
vegavinnumenn reyna að loka 70 metra skarði sem kom i varnargarð rétt ofan við Dimon.
DV-mynd Loftur
Frumvarp f rá Sighvati Björgvinssyni um:
15 þúsund króna
lágmarkslaun
„Oheimilt er að greiða lægri laun
fyrir dagvinnu eins og hún er
ákveðin í kjarasamningum aöila
vinnumarkaðarins en svo aö laun til
útborgunar nemi 15 þúsund krónum
á mánuöi og samsvarandi fyrir hluta
úrmánuöi.”
Þannig hljóöar fyrsta greinin í
lagafrumvarpi um lágmarkslaun
sem Sighvatur Björgvinsson, vara-
þingmaöur Alþýöuflokksins, hefur
lagt fram á Alþingi. I frumvarpinu
segir aö meö launum sé hér átt viö
grunnlaun aö viðbættum ákvæðis-,
álags- og bónusgreiöslum, en ekki
greiðslur til launþega vegna útlagðs
kostnaðar viö störf svo sem fæðis- og
fatapeninga eða dagpeninga á ferða-
lögum. Þá skal endurskoða upphæö
lágmarkslauna 1. júní og 1. desem-
ber ár hvert þannig aö kaupmáttur
lágmarkslauna veröi sá sami og
þegar lög þessi taka gildi. 1 frum-
varpinu er einnig gert ráö fyrir að
launagreiðendum veröi óheimilt að
draga af kaupi starfsmanna sinna
hærri fjárhæð en svo aö lágmarks-
launin komi alltaf til greiðslu að frá-
dregnum iðgjaldagreiöslum í
lífeyrissjóö.
1 greinargerö meö frumvarpinu
segir aö frumvarp þetta feli í sér ein-
falda lausn á því vandamáli aö af
ýmsum ástæðum hefur ekki tekist
aö tryggja íslensku verkafólki boöleg
lágmarkslaun í frjálsum samning-
um. Þessi lágmarkslaun nægi engum
nema fyrir einföldustu frumþörfum
þótt ætlast sé til aö stór hópur fólks
þiggi allt aö þriðjungi lægri laun
fyrir störf sín. Orörétt segir: ,,Sú
viðbára aö atvinnurekstur á Islandi,
jafnvel heilar atvinnugreinar, geti
ekki risið undir aö greiða starfsfólki
sinu 15 þúsund króna lágmarkslaun
á mánuði er ekki bara fráleit heldur
stórháskaleg. Atvinnurekstur, sem
getur ekki þrifist nema starfsfólki sé
haldiö neöan fátæktarmarka, á
ekkert erindi hér á landi. Enn síöur
má hann eiga framtíö f yrir sér því aö
sú framtíð byggist á aö hluta þjóöar-
innar veröi haldiö á lífskjarastigi
sem er vansæmandi eöa neyddur til
vinnuþrælkunar til þess aö hafa í sig
og á meö yfirvinnu sem girðir fyrir
allt eölilegt fjölskyldu- og menning-
arlíf.”
-OEF.
I dag mælir Dagfari
í daa mælir Dagfari
í daa mælir Daafari
ÓFRIÐARBÁL UM FRIÐINN
Til ófriöar stefnir vegna friöartil-
lögunnar sem þrettán alþingismenn
hafa lagt fram. Þar veldur mestu,
aö flutningsmönnum láðist aö fá
samþykki þeirra Morgunblaðs-
manna fyrir friðarfræðslu sinni, en
eins og allir vita eru þeir Mogga-
menn sjálfskipaöir löggæslumenn
alls þess, sem með einhverju móti
kann aö tengjast Atlantshafsbanda-
laglnu.
Hefur svo verið um langan tíma,
aö hver sá, sem opnar munninn og
talar um frið án þess að það sé gert
með formerki Nato, er landráðamað-
ur og friðspillir og kaliar yfir sig van-
þóknun ubermannanna á Mogga.
Tillagan um friðarfræðsluna er ef-
laust flutt af góðum hug, og þar eru
saman komin allra flokka kvikindi,
ailt frá Guörúnu Heiga og Gunnari
Schram, Eiði Guðnasyni og Páli Pét-'
urssyni. Mllli þeirra Eiðs og Páls er
heil heimsálfa af skoöanaágreiningi
um varnir og öryggi í þágu friðar, og
Gunnar og Guörún líta sitt til hvorr-
ar áttar í leit að friði og frelsi.
Hitt er engu að síður rétt hjá
Morgunbiaöinu að þessi sakleysis-
lega tii.aga er a’idvana fædd, og
raunar ólíkinda iui. hið mesta. Hún
er píp eins og börnui mundu segja.
Ef tillagan verður samþykkt á
menntamáiaráðherra að taka upp
friðarfræðslu í skólum og dagvistun-
arstofnunum. Það á sem sagt að
taka ómálga börnin, um það leyti
sem þau læra að tala, og kenna þeim
aö strjúka kviðinn og elska friðinn!
Manni skilst að þannig geri flutn-
ingsmenn sér vonir um að uppvax-
andi kynslóð leggi niður rifrildi og
barsmíðar og snúi hægri vanganum
aö viðmælandanum, þegar sá vinstri
er sleginn.
Á máii tillögunnar heitir þetta að
„rækta hæfileika til þess að leysa
vandamál án ofbeidis”. Samkvæmt
því, má búast við því, að börn hætti
að vera hrekkjusvín; að kaupmaður-
inn brosi út undir bæði, þegar kara-
mellum er stolið í sjoppunni; að
strákar lækki rostann í sér með frið-
arstillandi hljóðkútum. Slagsmál
ieggjast af í fylllrium, Guðmundur
joð hættir að reiðast í sjónvarpssal
og skaphundurinn Matthías Bjarna-
son leggst malandi í friðarbæli í
hvert skipti sem honum hleypur
kapp í kinn. Svo ekki sé talaö um
heUu þjóðirnar. israelsmenn faUast
í faðma með aröbum, Rússarnir
leggja uiður vopn i Afghanistan og
tslendingar kyrja faðirvorið þegar
þeir standa i Iandheigisstríði við
Breta.
Vonir standa sem sagt tU að
mannkynið láti af ofbeldi í h verskyns
mynd eftir nokkurra ára skóla-
kennslu um frið'.
TU þess að blessuðum börnunum
verði ljóst, hversu friðurinn er dýr-
mætur, þarf auðvitað að upplýsa þau
um andstæðuna: styrjaldirnar og
ófriðinn. Það þarf að hafa söguskoð-
un á kommúnismanum og Stalin,
atómsprengju Trumans, heims-
valdastefnu Sovétríkjanna, tUurð At-
iantshafsbandalagsins, taka afstöðu
til deUunnar mUli tsraels og araba,
og það þarf að skUgreina skæruhern-
aðinn i E1 Salvador. Það fæst enginn
botn í friðinn nema ófriðurinn sé út-
skýrður.
Til hvers er vopnað varnarlið á ís-
landi, spyrja nemendur sem elska
frið? Og hverju svara kennararnir?
Ætii kommaliðið i kennarastéttinni
sé tUbúið til að útskýra, að Nato hafi
verið og sé styrkasta friðarbandalag
í heimi? Eða á kannske að stunda
heUaþvott á dagvlstunarstofnunum i
anda herstöðvaandstæðinga? Hvers-
konar friðargæsla verður þetta? Ef
alþingi tekur upp á þeim fjanda, að
samþykkja friðarfræðslu i skólum,
er verið að kynda mesta ófriðarbál,
sem um getur í skólamálum lands-
ins. Friðarsinnar, natosinnar og
„gegn her í landi” sinnar munu fara
í hár saman og siást um friðinn. Það
verður friðargæsla í lagi. Dagfari