Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Qupperneq 5
M*or rr atycmm «rrt^an Trmcw • in
DV. ÞRIÐJUEAGUR14 FEBRUAR19B4
5
Helgi styrktur
—fær 35 þúsund krónur á mánuði í allt
að hálft ár frá Tryggingastof nun
„Þaö var ákveðið á fundi hjá okkur
að veita Helga 35 þúsund krónur á
mánuði í styrk í allt að hálft ár,” sagði
Björn Önundarson tryggingalæknir í
samtali viö DV.
Eins og kunnugt er hafa fótleggirnir
á íslenska drengnum Helga Oskars-
syni veriö lengdir um 18 sentímetra í
Kurgan í Síberíu, og er hann nú á för-
um til að veröa lengdur um annað eins
á lærleggjum. Þetta eru tímafrekar
aðgerðir sem taka marga mánuði og
því kostnaðarsamar aö sama skapi.
Hingað til hefur fjölskylda Helga þurft
* aö standa straum að öllum kostnaði en
þessi styrkveiting nú léttir mjög undir.
Það hefur og verið til að auka útgjöldin
að Rússarnir vilja helst að einhver að-
standandi viökomandi sjúklinga sé
með. Faöir Helga, Oskar Einarsson,
dvaldi með honum ytra þegar hann var
lengdur, og móðir hans, Ingveldur
Höskuldsdóttir, fór svo með honum á
síðasta ári þegar hann þurfti að fara í
skoðuntilKurgan.
— Nú er 16 ára gömul íslensk stúlka
einnig á förum til Kurgan í samskonar
aðgerð. Fær hún líka þessa fyrir-
greiðslu?
„Um stúlkuna verður fjallaö á sama
hátt og Helga þegar við höfum fengið
aUa pappíra um hana,” sagði Björn
önundarson.
„Við erum í sjöunda himni og þetta
léttir mikið undir hjá okkur,” sagði
Ingveldur Höskuldsdóttir um styrk-
veitinguna. „Orðalagið „aUt að” á við
það, hvort Helgi verður þarna úti í sex
mánuði. Hins vegar er þetta tímafrek
aðgerð og tekur aö minnsta kosti átta
mánuði.”
-KJÞ
Tillaga Bjama Jakobssonar, formanns Iðju:
Bamabætur felldar
niður hjá hátekjufólki
Með því að afnema bamabætur til
þeirra foreldra, sem höfðu yfir 422
þúsund krónur í árslaun á síðasta
ári, og auka sem því næmi barna-
bætur hjá láglaunafólki, væru um 253
mUljónir króna til ráðstöfunar í
þessu skyni. „Það sem mest er um
vert er aö þetta er hægt aö fram-
kvæma nú þegar,” sagði Bjarni
Jakobsson, formaður Iöju, er hann
kynnti þessar upplýsingar á ráð-
stefnu um fátækt á Islandi sem
félagiö Samhygð gekkst fyrir um
helgina.
Bjami sagði að Kjararannsóknar-
nefnd hefði aflað upplýsinga um
fjölda bama eftir tekjum foreldra og
hjúskaparstöðu og greiddum bama-
bótum tU þeirra á árinu 1983. Um var
að ræða tæplega 65.500 börn að 16 ára
aldri. Tekjur foreldra þessara bama
vom metnar samkvæmt skattálagn-
ingu 1983, framreiknaðar til verðlags
sama árs, miðað við 54% skattvísi-
tölu. Þá kom í ljós að foreldrar meö
aUt að 421 þúsund krónur í árstekjur
vom með helming þessara bama á
framfæri eða aUs 31.825 böm. Hinn
helmingur barnanna var á framfæri
foreldra sem voru með 422 þúsund
krónur eöa meira í árstekjur.
Samanlagðar greiðslur bamabóta
til allra þessara aðUa vom 541 miUj-
ón króna. „Ef við gefum okkur aö
engar bætur yrðu greiddar tU þeirra
sem eru í hærri tekjumörkunum og
færðar tU lágtekjufólks þá er um 253
miUjónir að ræða,” sagöi Bjami
Jakobsson. „Eg fæ ekki séö að þeir
sem hafa um 40—50 þúsund í
mánaðarlaun þurfi á barnabótum aö
halda. Er það þvi að mínu mati rétt-
lætanlegt að um tUfærslur tU þeirra
sem minna hafa veröi að ræða.”
I athugun nefndarinnar kom einnig
fram að um 10% bama aö 16 ára
aldri var á framfæri einstæðra for-
eldra eða 6.602 böm. Jafnframt kom
fram að 98% þessara barna var á
framfæri einstæðra foreldra sem
voru með árstekjur innan viö 422
þúsund krónur eða þaö tekjumark
sem Bjarni Jakobsson miðaði við í
ræðu sinni. -ÖEF.
Tveir starfsmenn Gúmmívinnslunnar taka nýsólað dekk út úr sólningar-
pottinum. DV-myndJBH.
GÚMMÍVINNSLAN
Á AKUREYRIMED
DEKKJASÓLNINGU
Gúmmivinnslan hf. á Akureyri hefur
byrjað sólningu á hjólbörðum undir
vörubUa og stærri véltæki. Þetta er
hefðbundin kaldsólning og mun það í
fyrsta skipti sem sUk framleiðsla á sér
stað utan höfuðborgarsvæðisins.
Gúmmívinnslan var stofnuð 6. júlí
síðastliðinn. Hún er fyrsta fyrirtækið
sem Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar tek-
ur þátt í meö því aö leggja fram hluta-
fé. Aörir stórir hluthafar eru Þórarinn
Kristjánsson, sem á helminginn og er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Möl
og sandur hf. og Dreki hf. á Akureyri,
Bandag hf. í Reykjavík og JLP
ProduktíSvíþjóð.
Gúmmívinnslan er tU húsa þar sem
áður var fjós og hlaöa á bænum Rang-
árvöUum fyrir ofan Akureyri. Tækin
sem þar hafa veriö sett upp eru
amerísk og keypt notuð frá Svíþjóð.
Framleiðslugetan er 1000—1500 dekk á
ári. Við sólninguna starfa nú5 manns.
Seinna er ætlunin að færa verulega
út kvíamar og framleiða bobbinga fyr-
ir troU. TUraunir fara nú fram á hag-
stæðustu samsetningu efnis í þá á til-
raunastofu JLP Produkt í Svíþjóð. A
Akyreyrartogurunum hafa verið próf-
anir undanfama mánuöi í tengslum við
þetta og lofa þær nokkuð góðu. Búist er
viö að þessi þróunarvinna taki að
minnsta kostiár.
Að sögn Þórarins Kristjánssonar,
framkvæmdastjóra Gúmmívinnslunn-
ar er hugmyndin aö nýta úrgangshrá-
efni í bobbingaframleiðslunni. Fram-
leiðsluaðferðin yröi líka mun hagstæð-
ari en nú þekkist. Efnið í bobbingunum
verður einhvers konar blanda af
plasti og gúmmíi.
Til framleiðslu bobbinganna hefur
verið sótt um styrk til Norræna
iðnþróunarsjóðsins, segir Finnbogi
Jónsson, framkvæmdastjóri Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar. Skilyrði
fyrir f járveitingu úr þeim sjóöi er sam-
starf aö minnsta kosti tveggja Norður-
landa.
JBH/Akureyri
Flogið á
barinn í
Broadway
Samstarf er hafiö milli Flugleiða
og veitingahússins Broadway. Það
er fólgiö í því aö gefa íbúum á
landsbyggðinni kost á aö kaupa
„pakka” sem innifelur flugfar-
gjald fram og til baka, hótelgist-
ingu í tvær nætur og aðgöngumiða
á kvöldskemmtun í Broadway með
tvíréttaðri máltíð. A Broadway eru
í gangi söngskemmtanirnar
Manstu lagið og Rokkhátíð ’84.
-KMU
Leiðrétting
Með grein Sigurjóns Valdimars-
sonar í DV í gær, birtist mynd af
sjúkrahúsinu á Isafirði. Myndin sem
átti að birtast var af húsi orkubús
Vestfjarða en fyrir mistök birtist röng
mynd. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökuni
Auglýsingatekjur rásar 2:
Vænkast
áný
— segir f jármálastjóri RUV
„Við lækkuðum taxtann á auglýsing-
um á rás 2 þann 1. febrúar um 20 pró-
sent eða úr níu þúsundum niöur í 7.200
fyrir minútuna og vonum að það hjálpi
upp á viðskiptin,” sagði Hörður Vil-
hjálmsson, fjármálastjóri Ríkisút-
varpsins, aðspurður um hag rásar 2
um þessar mundir.
Sagði Hörður Vilhjálmsson að í
desembermánuði hefðu fengist þrjár
og hálf milljón fyrir auglýsingar á rás
2. Dregið hefði úr auglýsingum í byr j-
un janúar en ræst úr aftur er fór aö líða
á mánuðinn. Sagði Hörður aö frá ára-
mótum hefðu staðið yfir samningavið-
ræður milli útvarpsins og Sambands
auglýsingastofa, sem nú væru í höfn.
Kvað hann slíka samninga væntanlega
leiða til aukinna viðskipta. En hingað
til hefðu margar auglýsingastofur ver-
ið vanbúnar tækjum til auglýsinga-
geröar af því tagi sem hér um ræöir.
„Rás 2 hefurgert meira en að standa
undir rekstrinum þessa tvo mánuði
sem hún hefur verið starfrækt,” sagði
Hörður. „En við þurfum enn að fá
verulegt fjármagn inn upp í þær fjár-
festingar sem gerðar hafa verið, sem
eru samtals 38 milljónir króna. I dreifi-
tæki var fjárfest fyrir 9 milljónir, 18
milljónum var varið í frágang á húsinu
og um 10 milljónum var variö í tækja-
búnað.”
Sagöi Hörður að fyrirhugað væri að
setja upp senda næsta sumar fyrir rás
2 sem þá myndi ná inn í alla landsf jórð-
unga meö haustinu. „Það ætti að
styrkja auglýsingamöguleika okkar
verulega,” sagðifjármálastjórinn.
HÞ
VÖNDUÐ
VAKTÞJONUSTA
\\W/
VARI
S:29399
SÉRÞJÁLFAÐIR ÖRYGGISVERÐIR okkar vakta fyrirtæki, stofnanir,
byggingalóðir, (búðahús, geymsluport ofl. allt eftir þörfum yðar. Ör-
yggisveröirnir eru I stöðugu talstöðvarsambandi við öryggismiðstöð
okkar.
SÉRSTÖK VERKEFNI, ss. peningaflutningar, daggæsla I stórversl-
unum og önnur eftirlitsstörf vel og örugglega af hendi leyst.
Fyllsta trúnaðar gætt.
ÖRYGGISMIÐSTÖÐ OKKAR - hin eina á landinu — er búin tölvustýrö-
um rafeindabúnaði. Miðstöðin starfar allan sólarhringinn og vaktar á
„elektróniskan" hátt stofnanir og fyrirtæki um allt land. Hjálpar-
beiðnir næturvarða og heimaliggjandi sjúklinga berast einnig til ör-
yggismiöstöövarinnar á örfáum sekúndum.
VAKTÞJONUSTA
vi6 erum líka ódýrari
„ÖRYGGI YÐAR ER SÉRGREIN OKKAR“