Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Qupperneq 8
8
DV. ÞRHXFUDAGUR14. FEBRUAR19W.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd > *>'
70 þjóðarleiðtogar við útför Andropovs:
Flestir gestanna vonast
eftir einslegum viðræð-
um við nýja leiðtogann
Fjölmargir af Ieiötogum heimsins
eru komnir til Moskvu til aö vera viö-
staddir útför Yuri Andropovs forseta
og til aö hitta Konstantin Chernenko,
hinn nýja leiðtoga Sovétríkjanna.
Þjóðarleiötogar og aörir fulltrúar
meira en sjötíu þjóöa komu til Moskvu
í gær en ekki eru liðnir nema fimmtán
mánuðir síðan margir þeirra voru þar
í svipuðum erindagjöröum þ.e. til að
vera viðstaddir útför Leonid Brés-
neffs. Margir þeirra hófu þegar í staö
viöræöur viö sovéska ráöamenn.
Utför Andropovs veröur gerö á
Rauöa torginu og aö athöfninni lokinni
munu Chemenko og aörir meölimir
framkvæmdanefndar Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna hitta hina er-
lendu gesti aö máli í Kreml.
Flestir þjóöarleiötoganna gera sér
vonir um að fá tækifæri til aö ræða
einslega viö Chernenko en í hópi þeirra
eru Margaret Thatcher, forsætisráö-
Yuri Andropov verður lagöur til hinstu
hvíldar örstutt frá Lenín.
herra Bretlands, Helmut Kohl, kansl-
ari Vestur-Þýskalands og George
Bush, varaforseti Bandaríkjanna.
Bush og Kohl ræddust viö í gærkvöldi
eftir aö þeir höföu hvor um sig vottað
hinum látna viröingu sína. Vestur-
þýskir embættismenn skýrðu frá því
aö Kohl heföi látið þá skoöun í ljósi viö
Bush aö þaö yröi mjög gagnlegt og
þýðingarmikiö ef unnt yröi aö koma á
f undi milli Reagans Bandaríkjaforseta
og Chernenko hið fyrsta. En Kohl var
eini leiðtogi Vesturlanda sem Andro-
pov hitti á hinum fimmtán mánaöa
langa valdaferli sínum.
Af öðrum þjóöarleiötogum sem
veröa viöstaddir útförina má nefna
Indiru Gandhi, forsætisráöherra Ind-
lands, Wan Li, aöstoðarforsætisráð-
herra Kína, Fidel Castro, leiötoga
Kúbumanna, Babrak Karmal frá
Afganistan og leiötoga Varsjárbanda-
lagsríkja, þeirra á meöal Jaruzelski
frá Póllandi og Ceausescu frá
Rúmeníu.
Er meðlimir framkvæmdanefndar
flokksins söfnuöust viö líkbörur Andro-
povs stóö hinn 52 ára gamli Mikhail
Gorbachov á hægri hönd Chernenkos
og næstur honum stóö síöan hinn 61 árs
gamli Grigory Romanov en þeir tveir
voru fyrirfram taldir h'klegastir til aö
veröa eftirmenn Andropovs. Á vinstri
hönd Chernenkos stóö Nikolai Tikhon-
ov, hinn aldni forsætisráöherra lands-
ins, 78 ára gamall. Fréttaskýrendur
telja aö þessi niðurröðun geti bent til
þess aö sú málamiölun hafi tekist viö
val á eftirmanni Andropovs sem fæhst
í því aö Gorbachov yröi arftaki
Chernenkos sem tæpast mun sitja’
lengi aö völdum sökum þess hversu
gamall hann er, 72 ára.
Minni hætta þykir á svæðisbundinni hungursneyð í dag vegna skjótari alþjóðlegra viðbragða til hjálpar og matargjafar.
Leitar
násistans
Josef
Mengele
Beate Klarsfeld, sem komin er til
Paraguay til aö leita aö Josef Mengele,
lækninum ihræmda frá Auschwitz,
segir að gyöingar í Paraguay telji sig
hafa séð Mengele þar.
Yfirvöld í Paraguay segjast mundu
handtaka Mengele og vísa honum úr
landi ef hann fyndist þar. — Löggæsla
landsins telur þó engar sannanir fyrir
þvi aö „engih dauöans” leynist í Para-
guay.
Klarsfeld, sem á sínum tíma haföi
uppi á Klaus Barbie og haföi áhrif á að
honum var vísað úr Suöur-Ameríku
svo aö Frakkar gátu handtekiö hann,
vill ekki greina frá því, hvenær Meng-
ele á aö hafa sést í Paraguay eöa hvar.
' Rændu
v. 's rr • ' -
Uppreisnarmenn í Súdan gangast
viö því aö hafa rænt sex útlendingum
viö byggingarsvæöi eitt í Suður-Súdan.
Fimm voru starfsmenn fransks
byggingarfyrirtækis, en í þeim hópi
var bamshafandi kona. Sjötti var 18
mánaða gamalt barn hennar.
Þeim var rænt á laugardaginn af
samtökum sem kalla sig frelsisher
súdanskrar alþýöu. Geröu ræningjam-
ir árás á byggingarsvæöiö þar sem
mennimir vom aö störfum. —
Ástralskur flugmaöur var skotinn í
árásinni.
Töluveröar skæmr hafa veriö í
Súdan í vetur. I nóvember síöasta
réöust sömu aðilar á aörar vinnubúöir,
og fyrr í þessum mánuöi vom þrír
olíustarfsmenn drepnir í slíkri árás.
Hungurspámar rættust ekki
Menn vom of svartsýnir í spám sín-
um fyrir áratug síöan um ástandiö í
matvælaframleiöslu heimsins, eftir
því sem fram kemur núna í skýrslu hjá
matvælastofnun Sameinuöu þjóöanna.
— Þykir nú afar fjarlægt aö til al-
menns matarskorts komi nokkurn
tímaájörðu.
Skýrsla þessi var lögð fram vegna
ráðstefnu, sem matvælasérfræöingar
og stjórnarerindrekar sitja á N-Italíu
en hún hófst í morgun.
Kemur fram í skýrslunni aö ekki
hafi ræst spár frá matvælaráðstefnu
1974 um aö fjölgun mannkyns mundi
fara fram úr kornframleiðslu heims
þótt hinsvegar séu milljónir marina
semsvelta.
Komframleiösla hefur aukist og
kombirgöir safnast fyrir og markaðs-
verö á korni tiltölulega lágt. Metkom-
uppskera varárin 1981 og 1982.
Margar þær forsendur sem menn
gáfu sér fyrir þessum framtíöarspám
reyndust ekki á haldgóðum rökum
reistar.
Hættan á stórfelldri hungursneyö á
einstökum svæðum í heiminum þykir
fremur hafa minnkað, svo fremi sem
viðkomandi land vill þiggja erlenda
aöstoð. Alþjóöleg viöbrögð við hjálpar-
beiðnum þykja hafa batnaö.
Arin fram aö 1984 haföi hungurs-
neyð í Asíu veriö mest áberandi í
fréttum en síöan hefur athygli manna
meira beinst að Afríku, þar sem meira
ber á næringarskorti. Afríka er sá
heimshlutinn þar sem flest er svelt-
andi fólkiö. Viröast hungurspámar
helst hafa rætst þar.
4 MILUÓNIR FLÓTTA-
MANNA í AFRÍKU
Um fjórar milljónir flóttamanna
eru taldar vera í Afríku samkvæmt
skýrslum Sameinuðu þjóöanna, þar
sem viökomandi gistiríki þessa fólks
eru talin þurfa 362 milljónir dollara til
aö efla efnahagslíf sitt til þess aö sjá
þessu f ólki f arboröa.
Þessi upphæð er reiknuö út sem
kostnaöur viö 128 áætlanir sem flótta-
mannahjálp Sameinuöu þjóöanna telur
þurfa aö hrinda í framkvæmd til þess
aö gera þetta fólk aö mestu sjálf-
bjarga.
Flóttamannahjálpin býst viö að
verja 155 milljónum doUara til Afríku
þetta áriö sem er töluvert meira en
1983.
Skýrslumar um flóttafólkiö í Afríku
eru unnar tU undirbúnings sérstakri
ráöstefnu í Genf í sumar en þaö er önn-
ur ráöstefnan sem efnt er til út af
flóttafólki í Afríku. Sú fyrri var haldin
1981.
Flest flóttafólk í Afríku er saman
komiö í Súdan og á Afríkuhorninu.
Einnig í Rwanda, Uganda, Zaire Bur-
undiogTanzaníu.
Skýrslurnar eru unnar af hópi sér-
fræðinga sem Sameinuðu þjóöirnar
sendu til fjórtán ríkja í Afríku. Nefni-
lega þeirra ríkja sem vilja vekja
athygli ráöstefnunnar í sumar á
aöstæðumhjásér.
TiUögur þeirra um áætlanir til úr-
bóta gera ráð fyrir vegagerö, brúar-
smíöi, nýjum skólabyggingum, bomn
eftir vatni og eflingu landbúnaöar og
fiskveiöa.
Ein af milljónum flóttakvenna í Afríku, bcrandi barn sitt á bakinu til nýs dvalar-
lands.