Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Side 15
dvȒMgur
Utflutningur hrossa:
Markaður fyrir
góð reiðhross
Vegna þeirrar umræðu sem að
undanfömu hefur átt sér stað um út-
flutning á hrossum er ekki úr vegi að
huga að nokkrum atriðum, sem ekki
hefur verið gaumur gefinn sem
skyldi. Og mætti í því sambandi
varpa f ram nokkrum spurningum.
Ef litið er á hross sem verslunar-
vöru á erlendan markað, af hver ju er
þá ekki reynt að framleiða þá vöru
sem best selst? Og hver er hún?
Hvað reiðhross snertir þá sækjast
útlendingar, og reyndar íslenskir
Sörla frá Sauðárkróki. Þetta eru allt
glæsilegir og góðir hestar og hafa
skilað mjög góöum árangri með
góðum hryssum. Gallinn er sá að
menn hafa ætíð tilhneigingu til að
leiða alls konar merar undir góða
hesta. Og ræktendur er aldrei
nógu harðir í niðurskurði á óæskileg-
um einstaklingum.
Er þaö ekki furðulegt að menn
sem stunda hrossarækt til að fá
söluhæfa vöru, skuli safna að sér
stóði sem þeir vita ekkert hvers virði
ANDRÉSGUÐNASON
STÓRKAUPMAÐUR
A „Af hverju eru smáhross af stærðar-
w gráðunni 136—140 cm, sem veltast áfram
á einhvers konar skeiðgutli, verðlaunuð sem
undaneldisgripir ? ’ ’
sportmenn líka, eftir fallegum tölt-
hestum. Og fallegur tölthestur er
145—150 cm hár, vel reistur,
rennilegur og með lifandi vilja. Af
hverju er reynt með öllum ráðum að
útrýma svona hestum úr íslenskri
ræktun? Af hverju eru smáhross af
stærðargráðunni 136—140 cm, sem
veltast áfram á einhvers konar
skeiðgutli, verðlaunuð sem undan-
eldisgripir?
Af hverju eru menn að kvarta yfir
því að markaður á reiðhrossum til
útlanda fari minnkandi þegar
ræktendur íslenskra hrossa hér hafa
ekki vit á að framleiða söluhæf
hross, en framleiða þess í stað litla
og ljóta lullara, sem enginn vill eiga?
Það hefur sýnt sig að tiltölulega
auðvelt er að framleiða falleg og góð
hross. A liðnum árum hafa afkvæmi
undan góðum hryssum og Herði frá
Kolkuósi svariö sig mjög í ættir aö
hæfileikum og glæsileik. Sama má
segja um Hrafn frá Holtsmúla og
er? Tiltölulega fáar hryssur
stóðbænda eru tamdar. Og þaðan af
síður er það nokkurt metnaðarmál
þessara manna að skepnurnar séu
glæsilegar ásýndum. Ef þessi hross
lullast áfram á einhverjum gangi
öörum en brokki þá halda menn að
þar fari hæfileikahross.
Er það ekki augljóst mál að það er
hagkvæmara fyrir hrossabónda að
eiga 10 fallegar kostamiklar hryssur
en að eiga 100 hryssur, sem ekkert
gefa af sér nema verðlausar
bikkjur?
1 sjálfu sér er ekkert athugavert
við það að settar séu reglur um að
ekki skuli selja hross úr landi undir
lágmarksverði. Hitt er miklu verra
þegar óvandaðir prangarar
eyðileggja markaði með því aö
versla með ónothæfa vöru. En það er
eins og alltaf hafi legið í landi hér að
hrossaverslun lúti ekki sömu
lögmálum og önnur viðskipti.
Hrossaprangarar grobba gjaman
yfir því ef þeim tekst að svíkja
gallagrip inn á saklausan kaupanda.
Hrossabúskapur ætti ekki að vera
lakari búgrein en hver önnur, ef
menn haga sér eftir aðstæðum og
. fylgjast með því hverju neytendur
sækjast eftir, en láta ekki eigin
duttlunga ráða gerðum sínum. Og þó
að hver ræktandi haldi kannski að
hann sé meö besta hrossakyniö er
það þegar allt kemur til alls
kaupandinn sem hefur síðasta oröið i
þeim efnum.
Og að halda því fram, eins og
sumir gera, að það sé enginn
markaður lengur fyrir reiðhross er
hreint bull. Það er og verður um
ókomin ár markaður fyrir falleg og
góð reiðhross bæði hér á landi og er-
lendis. Vandinn er að hafa söluhæfa
vöru á boðstólum. Bændur mætti
sjálfsagt fækka hrossum sínum um
2/3 og myndi samt sá 1/3 sem eftir
væri geta gefið meiri arð en nú er ef
rétt væri að ræktun og búskapar-
háttum staöiö.
15
M
CAR RENTAL SERVICE - ® 75
FAST VERÐ - EKKERT KÍLÓMETRAGJALD
SÚLUSKATTUR INNIFALINN í VERÐI
RBI
MITSUBISHI MITSUBISHI
COLT CALANT
sn&ziT\ - ^
MITSUBISHI
CALANT STATION
Leitið upplysinga. SMIÐJUVECI 44 D - KÓPAVOCI ■ ICELAND
l'l' AÐALSÍMI: 75 400 & 78 660
P%\\ T\\ KVÖLD OC HELGARSIMI: 43 631 & 46 211
J»3WJM F TELEX 2271 IÐN IS
ÚTHAFSRÆKJA
Þeir útgerðarmenn sem hug hafa á föstum viðskiptum á
komandi sumri hafi samband við okkur sem fyrst i sima
95 — 5458 milli kl. 19 og 21.
Rækjuvinnslan Dögun hf.,
Sauðárkróki.
VÖRULAGER
Óseldur vörulager er vandamál. Við
/eysum það og seljum Iagerinn fyrir þig
strax.
MARKAÐSHÚSIÐ,
Sigtúni 3.
Upplýsingar i síma 14733.
ST. JÖSEFSSPITALI
LANDAKOTI
Laus staða
aöstoðarmanns sjúkraþjálfara.
Um er að ræða 1/2 stöðu e.h.
Upplýsingar gefur yfirsjúkraþjálfari í síma 19600 milli kl. 9 og
11 alla virka daga.
Reykjavík, 13. febrúar 1984.
SKRIFSTOFA HJUKRUNARFORSTJÓRA.
HAFNARFJÖRÐUR
ATVINNULOÐIR.
Hjá Hafnarfjarðarbæ er unnið að undirbúningi að byggingu
nýs iönaðar- og þjónustuhverfis við Reykjanesbraut, sunnan
Hvaleyrarholts, sem áformað er að verði byggingarhæft í
næstu framtíð.
Frumtillögur að skipulagi gera ráð fyrir að lóðir í hverfinu
henti fyrir fyrirtæki, sem þurfa stórar lóðir, en einnig er gert
ráð fyrir minni fyrirtækjum.
Ákveðið hefur verið að kanna á undirbúningsstigi áhuga á
byggingu húsnæðis og óskir fyrirtækja varöandi skipulag
svæðisins. Við frágang skipulags verður reynt sem kostur er
að taka tillit til óska fyrirtækja og einstaklinga.
Þeir, sem hafa áhuga á lóðum í hverfi þessu, eru beðnir aö
koma á framfæri fyrir 30. mars nk. upplýsingum um fyrir-
hugaða starfsemi og óskir um lóðastærð á sérstökum eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu bæjarverkfræðings að
Strandgötu 6. Eldri fyrirspurnir ber að endurnýja. Nánari
upplýsingar veitir bæjarverkfræðingur.
Athygli er vakin á því, að hér er ekki um að ræða formlegar
lóðarumsóknir, heldur könnun vegna skipulags.
BÆJARSTJÖRI.