Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1984, Síða 36
36 DV. ÞREXTUDAGUR14. FEBRUAR1904. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Er afmælisveisla Magnusar stoo sem hæst flaug Pétur Einarsson flugmálastjóri ísa/inn og hóf samræður við afmæ/isbarnið. Penni ársins fimmtugur — Magnús Bjarnfreðsson hefur eytt hálfu lífinu ífjölmiðlun Magnús Bjarnfreðsson var út- nefndur penni ársins af DV fyrir skömmu við hátíðlega athöfn. I kjöl- farið fylgdi svo önnur athöfn, ekki minni í sniðum, þegar f jölmiðlaljónið hélt upp á fimmtugsafmælið sitt sl. fimmtudag. Fjöldi manns leit inn hjá Magnúsi enda hefur maðurinn kynnst mörgum þau 26 ár sem hann hefur verið viðloðandi fjölmiðla af öllum stærðum og gerðum. Hann byrjaði sem þulur hjá útvarpinu 1957 og þaðan lá leiðin yfir í frétta- mennsku hjá blöðum og timaritum og loks á sjónvarpið eins og alþjóö ætti að vera kunnugt. Afskipti Magnúsar af bæjar- stjórnarmálum í Kópavogi urðu til þess að hann mátti ekki láta sjá sig á skjánum og hætti því á sjónvarpinu 1976. Síðan hefur hann unnið sjálf- stætt aö ýmsum f jölmiðlaverkefnum og nýbúinn að stofna eigið fyrirtæki á því sviði ásamt öðrum. „Eg hef nóg aö gera,” segir sá fimmtugi. „A meðan maöur hefur gaman af að lesa, skoða og hafa gaman af lífinu situr enginn að- gerðarlaus.” Magnus og eiginkona hans, Guðrún /. Árnadóttir, ásamt barnabarni sinu, Guðrúnu Magneu Arnadóttur, sem kom gagngert frá Blönduósi tilað heilsa upp á afa sinn á afmælinu. Hrukkur í köldu vatni Kvikmyndaleikarinn Paul Newman notar sína eigin aðferð við að halda hrukkunum í skefjum, enda veitir ekki af þar sem maöurinn er orðinn 58 ára gamall. A hverjum morgni dýfir hann höfðinu ofan í skál með ísköldu vatni og er þar eins lengi og andinn leyfir. „Þetta kemur blóðrásinni af stað og hrukkurnarsléttast,” segir kappinn. Dóttirin komheim — eftir allt saman Onefndir foreldrar í Cornwall, Eng- landi, endurheimtu dóttur sína um síðustu helgi. Dóttirin haföi hlaupist að heiman fyrir 10 árum, þá aðeins 14 ára gömul, vegna þess að hún fékk ekki að fara á diskótek. Allir héldu að stúlkan væri ekki lengur í tölu lifenda en í raun hafði hún gifst Ira og á nú með honum tvö böm. Hvetur hún alla unglinga sem snúiö hafa bakið viö fjölskyldum sínum að láta frá sér heyra og sættast. Glynn Wolfe með brúði nr. 26. 75 ára og.... Hefurkvænst 26 sinnum Hann Glynn Wolfe er sagður eiga heimsmetið í fjölda hjónabanda. Fyrrí mánuðinum gekk hann að eiga Christine Sue Camacho, 38 ára og frá- skilda, en sjálfur er Wolfe 75 ára. Hann kvæntist í fyrsta skipti árið 1927 og síðan hafa hjónaböndin komiö og fariö með jöfnu millibili. Það lengsta stóð í fimm ár en það stysta í aðeins 3 daga. Glynn Wolfe segist eiga 40 börn og aðspurður kveðst hann vonast til að nýja konan dugi honum það sem hann á eftir ólifað. Hjónavígslan fór fram í Las Vegas í Bandaríkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.