Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Qupperneq 5
DV. MÍÐVIKÚDAGUR 4. ÁPRÍL Í984. 5 Björgunarbátur Reykjavíkurflugvallar kominn á fíotá SkerjafirOi. DV-mynd S. Björgunarbátur Reykjavíkurf lugvallar leitaði að sokknum báti í Skerjaf irði: Reyndist vera rekald „Lögreglan fékk tilkynningu um sokkinn bát í Skerjafiröi og hún leitaði síöan til okkar og við fórum út á fjörö- inn í björgunarbátnum en sokkni bát- urinn reyndist vera rekald þegar til kom,” sagði Guðmundur Guðmunds- son, slökkviliðsstjóri á Reykjavíkur- flugvelli, í samtali við DV er við spurð- um hann um þetta mál. Björgunarbátur sá sem hér um ræðir er staðsettur á Reykjavíkurflug- velli og er hann af Zodiac-gerð, út- búinn tveimur utanborðsvélum, öðrum gúmmíbjörgunarbáti og ljósavél og er að sögn Guðmundar einkum ætlaður til björgunarstarfa viö flugvöllinn enda ná tvær af brautum vallarins út i sjó. „Við hjálpum einnig öilum sem til okkar leita í nágrenninu eins og til dæmis lögreglunni í tilvikum eins og þessum,” sagði Guömundur. Aö sögn Guömundar er til áætlun i sambandi við öryggismál flugvallarins og almannavama þar sem björgunar- bát þessum er ætlað hlutverk en vandamálið er hins vegar að ekki er til vör fyrir hann eða aðstaða til að ýta honumáflotutanSkerjafjarðar. -FRI. Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæði um bjór: Til umsagnar hjá f jórum samtökum bindindismanna — ekki eðlilegt, segir Stef án Benediktsson einn f lutningsmanna tillögunnar ,,Ég er ansi hræddur um að tillagan fari ekki í gegnum þingiö. Ef svo færi yrði ég hissa,” segir Stefán Benedikts- son, þingmaður Bandalags jafnaðar- manna, um þingsályktunartillögu hans og fleiri um þjóöaratkvæðagreiöslu um hvort leyfð skuli sala á áfengu öli eða ekki. Þingsályktunartillagan var fyrir skömmu afgreidd til allsherjamefnd- ar sameinaös þings og þar varð að ráði að senda hana út til umsagnar nokkurra aðila. Þessir aðilar em SÁA, AA- samtökin, Áfengisvamarráð ríkisins, Áfengisvamarráð Reykjavíkur, Samtök veitinga- og gistihúsaeigenda og Félag starfsfólks í veitingahúsum. „Eg var ekki allskostar sammála þessu. Mér finnst það alls ekki eðlilegt að biðja þessa aöUa um umsögn um það hvort leyfa eigi þjóöinni að greiöa þjóðaratkvæði eða ekki. Þá hefði verið nær aö biöja samtök áhugamanna um jafnan kosningarétt um umsögn,” segir Stefán. Hann segist munu sjá til þess sem fulltrúi í allsherjamefndinni að þetta mál verði ekki svæft þar. Ef umsagnir fyrrnefndra aðila dragast á langinn mun hann kref jast þess að málið verði afgreitt frá nefndinni og verður þá að verða við þeirri kröfu, samkvæmt reglum. Stefán segir ennfremur að á- stæðurnar fyrir því að hann efist um að Alþingi samþykki þjóðarat- kvæöagreiösluna séu að það sé hættulegt i augum þingsins aö afsala sér valdinu í hendur þjóðarinnar og að meö samþykki þjóðaratkvæðis sé í raun verið að viðurkenna jafnan at- kvæðisrétt. ,En maður á aldrei að segja aldrei,” segir Stefán Benediktsson.SþS. Suðureyri: Eldri hjón björg- uðust úr eldsvoða Mikið tjón varð á Suðureyri er ibúöarhús þar brann síðastliðið laugar- dagskvöld. Eldri hjón bjuggu í húsinu. Þau björguðust út er eldurinn kom upp og sakaöi því ekki. Allt innbú þeirra eyðilagðist. Það mun hafa verið vel vá- tryggt. Ibúðarhúsiö er tveggja hæða steinhús með risi. Það var í stofu á annarri hæð sem eldurinn kviknaði. Stofan skemmdist mikið í eldinuin en mestar skemmdirnar á öðrum her- bergjum eru af hita og reyk. jarðhæðinni eru aðal- skemmdirnar vegna vatns og reyks. Svo fljótt magnaöist eldurinn að engu af innbúinu var hægt að bjarga. Meira að segja föt þeirra hjóna eyðilögðust. Er slökkviliöiö kom á vettvang var eldurinn farinn aö teygja sig i þakið. Nokkuð greiölega tókst aö slökkva eldinn og var slökkvistarfi lokið klukkan 23.00 um kvöldið. En eldurinn haf ði komið upp um klukkan 21.25. Hjónin búa nú hjá syni sínum á Suð- ureyri. -JGH. — hús þeirra skemmdist mikið í eldinum k. SERTILBOÐ í tilefni opnunar stofunnar bjóðum við myndatökur með 12 prufum og 1 stækkun (20x25 cm) á _______ kr. 2.500,- ^XuÓSMYNDASTOFA REYKIAVÍKUR ^fRF/SCÖTU 105. Fermingarmyndatökur UPPBODSLAUN FÓGETA OG SÝSLU- MANNA AFNUMIN f jölgað embættismönnum sem þiggja laun samkvæmt ákvörðun kjaradóms Samkvæmt stjómarfrumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi verða launakjör sýslumanna og bæjarf ógeta svo og annarra uppboðs- haldara ákveðin af kjaradómi en uppboðslaun þeirra afnumin strax eða í áföngum. Með sérstöku ákvæði til bráðabirgða er sýslumönnum og bæjarfógetum sem þess óska veittur frestur til ársins 1990 að gangast undir kjaraákvarðanir kjaradóms en þeir sem skipaðir verða i þessar stöður eftir gildistöku laganna fá ekki slíkt val. Uppboðshaldarar ríkisins fá nú þóknun samkvæmt gjaldskrá. Er uppboöshaldara greitt 1% inn- heimtugjald af því sem innheimtist án sölu og einnig 1% af þeirri upphæð sem innheimtist fyrir sölu fasteigna og skipa. Innheimtugjald fyrir sölu lausafjár er frá kaupanda 6% ef veittur er gjaldfrestur og 3% við staðgreiðslu og að auki 4% frá seljanda. I svari fjármálaráðherra við fyrirspurn frá Jóhönnu Sigurðar- dóttur í desember síðastliðnum kom fram aö á fyrstu sex mánuðum síðasta árs námu þessar tekjur uppboðshaldara rikisins tæpum 3 milljónum króna, þar af 1,2 milljónum hjá einu embætti. I þessu frumvarpi er einnig f jölgað þeim embættismönnum sem taka laun samkvæmt ákvörðun kjaradóms og er þar einkum um að ræða þá embættismenn sem eru í efsta launaflokki launakerfis ríkisins og sjálfstæða embættisdómara. Nú ákveður kjaradómur laun ráðherra, hæstaréttardómara, ríkissak- sóknara, ráöuneytisstjóra, biskups, alþingismanna og ríkissátta- semjara. En með þessu frumvarpi bætast í þann hóp rektor Háskólans, lögreglustjórinn í Reykjavík, ríkis- skattstjóri, póst- og símamálastjóri, yfirsakadómari í Reykjavík, yfir- borgardómi, yfirborgarfógeti, tollstjóri í Reykjavík, tollgæslu- stjóri, borgardómarar, borgarfógeti, sakadómarar, héraðsdómarar, rannsóknarlögreglustjóri, flugmála- stjóri, forstjóri Ríkisspítala, orku- málastjóri, rafmagnsveitustjóri ríkisins, vegamálastjóri og sendiherrar. Segir í frumvarpinu að í dómi kjaradóms skuli ákveðið hvenær hann skuli koma til framkvæmda og að hann skuli gilda í eitt ár frá loknum gUdistima siðasta samnings.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.