Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1984, Side 14
14 MEIRA. EN 500 HLEDSUUR CADNICA FÆST í VERSLUNUM UM LAND ALLT NYTSÖM FERMINGARGJÖF shipmate:^ GERVITUNGLA MÓTTAKARI RSSOOO Oruggur og ódýr Greiðsluskilmálar Friörik A. Jónsson h.f. Sklpholti 7, Reykjavík, Simar 14135 - 14340. LÆKKUN! Getum nú boðið gerðina P-811, sem er 4,5 kg vél sem tekur inn á sig heitt og kalt vatn, á að- eins kr. lOÖÖ miðað við staðgreiðslu Betri kjör! Við bjóðum nú afborgun arskilmála, sem eru 1/3 út og afgangurinn á 7 mánuðum Verslunin Borgartúni 20. Jón Páll Sigmarsson lyftingamaður kom, sá og sigraði á íslands- meistaramótinu i vaxtarrækt. Var hann búinn að skera 10 til 15 kg af fitu utan af líkamanum svo að hægt var að sjá allar trefjar i vöðvunum þegar hann hnyklaði þá. Átti Jón hug og hjarta áhorfenda enda var sviðsframkoma hans óvenjulega lif- leg og glettin. OV-myndir Jóhann A. Kristjánsson m-------------i-----► íslandsmeistari i kvennaflokki varð Hrafnhildur Valbjörnsdóttir en þetta er þriðja árið i röð sem hún hlýtur íslandsmeistaratitilinn. Háði hún harða baráttu við Aldísi Arnar- dóttur og hafði betur. Frjálsu pósurnar hjá Hrafnhildi voru sór- staklega skemmtilegar en hún minnti helst á tigrisdýr með fjaður- mögnuðum og þokkafullum hreyf- ingum sínum. ___________________________ DV. MIÐVIKUDAGUR 4. APRlL 1984. íslandsmeistaramótið ívaxtarrækt: Jón Páll stal senunni Það var hörkufjör og dúndrandi stemmning í veitingahúsinu Broadway sunnudagskvöldið 25. mars þegar Vaxtarræktarsamband Islands hélt Is- landsmeistaramótið í vaxtarrækt eins ogDVhefurskýrtfrá. Var húsið troð- fullt út úr dyrum og tóku áhorfendur virkan þátt í keppninni með keppend- um sem voru tuttugu og tveir. Keppt var í sex flokkum, tveimur kvenna- flokkum og fjórum karlaflokkum. Kvennaflokkarnir skiptust við 52 kilóa þyngd og var keppnin mishörð í þeim. I léttari flokknum sigraði Rósa Olafs- dóttir nokkuö auðveldlega en á móti henni keppti Iris Erlingsdóttir, ung og efnileg stúlka. I þyngri kvennaflokkn- um var keppnin hins vegar mjög hörð og voru það þær Hrafnhildur Val- bjömsdóttir og Aldís Amardóttir sem kepptu um fyrsta sætið. Ahorfendur voru ekki á einu máli um það hvor Það lóttist brúnin á Rósu Ólafsdótt- ur þegar úrslitin i kvennaflokki, undir 52 kg, voru tilkynnt en iþeim flokki sigraði hún íris Erlingsdóttur. þeirra væri glæsilegri en Hrafnhildur hreppti Islandsmeistaratitilinn eftir mikil heilabrot dómaranna. Er þettaí þriöja skiptið sem Hrafnhildur veröur Islandsmeistari í vaxtarrækt en hún sigraði einnig í opna f lokknum þar sem Islandsmeistarar Islandsmeistaranna voruvaldir. I karlaflokki, undir 70 kg, voru þátt- takendur flestir eða sjö talsins. Þar var keppnin nokkuö jöfn og tvísýn. Hlutskarpastur þar varö Gísli Rafns- son frá Akureyri en áberandi var hversu þeir norðanmenn höfðu góöum mönnum á að skipa. I öðru sæti lenti Sævar Símonarson. I flokki karla und- ir 80 kg sigraði Sigurður Gestsson auð- veldlega en hann sýndi sérstaklega sterkiega og samræmda vöðvabygg- ingu. Júh'us Ágúst Guömundsson lenti í ööru sæti. Ekki voru allir sáttir við úrslitin í flokki karia undir 90 kg en þar stóð úrslitakeppnin milli þeirra Kára Ellertssonar og Magnúsar Oskarsson- ar. Mun meira samræmi var í vöðva- byggingu Kára og beinabyggingu en hann varð að lúta í lægra haldi fyrir Magnúsi sem var með mun meiri vöðvamassa. Sigmar Knútsson lenti í þriðja sætinu en hann hafði einnig mjög skemmtilega vöðvabyggingu. I þyngsta flokknum, flokki karla yfir 90 kg, voru tveir keppendur. Ann- ar var ungur og efnilegur vaxtarrækt- armaöur, Sigurður Pálsson, og hinn lyftingakappinn frægi, Jón Páll Sig- / flokki karla undir 70 kg vaf keppnin mjög hörð og Jöfn. Hlutskarpastur í flol-knum varð Gísli Rafnsson sem spennir hór bakið, herðarnar og handleggina fyrir óhorfendur. marsson. Þrátt fyrir aö Sigurður væri í mjög góðu formi naut hann sín alls ekki við hliöina á Jóni Páli, sem var ógnvekjandi stór og skorinn. Jón Páll var alveg sérstaklega hress og f jörug- ur á sviðinu en hann naut þess greini- lega þegar áhorfendur trylltust af fögnuöi þegar hann hnyklaði vöðvana í takt við tónlistina og lófatak áhorf- endanna. Jón Páll sigraði auðveldlega í sinum flokki og hann sigraði einnig í opna flokknum. Ekki voru veitt verð- laun fyrir annaö sætið í opna flokknum en líklegast hefði Sigurður Gestsson hreppt Islandsmeistaratitilinn ef Jón Páll hefði ekki komið og stolið senunni. I lok keppninnar sýndi Egyp.tinn Mohamed Makkawy frjálsar pósur en Makkawy er einn fremsti vaxtarrækt- armaður heimsins í dag og hefur hann hlotið marga titla í íþróttagrein sinni. Til dæmis lenti hann í öðru sæti í Mr. Olympiakeppninni síðustu en Mr. Olympiakeppnin er stærsta keppni vaxtarræktarmanna. Mohamed Makkawy sýndi þó ekki það sem marg- ir höfðu vonast eftir því hann var ekki í keppnisformi. Var hann 10 kg yfir keppnisþyngd sinni svo að vöðvar hans voru ekki mjög skornir. Makkawy kom til landsins á vegum Vaxtarrækt- arinnar í Dugguvogi en Guðni Gunn- arsson í Vaxtarræktinni fjármagnaði keppnina og sá að miklu leyti um fram- kvæmdhennar. Jóhann A. Kristjánsson Sigurður Gestsson stóð sig mjög vel á mótinu, varð íslandsmeistari i sinum fíokki og stóð næstur Jóni Páli að öllu atgervi. Magnús Óskarsson sigraði i 90 kg fíokknum eftir harða viðureign við Kára Ellertsson en Magnús var með mun stærri vöðva en Kári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.