Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1984, Side 15
DV. FIMMTUDAGUR 5. APRIL1984.
15
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Blikkljós við gatnamót geta verið hættuleg, segir vegfarandi.
Ökurteisi gagn-
vart dyraverði
áHótelSögu
Kristín Siguröardóttir hringdi:
I allri þeirri dyravarðaumræðu sem
yfir hefur staðið nú undanfarna mán-
uöi langar mig aö leggja orö í belg.
Ég var nú um daginn stödd á Hótel
Sögu og var á leiðinni út. Þetta var um
þaö leyti sem flestir gestir eru á leiö-
inni inn og haföi því myndast nokkur
örtröö fyrir utan auk þess sem fullt var
fyrir innan. Er ég var á leið út heyrði
ég aö þar var fólk aö hreyta ónotum í
dyravörðinn vegna þess að hann vildi
ekki hleypa því inn. Eg var alveg undr-
andi á aö ég skyldi heyra þetta frá full-
orönu fólki og var alveg hissa á því
hvemig dyravörðurinn tók þessu.
Mér finnst rétt aö benda á þaö sem
betur fer og einnig aö þama er hegöun
gesta hússins fyrir neðan allar hellur.
Leikmaður list leit
Richardt Ryel skrifar:
Vorið er komið í kjallarann í Nor-
ræna húsinu. Brosandi mætir þér hlý
og hæversk listakona, Erla B. Axels-
dóttir, og býöur þér innfyrir.
Fyrstu áhrifin frá hinni viöamiklu
málverkasýningu er ylurinn og birtan
sem streymir á móti þér. Heildarblær-
inn er viðfelldinn og persónulegur.
Skapandi listaverk er þaö sem hvet-
ur þig til umhugsunar, örvar hug-
myndaflug þitt og fær þig til að lifa þig
inn í og leita leyndardóma listaverks-
ins.
Þannig eru myndir Erlu. Þær virkja
þig til umhugsunar, á jákvæðan hátt,
fá þig stundum til aö auka eöa bæta
við, brúa eða byggja við það sem þér
finnst ófullgert. . . Þannig fær hún þig
til að taka beinan þátt í listasköpun
sinni.
Um einstakar myndir get ég ekki
dæmt sem listgagnrýnandi, þó staldr-
aði ég lengi við nr. 1 (gullfalleg), nr. 6
(þvílíkir litir) og nr. 27 (hreint augna-
yndi); ef til vill hefur þú sama smekk.
Undir engum kringumstæðum skaltu
neita þér um þá ánægju og upplifun
sem þaö er aö sjá sýningu Erlu.
Blikkljós á gatna-
mótum eru hættuleg
Vegfarandi skrifar:
Eg sem þessar línur rita hef rætt
viö margt fólk og þ.á m. starfsmenn
tryggingafélaga. Allt er þetta fólk
sammála um aö ökuhraðinn, einkum
á Miklubrautinni, aukist gifurlega
eftir að blikkandi ljós eru sett í stað
venjulegra umferðarljósa. Það er
eins og mörgum ökumönnum finnist
þægilegt aö geta haldið áfram yfir
fjölfarin gatnamót á fullum hraöa í
stað þess að þurfa aö stansa við rautt
ljós og bíða eftir grænu.
Þessi breyting er alveg óþörf en
stórhættuleg. Það er ástæðulaust að
ýta undir ökuníðinga að aka á 80 til
120 km hraða og telja sig í rétti á
aöalbrautinni vegna blikkljósanna.
Hverjir þurfa að hraða för sinni svo
mjög síðla kvölds og um nætur að
þeir geti ekki ekið eftir venjulegum
umferðarljósum? Það á að stöðva
þessa vitleysu strax áður en meira
Ult hlýst af. Menn aka ekki í veg f yrir
þessa kappaksturspUta til aö leggja
líf sitt og limi í hættu heldur vegna
þess að þeir misreikna þennan mikla
hraöa.
Það er von mín að þessi blikkljósa-
vitleysa verði aflögð, að minnsta
kosti á mestu umferðargötum borg-
arinnar, eins og t.d. Miklubraut.
FERMINGARGJÖFIN
I AR
Rúm m/útvarpi, klukku, segulbandi,
bókahillu, rúmfataskúffu og dýnu.
EFNI: BEYKI
vtHU IVn. ISf.oUU.
HVÍTLAKKAÐ
VERÐ 15.900.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Húsprýði — Borgarnesi
Húsið — Stykkishólmi
Seria — ísafirði
Vörubær — Akureyri
Höskuldur Stefánsson — Neskaupstað
Þorvaldur og Einar — Vestmannaeyjum
Bústoð — Keflavik
Rúm"-bezta verzlun landsins
INGVAR OG GYLFI
GRENSASVEGI 3 108 REYKJAVIK, SINII 81144 OG 33b30
Sérverzlun með rúm
AFMÆLIÐ 8. APRÍL
TRAB ANT-EIGENDUR:
SKRÚÐAKSTURINN
Á SUNNUDAGINN
DAGSKRÁIN ER ÞANNIG:
1. MENN MÆTI MEÐ TRABANTBlLA SlNA um verður ekid inn í Amturstrccti til hwgri inn í
VIÐ RAUÐAGERÐIKL. 12.30.
Bifreidunum raðað upp og ekið til sýningarhall-
arinnar á HÖFÐABAKKA þar sem bilasýningin
AUTO1984 verður heimsótt.
2. Ekið frá Höfðabakka kl. 14.00 niður Ártúns-
brekku, Suðurlandsbraut, Laugavcg, Lœkjar-
götu, Skólabrú, Fósthússtrati og nokkrum bil-
göngugötuna þar sem þeim veröur raðað í
skeifu.
STUTT AFMÆLISUPPÁKOMA MEÐ ER-
LENDUM GESTUM.
Um kl. 15.00 verður ekið frá Austurstrœti.
Nokkrir lúðraþeytarar og raddmenn góðir
halda uppi fjöri alla leiðina.
KLÚBBURINN SKYNSEMIN RÆÐUR.