Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1984, Blaðsíða 28
28
DV. FIMMTUDAGUR 5. APRIL1984.
Sigurjón Jónsson múrarameistari lést
29. mars sl. Hann var fæddur aö Minni-
Olafsvöllum á Skeiðum, Árnessýslu, 3.
september 1901. Foreldrar hans voru
hjónin Jón Þorleifsson og Sólveig Þór-
arinsdóttir. Siguröur var tekinn í
fóstur ársgamall af hjónunum
Guörúnu Vigfúsdóttur og Siguröi Jóns-
syni. Sigurður lauk sveinsprófi í múr-
araiön 1937, og stundaði hann eingöngu
byggingarvinnu upp frá því. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Vilborg Páls-
dóttir. Eignuöust þau sex börn. Utför
Sigurðar veröur gerö frá Hafnar-
fjaröarkirkju í dag kl. 13.30.
Sigríður Elín Jónsdóttir frá Reyðar-
firöi, Efstasundi 100, veröur jarðsung-
in frá Fossvogskirkju föstudaginn 6.
april kl. 15.
Huida Guðlaug Oskarsdóttir,
Reykjamörk 5 Hverageröi, sem
andaöist í sjúkrahúsi Selfoss þann 31.
mars, verður jarösungin frá
Kotstrandarkirkju laugardaginn 7.
apríl kl. 13.
Minningarathöfn um Hrafn Svein-
björnsson, sem lést af slysförum þann
22. janúar, veröur í Hafnarfjaröar-
kirkju föstudaginn 6. apríl kl. 13.30.
Minningarathöfn um Pétur Sigurö
Sigurösson vélstjóra, Sæviöarsundi 9
Reykjavík, sem lést af slysförum
sunnudaginn 1. mars, fer fram í
Askirkju laugardaginn 7. apríl kl. 14.
Svanhildur Friðriksdóttir, Skúlagötu
68, lést mánudaginn 2. apríl.
Þóra Borg leikkona, Laufásvegi 5, lést
í Landsspítalanum aöfaranótt 4. apríl.
-sem ailir þekkja
Leióandi staöur
BS
PlZZA
HCSIÐ
-sem allir þekkja
Sigríður Oddleifsdóttir, Fellsmúla 5, er
látin.
Björgvin Benediktsson prentari lést í
Borgarspítalanum 3. apríl.
Höskuldur Guðmundsson frá Stræti,
Breiödal veröur jarösunginn frá Foss-
vogskapellu föstudaginn 6. apríl kl.
13.30.
Björn Leví Þorsteinsson húsgagna-
smiðameistari, Höröalandi 6, andaöist
í Borgarspítalanum 4. þ.m.
Sólveit Róshildur Oiafsdóttir lést 26.
mars sl. Hún var fædd í Reykjavík 13.
júli 1900. Foreldrar hennar voru
Þóranna Jónsdóttir og Olafur Olafs-
son. Sólveig giftist Sigurjóni Jónssyni
og eignuöust þau 10 böm. Sigurjón lést
áriö 1947. Utför Sólveigar veröur gerö
frá Bústaðakirkju í dag kl. 13.30.
Ferðalög
Ferðir Ferðafélagsins
um bænadaga og páska
1. 19.-23. apríl, kl. 08.00; Skiðaganga að'
Hlöðuvölium (5 dagar). Gist í sæluhúsi
Ferðafélagsins.
2. 19.-23. apríl, kl. 08.00: Skíðaganga,
Fljótshlíö-Alftavatn-Þórsmörk (5 dagar).
Gist í húsum.
3. 19.-23. apríl, kl. 08.00: SnæfeUsnes-
SnæfeUsjökuU (5 dagar). Gist í húsinu
AmarfeUi á Arnarstapa.
4. 19.-23. april, kl. 08.00: Þórsmörk (5
dagar). Gist í sæluhúsi Fl.
5. 21.-23. aprU, kl. 08.00: Þórsmörk (3
dagar). Gist í sæluhúsi Fl.
Tryggið ykkur farmiða tímanlega. AUar
upplýsingar á skrifstofu Ferðafélagsins,
Oldugötu 3.
Fundir
Fundarboð
Fræðafundur í Hinu íslenska sjóréttarfélagi
verður haldinn miövikudaginn 11. apríl nk. kl.
17 í stofu 103 í Lögbergi, húsi Lagadeildar Há-
skólans.
Fundarefni: Einar Om Thorlacius lög-
fræðingur flytur erindi er hann nefnir: „Um
stööuumboð skipstjóra”. Að loknu framsögu-
erindi veröa almennar umræður.
Fundurinn er öllum opinn og eru félags-
menn og aðrir áhugamenn um sjórétt og sigl-
ingamálefni hvattir til að f jölmenna.
Hárgreiðslu- og
hárskverasveinar
Aríðandi félagsfundur verður á Hverfisgötu
42 í kvöld, fimmtudag, kl. 20.00. Fundarefni:
samningamálin.
Kvenfélag
Bústaðasóknar
heldur fund 9. apríl kl. 20.30 í Safnaðarheim-
ilinu. Þuríður Hermannsdóttir talar um
heUsufæði, rætt verður um sumarferöalagið.
Mætið vel og stundvíslega.
Tilkynningar
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Opið á miðvikudögum og laugardögum frá kl.
13.30-16.00.
FYRIRTÆKJA- OG
STOFNANAKEPPNI
í borðtennis verður haldin helgina 7.-8. apríl í Fossvogsskóla.
Keppt verður í riðlum svo að hverju liði verði tryggðir þrír
heilir leikir.
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp aö banna meistara-
flokksmönnum þátttöku.
Þátttökugjald er kr. 1.500,-
Nánari upplýsingar og skráning: Fyrir kl. 18.00, Kristján í
Kjötborg, sími 14925. Eftir kl. 18.00, Hilmar, sími 25268.
Dregið verður um röð þátttakenda föstudaginn 6. apríl kl.
20.00 í síma 25268.
Víkingur.
í gærkvöldí____________í gærkvöldi
Börnin við kassann
Sjónvarpið á heiöur skilið fyrir að þegar það býöur upp á eina stutta nokkrum mínútum of seint á uppá-
hugsa vel um börnin á miövikudögum mynd með Tomma og Jenna og svo bú- haldssýningu sína og ná aðeins endan-
þegar það hefur útsendingar klukkan ið. Börnin eru búin að bíða hálfan dag- um? Þá er grátið fram yfir seinni
18 og lætur tækin rúlla til 19. Börnin eru inn eftir vinum sinum þegar þeir skjót- auglýsingar. Hvers vegna er ekki hægt
nú einu sinni þakklátasti áhorfenda- ast á skjáinn í nokkrar mínútur og er að sýna syrpu meö Tomma og Jenna,
hópurinn sem lætur sig hafa allt, bara svo horfnir. svona þrjár f jórar myndir í einu.
þaöséekkistillimyndogpíp. Hafa yfirmenn sjónvarps aldrei gert Annað eins er nú gert í þessu sjón-
Aftur á móti svíkur sjónvarpið litla sér grein fyrir hvaða heimilishörm- varpi.
fólkið nær því algerlega á mánudögum ungarfylgjaíkjölfariðef böminmæta -EIR
Menntaskólinn á
Egilsstöðum
Fundur á vegum Nemendafélags Mennta-
skólans á Egilsstöðum, Menntaskólanum á
Egilsstöðum 19. mars 1984 ályktar:
Við nemendur Menntaskólans á Egils-
stöðum skorum á aUt ungt fólk til að velta því
fyrir sér hvort það kjósi sér ekki þennan heim
öðruvisi á mörgum sviðum en hann er. Við
fordæmum þá hugmynd að ekki sé hægt að
lifa á jörðinni án eilífrar hræðslu og ótta við
tortímingu. Við frábiðjum okkur aUt
hemaðarbrölt á Islandi. Viö neitum að viður-
kenna þá þversögn að börn skuU þurfa aö
deyja úr hungri meðan milljörðum króna er
varið til framleiðslu vopna. Við lýsum furðu
okkar á þeirri þögn sem nú ríkir á Alþingi
Islendinga um friðarmál og vonum að hin
mikla umræða síðasta árs, um þau mál, hafi
ekki verið póUtískt tískufyrirbrigði. Við
skorum á alla aö taka afstöðu vitandi það
að valdið er að lokum aUtaf í höndum fjöldans
'ef hann kærir sig um. Afstaða þín getur ráöið
úrslitum.
EIÐFAXI^
GttxfM <*t> PlfAUifi, r:/&«*,'(ÍÚGy'S.&sn'wJú s'rrít.íJtxAbm
’i'- * Fr*?M< ffá
'jr/ívfTí '/j M'rxrXft'&vtfii <)ti o?!
Eiðfaxi
3. tbl. 1984 er kominn út. Þar er aö finna haf-
sjó af fróðleik um hestamennsku. Maja
Loebell ritar um þá erfiðleika sem plaga
tamningamenn við þjálfun hrossa. Jón
Sigurðsson í SkoUagróf ritar um hvernig sjá
megi reiðhestsefni í folaldi. Eyjólfur Isólfsson
ritar um hlýðniæfingar. Sigbjörn Björnsson
ritar um afrekshestinn Frúar-Jarp. Ingimar
F. Jóhannsson ritar um Baidvin Einarsson
söðlasmið. Knúið er dyra hjá Sigfinni í Stóru-
lág og einnig eru fleiri smærri fréttir sem
varða hestamenn.
Neskirkja
Föstuguðsþjónusta í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.00.
Sr. FrankM. HaUdórsson.
Æfingatímar
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur fengið að-
stöðu til inniæfinga í Tranavogi 1. Hefur þar
verið komiö fyrir netum tU að slá í og sett upp
Util púttbraut.
Aðgangur verður ókeypis en kylfingar
þurfa sjálfir að koma með bolta og kyUur.
Opið verður þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
16—22, laugardaga kl. 10—16 og sunnudaga kl.
13-19.
Siglingar
Áætiun Akraborgar
Frá Akranesi Frá Reykjavík
j Kl. 8.30 Kl. 10.00
Kl. 11.30 KÍ. 13.00
Kl. 14.30 Kl. 16.00
Kl. 17.30 Kl. 19.00
HULL/GOOLE:
Jan ROTTERDAM: 2/4,16/4,30/4.
Jan ANTWERPEN: 3/4,17/4,1/5.
Jan HAMBORG: 4/4,17/4,2/5.
Jan HELSINKI/TURKU: 6/4,19/4,4/5.
Hvassafell LARVIK: 30/3,25/4.
Francop GAUTABORG: .. 28/3 , 9/4,23/4, 7/5.
Francop KAUPMANNAHÖFN: .29/3, 10/4,24/4, 8/5.
Francop SVENDBORG: . 30/3,11/4,25/4,9/5.
Francop AARHUS: .31/3,12/4,26/4,10/5.
Francop FALKENBERG: .31/3,13/4,27/4,11/5.
Helgafell 12/4.
Arnarfell 23/4.
„SHIP” GLOUCESTER, MASS.: 10/5.
Jökulfell
Skaftafell HALIFAX, CANADA: 25/4.
Skaftafell 26/4.
90 ára er í dag, fimmtudaginn 5. apríl,
Meyvant Sigurðsson frá Eiði. Hann
tekur á móti gestum í Domus Medica í
dag milli kl. 16—19.
Sölustaðir minningarkorta
Hjartaverndar
Reykjavík:
Skrifstofa Hjartaverndar, Lágmúla 9,3. hæð.
Reykjavíkurapótek, Austurstræti 16,
Skrifstofa DAS, Hrafnistu,
Dvalarheimili aldraðra, Lönguhlíö,
' Garðsapótek, Sogavegi 108,
Bókabúðin Embla, Völvufelli 21,
Gítartónleikar
á Akranesi
Gítartónleikar Símonar Ivarssonar, sem vera
áttu í Fjölbrautaskólanum á Akranesi sl.
sunnudag, verða kl. 21.00 fimmtudaginn 5.
apríl í Fjölbrautaskólanum. A efnisskránni
eru klassísk verk, m.a. eftir Tarrega, Turina,
Albeniz o. fl. og einnig flamencotónlist.
Þungarokk í
Flensborg
I kvöld.f fimmtudaginn 5. apríl, halda hljóm-
sveitirnar Drýsill, Centaur og Lizard tónleika
í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 21.00. Miðaverð er 80 kr. fyrir
NFF félaga og 100 kr. fyrir aðra.
Minningarspjöld
Tónleikar
Árbæjarapótek, Hraunbæ 102 a,
Bókabúð Glæsibæjar, Álfheimum 74,
Vesturbæjarapótek, Melhaga 20—22,
Kirkjufell, Klapparstíg 27.
Hafnarfjörður:
Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu 31,
Sparisjóður Hafnarf jarðar, Strandgötu 8—10.
Keflavík:
Rammar og gler, Sólvallagötu 11,
Samvinnubankinn, Hafnargötu 62.
Kópavogur:
Kópavogsapótek, Hamraborg 11.
Akranes:
Hjá Sveini Guðmundssyni, Jaöarsbraut 3,
og Kristjáni Sveinssyni, Samvinnubankan-
um.
ísafjörður:
Póstur og sími.
Siglufjörður:
Verslunin Ögn.
Ökuferðin
endaði á
girðingunni
Lögreglan á Selfossi hafði í nótt hendur
í hári drukkins ökumanns sem stoliö
hafði bil á Stokkseyri og ætlað á honum
til Reyk javíkur.
Lögreglunni bárust fréttir um ferða-
lagið og fór að svipast um eftir bilnum.
Fannst hann skömmu síðar á Eyrar-
bakka en þar hafði ökuferðin endað á
girðingu. ökumaðurinn var handtek-
inn og fékk hann að sofa úr sér vímuna
í næsta fangelsi, sem er Litla-Hraun.
-klp
Þyrlafrá VLsækir
sovéskan sjómann
I nótt barst Slysavarnafélagi Islands
beiðni um aðstoö frá sovéska skuttog-
aranum Plunge sem var á veiðum um
240 sjómílur suðvestur af Reykjanesi.
Var alvarlega veikur maður um borð í
togaranum og óskaði skipstjóri hans
eftir að þyrla flytti hann á sjúkrahús á
Islandi.
Rétt fyrir klukkan níu í morgun fór
svo þyrla frá varnarliðinu í loftið og
með henni eldsneytisflugvél. Er von á
vélunum aftur til baka einhvem tím-
ann eftir hádegi í dag.
-kip
Ég hef því miður gleymt að kaupa
kerti fyrir kertaljósakvöldverðinn
okkar...