Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1984, Síða 35
DV. FIMMTUDAGUR 5. APRIL1984.
35
=1
Utvarp
Fimmtudagur
5. aprfl
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „LitrikurogsérkennilegurSvii
— Fabian Mánson” eftir Fredrik
Ström í endursögn og þýöingu
Baldvins Þ. Kristjánssonar sem
byrjar lesturinn.
14.30 A frivaktinni. Sigrún Siguröar-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Siðdegistðnleikar. Siegfried
Kobiiza leikur á gítar spánska
Flamingodansa / Antonin Kubalek
leikur á píanó meö Vaghy-kvart-
ettinum Konsertínu eftir Leos
Janacek / Elly Ameling syngur
Fjögur söngljóð eftir Erik Satie.
Dalton Baldwin leikur meö á
pianó.
17.10 Siðdegisvakan.
18.00 Af staö. meö Tryggva Jakobs-
syni.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 VeÖurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Siguröur Jónsson
talar.
19.50 Viö stokkinn. Stjómendur:
Guölaug María Bjamadóttir og
MargrétOlafsdóttir.
20.00 Leikrit: „Brunnur dýrling-
anna” eftir John M. Synge. Þýö-
andi: Geir Kristjánsson. Leik-
stjóri: Þorsteinn Gunnarsson.
Leikendur: Heigi Skúlason, Þóra
Friðriksdóttir, Sigurður Karlsson,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Lilja
Þórisdóttir, Róbert Amfinnsson,
Edda Backman, Jóhann Siguröar-
son og Pálmi Gestsson.
21.35 „Fjérir síðustu söngvar” eftir
Richard Strauss. Jessye Norman
syngur meö Gewandhaus-hljóm-
sveitinni í Leipzig; Kurt Masur
stj. — Jón Orn Marinósson kynnir.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Lestur Passíu-
sálma. (39).
22.40 Kotra. Stjórnandi: Signý Páls-
dóttir (RUVAK). (Þátturinn
endurtekinn n.k. mánudag kl.
11.30).
23.10 Siðkvöld. með Gylfa Baldurs-
syni.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Rás 2
Fimmtudagur
5. aprfl
14.00—16.00 Eftir tvö. Stjómendur:
Jón Axel Olafsson og Pétur Steinn
Guðmundsson.
16.00-17.00 Rokkrásin. Stjórnend-
ur: Snorri Skúlason og Skúli
Helgason.
17.00—18.00 Einu sinni áður var.
Stjórnandi: Bertram Möller.
Föstudagur
6. aprfl
10.00—12.00 Morgunþáttur. Stjóm-
endur: Páil Þorsteinsson, Asgeir
Tómasson og Jón Olafsson.
Sjónvarp
Föstudagur
6. aprfl
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýslngarogdagskrá.
20.40 A döfinni. Umsjónarmaöur
Karl Sígtryggsson. Kynnir Bima
Hrólfsdóttir.
20.55 Skonrokk. Umsjónarmaöur
Edda Andrésdóttir.
21.25 Kastljós. Þáttur um innlend og
erlend málefni. Umsjónarmenn:
Einar Sigurösson og Páll
Magnússon.
22.25 Töframaðurinn Houdini. (The
Great Houdinis). Bandarísk
sjónvarpsmynd frá 1976.
Leikstjóri: Meiville Shavelson.
Aöalhlutverk: Paul Michael
Glaser, Vivian Vance, Maureen
O’Sullivan, Ruth Gordon og Bill
Bixby. Myndin er um sjónhverf-
ingamanninn Harry Houdini og
æviferil hans. Meö þrotlausu striti
og kappseml öðlast Houdini loks
heimsfrægð, eínkum fyrir að leysa
sig úr hvers konar fjötrum. Síðar
beinist athygli hans aö eilífðar-
málunum og starfsemi miöla og
entist sá áhugi honum til æviloka.
Þýöandi Kristrún Þóröardóttir.
00.00 Fréttir i dagskrárlok.
Útvarp Sjónvarp
» Útvarpkl.20:
Brannur dýrlinganna
— útvarpsleikrit eftir John M. Synge
Leikritið sem verður á dagskrá í
kvöld kl. 20 heitir Brunnur dýrlinganna
og er eftir John Millington Synge, eitt
af fremstu leikritaskáldum Ira fyrr og
síðar.
Synge, sem dó í byrjun aldarinnar,
var aldrei afkastamikili, enda entist
honum ekki aldur til aö semja mörg
verk þar sem hann var aöeins 38 ára
þegar hann lést.
Brunnur dýrlinganna er talið vera
eitt af þremur stærstu verkum skálds-
ins, hin tvö eru Heimur giaumgosans
og Sorg Dreidre.
Leikritin ollu jafnan nokkru fjaðra-
foki og voru til aö mynda skipulögð
samtök um að trufla flutning Glaum-
gosans er hann var frumfluttur áriö
1907.
Þorsteinn Gunnarsson leikstýrir
Brunni dýriinganna.
Tinna Gunniaugsdóttir og Heigi Skúlason ieika stór hiutverk i leikritinu
Brunnur dýrlinganna sem er á dagskrá ki. 20 i kvöid.
Það voru mest þjóðernissinnar sem
létu leikritin fara í taugarnar á sér og
þá einkum háökenndar lýsingar
skáldsins á írskri alþýðu.
Brunnur dýrlinganna gerist í af-
skekktu fjaliahéraöi á Irlandi fyrir
meira en hundrað árum.
Mary og Martin Doul eru blind hjón
sem draga fram lífið á ölmusugjöfum
fólksins í héraðinu. Dag nokkum birt-
ist förumunkur nokkur sem fólk hefur
tekiö í dýrlingatölu vegna þess að hon-
um hefur veriö gefinn máttur til að
lækna blindu með helgu vatni úr
Brunni dýrlinganna sem er á eyju úti
fyrir ströndinni. Dýrlingurinn gefur
þeim hjónum sjónina á ný en um leið
sviptir hann þau sjálfsblekkingu þeirri
sem hefur gert þeim lífið bærilegt og
viðbrögð þeirra verða á annan veg en
mennætluðu.
Leikendureru: Helgi Skúlason, Þóra
Friðriksdóttir, Sigurður Karlsson,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Róbert Am-
finnsson, Lilja Þórisdóttir, Pálmi
Gestsson, Edda H. Backman og Jó-
hann Sigurðarson. Leikstjóri er Þor-
steinn Gunnarsson en Geir Kristjáns-
son sneri yfir á mál vort.
SigA
Útvarp
Rás2kl. 14:
Sharon Redd
— í heimsókn hjá Jóni og Pétri
Umsjónarmenn þáttarins Eftir tvö,
á rás 2, fá til sín góðan gest í dag.
Það er soulsöngkonan Sharon Redd
sem syngur fyrir gesti skemmtistaöar-
ins Hollywood þessa dagana. Um-
sjónarmennirnir, Jón Axel og Pétur
Steinn, ætla aö ræða við hana um dag-
inn og veginn, frægð og frama, en hún
hefur að undanförnu verið að vinna sér
nafn sem söngkona víðsvegar um
heim.
Meðal laga sem Redd hefur gert
fræg em Beat the Street sem er að
komast til ára sinna og Love How You
Feel.
Redd mun hafa plægt akur frægðar-
innar hvaö best í Hollandi hvar hún er
feikivinsæl og undrar engan sem hefur
heyrt hana syngja að Niðurlendingar
skuli flatirliggjaerhúnopnarmunn.
Að öðru leyti mun þátturinn vera
svipaður að uppbyggingu og oftast áð-
ur, vönduð lög úr hinum ýmsu homum
þessa hnöttótta heims.
SigA
Söngkonan Sharon Redd verður
gestur á rás 2 iþættinum Eftir tvö.
Veðrið
Suðvestlæg átt, skúrir vestan til
en fer að létta til á Norður- og
Austurlandi siðdegis í dag.
Veðrið
hér og þar
Klukkan 6 í morgun: Akureyri
skýjað 6, Bergen skýjaö 3, Helsinki
þokumóða 2, Kaupmannahöfn
þokumóða 5, Osló rigning 4,
Reykjavík alskýjað 3, Stokkhólmur
þokumóða 2, Þórshöfn rigning 6.
Klukkan 18 í gær: Amsterdam
mistur 4, Aþena hálfskýjað 15, [i
Berlín þokumóða 4, Chicagó þoka 5,
; Feneyjar skýjað 9, Frankfurt þoku-
móða 2, Las Palmas léttskýjað 20,
London skýjað 8, Los Angeles al-
skýjað 15, Luxemborg snjókoma 0,
Malaga léttskýjað 21, Miami skúr
25, Mallorca skúr á síðustu klukku-
stund 14, Montreal skýjað 13, New
York rigning 6, Nuuk skýjaö —6,
París skýjað 8, Róm léttskýjað 12,
Vín skýjað 5, Winnipeg léttskýjað
13.
Gengið
GENGISSKRÁNING
NR. 68 - 05. APRÍL 1984 KL. 09.15
Eining KAUP SALA
1 Bandarikjadollar 29,020 29,100
1 Sterlingspund 41,564 41,678
1 Kanadadollar 22,685 22,748
1 Dönsk króna 3,0241 3,0324
1 Norsk króna 3,8503 3,8610
1 Sænsk króna 3,7380 3,7483
1 Finnskt mark 5,1840 5,1983
1 Franskur franki 3,6111 3,6211
1 Belgiskur franki 0,5433 0,5448
1 Svissn. franki 13,3847 13,4216
1 Hollensk florina 9,8523 9,8795
1 V-Þýskt mark 11,1156 11,1462
1 ítölsk lira 0,01793 0,01798
1 Austurr. Sch. 1,5802 1,5845
1 Portug. Escudó 0,2184 0,2190
1 Spánskur peseti 0,1940 0,1946
1 Japanskt yen 0,12901 0,12937
1 írskt pund 34,011 34,105
SDR (sérstök 30,8066 30,8913
dráttarréttindi)
| Simsvari vegna gengisskráningar 22190
TOLLGENGI
FYRIR APRÍL
l Bandarfkjadollar 29,010
1 Steriingspund 41,956
1 Kanadadoilar 22,686
1 Dönsk króna 3,0461
1 Norsk króna 3,8650
. 1 Sænsk króna 3,7617
1 Finnskt mark 5,1971
1 Franskur franki 3,6247
1 Belgískur franki 0,5457
1 Svissn. franki 13,4461
1 Hollensk florina 9,8892
1 V-Pýskt mark 11,1609
?1 ítölsk líra 0,01795
J1 Austurr. Sch. 1,5883
1 Portug. Escudó 0,2192
1 Spánskur poseti 0,1946
1 Japansktyen 0,12913
1 írskt pund 34,188