Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1984, Page 36
FRETTA SKO TIÐ
Hafír þú ábendingu eða vitneskju um frótt — hringdu þá i sima 68-
78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i D V, greiðast
1.000krónur og 3.000krónur fyrir besta fréttaskotið ihverri viku.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólar-
hringinn.
SÍMINN SEM
ALDREISEFUR
68-78-58
t
Varmi
Bilasprautun hf.
Auðbrekku14 Kópavogi
Sími 44250
FIMMTUDAGUR 5. APRIL 1984.
Verkalýðsforystan
gagnrýnir
Þjóðviljann
Framkvæmdanefnd stjórnar verka-
lýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins
samþykkti á fundi sínum á þriðjudag
haröorða ályktun gegn skrifum Þjóð-
viljans um verkalýðsmál. Ásmundur
Stefánsson, forseti ASl, flutti tillöguna
og undir hana skrifuðu allir fundar-
menn að undanskildum Þresti Olafs-
syni, framkvæmdastjóra Dagsbrúnar.
I ályktuninni segir: „Framkvæmda-
nefndin mótmælir harðlega þeirri rit-
stjórnarstefnu blaösins aö undanförnu
aö gera heildarsamtökin og einstaka
forystumenn verkalýðshreyfingar-
innar tortryggilega með rangfærslum
og óbilgjömum árásum. Þessi skrif
blaðsins eiga ekkert skylt við frjálsa,
óháða blaðamennsku og þau þjóna
hvorki hagsmunum verkalýðshreyf-
ingarinnar né Alþýðubandalagsins.
Framkvæmdanefndin treystir því að
málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóðfrelsis skrifi í framtíðinni
á annan hátt um verkalýðsmál.” Á
fundinum voru mættir 9 af 11 nefndar-
mönnum og greiddu 8 tillögunni at-
kvæði og vom það auk Ásmundar:
Benedikt Davíðsson, formaður Sam-
bands byggingarmanna, Haraldur
Steinþórsson, framkvæmdastjóri
BSRB og Guðmundur Þ. Jónsson for-
maður Landssambands iðnverkafólks.
-0ef.
Dregstaðfylla
ífjárlagagatið
„Það liggur ekki lífið á, við erum að
fjalla um fyrirsjáanlegan vanda sem
er annaö mál en ef vandinn væri dun-
inn yfir,” sagði Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra í morgun. Hann er
enn, ásamt formönnum stjórnarflokk-
anna, Steingrími Hermannssyni og
Þorsteini Pálssyni, að fjalla um hvem-
ig fylla megi í fjárlagagatiö upp á tvo
milljarða. HEEB
Af tæknilegum ástæðum er DV
aðeins 36 blaösíður að stærð. Lesendur
kunna af þessum þáttum að sakna
efnisþátta og er beðist velvirðingar á
því.
LUKKUDAGAfí
5. apríl
24312
SKÍDI FRÁ FÁLKANUM
AD VERDMÆTI KR. 10.000.
Vinningshafar hringi í síma 20068
LOKI
Bjargar það ekki skipa-
félögunum aö fíytja
varnarliðið burt í
áföngum?
Sjónvarp sjö þjóða
næst hér á landi
Þegar eru hafnar sendingar á
sjónvarpsefni frá fjarskiptahnetti
Póst- og símamálasamtaka Evrópu,
Eutelsat, sem unnt er að ná með
litlum tilkostnaði hér á landi. Er þar
um að ræða sjónvarpsdagskrár frá
Bretlandi, Vestur-Þýskalandi,
Frakkiandi, Sviss, Hollandi, Belgiu
ogltalíu.
Þetta kom fram í samtali við
Gunnar G. Schram alþingismann, en
hann mun í dag leggja fram á
Alþingi þingsályktunartillögu þar
sem skorað er á ríkisstjómina að
gera sem fyrst ráðstafanir til þess að
unnt verði að hefja móttöku
sjónvarpsefnis frá fjarskipta-
hnöttum Evrópuþjóða hér á landi
þar sem slíkar sendingar séu þegar
hafnar og nái til Islands.
Gunnar sagði aö til þess að taka á
móti þessu sjónvarpsefni þyrfti mót-
tökustöð með um 4 metra loftneti og
muni kostnaðurinn við hana vera um
1 milljón króna, auk kostnaöar viö
fjarskiptasendingar og móttöku
efnis sem yrði að vera í höndum
Pósts og síma. Hins vegar benti
Gunnar á að innan skamms muni
hefjast sendingar frá þremur gervi-
hnöttum sem senda munu beint til
notenda án þess að greiðslur þurfi að
koma fyrir. Þær sendingar nást hér á
landi með 4 til 8 metra móttökuloft-
netum.
Fyrstu sendingar af þessu tagi
hefjast í september 1985 frá vestur-
þýska gervihnettinum TV-Sat sem er
meö tvær sjónvarpsrásir. í
nóvember 1985 er síðan ráðgert að
hefja sendingar frá franska hnett-
inum TDF—1 sem verður með
þremur sjónvarpsrásum og í ágúst
1986 er ráðgert að hefja sendingar
frá breska hnettinum Unisat og
er meðal annars fyrirhugað að
sjónvarpa um hann dagskrám frá
BBC. Gunnar benti auk þess á að
Norðmenn hefðu leigt rás í fjar-
skiptahnettinum Eutelsat til að
senda sjónvarpsefni til Svalbarða og
muni þær sendingar ná hingað til
lands, og verða sendar út um dreifi-
kerfi sjónvarpsins.
Gunnar sagði aö sjálfsagt værí að
stjórnvöld beittu sér fyrir því að
landsmenn gætu nýtt sér þessa
möguleika og væri með þessari til-
lögu veriö að benda á þá kosti sem
Islendingum stæðu opnir á þessu
sviði fjölmiðlunar.
-ÖEF.
Það var ekki neina flugveiki að sjá á þessum krökkum þegar þau stigu út úr
Arnarflugsvélinni á Reykjavíkurflugvelli í gœr. Enda voru þarna á ferð verð-
launahafar sem unnið höfðu útsýnisflug yfir Reykjavík og nágrenni á Flugsýning-
unni um sl. helgi. DV-mynd E.Ó.
ENGIN SMUGA
BTIMC Af* rp
kllla VVÍ tlm
— segirHansG.
Andersen um
viðræðurvið
bandarísk yfirvöld um
flutninga fyrir varnarliðið
„Viðræður stranda allar á lögum,
sem segja að bandarisk skip eigi að
sjá um flutninga fyrir bandariska
herinn. Við fengum þessa flutninga
af því að enginn bandariskur aðili
hafði áhuga á þeim en nú vill banda-
rískt félag fá þá og það er engin
smuga sjáanleg eins og er,” sgði
Hans G. Andersen, sendiherra í
Washington, i viðtali við DV er hann
hafði rætt bæði við utanrikis- og
vamarmálaráðuneyti Banda-
ríkjanna í gær.
Hans heldur viðræðum áfram ytra.
Þórður Magnússon frá Hafskip er
vestra og tjáði yfirmaöur flutninga-
deildar hersins honum aö ef banda-
rískt félag gæti boðið upp á skip til
flutninganna og áætlanasiglingar
myndi flutningadeildin fela því flutn-
ingana.
Höröur Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, sagði i viðtali við DV að ef
Rainbow Navigation hæfi siglingar
hingað myndi fækka um tvö skip í
forsjá Islendinga á þessari leið.
My ndi það líklega haf a neik væð áhrif
á rekstrarafkomu félagsins á
leiöinni.
Eftir því sem DV kemst næst em
skipafélögin sem stóöu nú að stofnun
Rainbow Navigation smáfélög sem
stofna saman eöa með öðmm smærri
félög um einstaka verkefni.
Mark Ymg heitir forsvarsmaður
annars móðurfyrirtækisins, Housing
Transport Intemational í Red Bank í
New Jersey. Ekki hefur náðst sam-
band viö hann þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir til að fá staðfest hvort þeir
ætla ömgglega sjálfir út í þessar
sigUngar eða eru tilbúnir að versla
eitthvaðmeðréttinn.
-GS
Fréttaskot á
nóttu sem degi
ísímann sem aldrei
sefur: 68-78-58
Lesendur DV halda áfram að senda
blaðinu fréttaskot í stríðum straumi í
símann sem aldrei sefur — beinu
línunni sem opin er aUan sólarhring-
inn.
Alla þessa viku hafa birst á hverjum
degi í DV fréttir sem byggðar hafa
verið á fréttaskotum frá lesendum og
fjöhnörg fréttaskot eru stöðugt í úr-
vinnslu á ritstjóminni.
Það er líka til nokkurs að vinna fyrir
þá sem heyra af fréttnæmum atburöi,
hvort sem um stóra frétt eða smáa er
að ræða. Fyrir hverja frétt sem birt er
eftir ábendingu lesenda eru greiddar
1000 krónur og fyrir bestu frétt hverrar
viku em greiddar 3000 krónur.
Einnig er rétt að ítreka að fuU-
kominnar nafnleyndar er gætt gagn-
vart þeim sem senda DV fréttaskot.
Munið því símann sem aldrei sefur
— 68-78-58. Hann er opinn allan sólar-
hringinn og fyllsta trúnaðar er gætt.
-ESJ.
S jö daga f erð á
hestum yfir Kjöl:
Ferð árs-
ins á Norð-
urlöndum
Sjö daga ferð á hestum yfir Kjöl
hefur verið kosin „Besta ferð ársins á
Norðurlöndum ’84” af sambandi ferða-
skrifstofa í Noregi.
„Þetta er mikUl heiður fýrir okkur
hjá Islensku hestaleigunni, sérstak-
lega þegar haft er í huga að við
byrjuðum með þessar ferðir í fyrra,”
sagði Einar Bollason, sem rekur hesta-
leiguna og skipuleggur ferðirnar
ásamt Birki Þorkelssyni á Laugar-
vatni. I fyrra vom farnar tvær ferðir
en í ár er ráðgert að hafa þær 8. Lagt er
upp frá Laugarvatni eða Steinsstaöa-
skóla í Skagafirði með 70—80 hesta,
eldhúsbíl og kokk.
I tilefni verðlaunanna er stödd hér á
landi blaðakona frá Aftonbladet í
Noregi og ætlar hún að skrifa greinar
um þetta besta ferðatilboð á Norður-
löndum 1984. -EIR