Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. MAI1984. 3 Fedgarnir um borð í Guðrúnu Ólaf s sem leitað var á sunnudaginn: „Við örvæntum aldrei Guörún Óiafs, ÍS208, á reki vesturaf Látrabjargiásunnudaginn. DV-mynd/GVA. „Nei, nei, við örvæntum aldrei. Viö vissum að okkur yrði bjargað,” sagði Jón Vignir Hálfdánarson, ann- ar feðganna, sem voru um borð í Guörúnu Olafs, bátnum er leitað var á sunnudag. Eins og kunnugt er tilkynnti bát- urinn um bilaöa vél til Reykjavíkur- radíós um klukkan fimm á sunnu- dagsmorgun, en láðist að geta ná- kvæmlega um staösetningu, nema að báturinn væri á Breiöafirði. Tveimur tímum síðar varð sambandslaust við bátinn. Var leit strax sett í gang og fannst báturinn á reki vestur af Látrabjargi um miðjan dag á sunnu- dag. Hafði þá leit staðið yfir í níu tíma. „Það hefur komið í ljós að startar- inn er bilaöur og við pabbi munum bíða eftir því að við það verði gert áöur en við höldum áfram ferðinni til Bolungarvíkur,” sagði Jón. „Annars fór rafmagnið lika af bátnum í kjöl- far bilunarinnar, svo að maður veit ekki alveg hvað viðgerð tekur langan tíma. Við vonumst þó til að geta ver- iökomniráveiðarílok vikunnar.” Jón sagði að þeir væru eigendur bátsins sem er opinn vélbátur. Væri meiningin aö stunda handfæri á bátnum. Þeir hefðu keypt hann frá Keflavík og hefðu verið á leið þaðan, heim til Bolungarvíkur. Báturinn hét áður Fjarðará og var gerður út frá Keflavík. „Þegar við lögðum upp, var farið rækilega yfir bátinn, en þá var allt í lagi. Enda er það svo að óhöppin gera ekki boðá undansér.” — Nú gáfuð þið ekki upp nákvæma staðsetningu. Stóð það í sambandi við bilunina? „Nei, alls ekki. Þetta var mér að kenna. Eg var með leitarkort en láð- ist aö geta nákvæmlega um þetta. Þegar ég svo ætlaði að bæta fyrir þetta vorum við orðnir sambands- lausir.” — Þetta hcfur verið langur timi að líða, ekki satt? „Jú, ekki er hægt að neita því en við vissum alveg að við myndum frnnast.” — Hvemig eydduð þið tímanum? „Við reyndum að leggja okkur til skiptis, en þaö hjálpaði mjög upp á sakirnar, hversu gott veðrið var” — Eruð þið báðir vanir s jómenn? „Já.þaulvanir.” — Setur þetta óhapp eitthvert strik í reikninginn? „Nei, langt frá því. Við ætlum að halda okkar striki og vonandi kemst báturinn sem fyrst í lag svo að við komumst aftur á sjóinn,” sagöi Jón VignirHálfdánarson. -KÞ Leigukjörá þyrlum könnuð „Við erum að safna upplýsingum til að geta sett upp fjárhagsdæmi fyrir ríkisstjórnina um hvað kostar að leig ja þyrlu, kaupleigja eða kaupa,” sagði Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Land- helgisgæslunnar. Fulltrúar frá Aerospatiale-þyrlu- smiðjunum í Frakklandi voru á Islandi fyrir helgi og kynntu forráðamönnum Landhelgisgæslunnar þau kjör, sem þeir bjóða á Dauphin-þyrlum, bæði leigukjör og kaupleigu. Samskonar upplýsingar hef ur Gæsl- an fengið frá Bell Textron í Bandaríkj- unum, Sikorsky, og von er á upplýsing- um frá Augusta Bell á Italíu. Rikisstjómin hefur sem kunnugt er frestaö kaupum á þyrlu en þess í stað heimilaö Landhelgisgæslunni að taka slíkt tæki á leigu meðan kannaö veröi hvaöa tegund henti best hérlendis. Þyrla fæst trúlega ekki leigð með minna en tveggja til þriggja mánaða fyrirvara. Ný björgunarþyrla fæst þvi liklega ekki til landsins fyrr en í fyrsta lagi seinnipart sumars. -KMU. Ágúst og Nýtt líf fengu 1,8 milljónir króna Uthlutað hefur verið styrkjum úr Kvikmyndasjóði fyrir árið 1984 og voru tveir stærstu styrkirnir til þeirra Agústs Guðmundssonar og Nýs lífs sf. Fékk hvor aðili um sig 1,8 milljónir króna. Agúst Guðmundsson fékk styrk til gerðar myndarinnar „Sandur” og Nýtt líf sf. til gerðar myndarinnar „Skammdegi”. Umsóknir um styrki voru 40 að þessu sinni en alls hafði sjóðurinn úr 6,5 milljónum kr. að spila. Alls hlutu 16 aöilar styrki úr sjóðnum, hinir tveir framangreindu þá langstærstu. Yfir- leitt vom styrkirnir á bilinu 75—250 þúsund kr. -FRI MESF SELDIBÍLL Á ÍSLANDI Frá því FIAT UNO var kynntur á miöju s.l. ári hefur hann selst meira en nokkur annar einstakur bíll hér á landi. Bíll ársins 1984 Unol FRÁBÆRT VERÐ KJÖR VTÐ ALLRA HÆFI FIAT UNO er íullur af gœðum og glœsileika. Samt getum við boðið hann á sérlega góðu verði, írá Aí viótökunum sem UNO hefur íengiö er ljóst aö allir vilja eignast þennan metsölubíl. Við viljum leggja okkar aí mörkum til þess að svo megi verða og reynum því að sveigja greiöslukjörin að getu sem ílestra. kr. 229.000.- JEGILL r VILHJÁLMSSON HF.i Smidjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.