Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Blaðsíða 4
4 DV. MIÐVTKUDAGUR 2. MAI1984. Bruðl eða sparnaður? Sjúkrahús Suðurlands kaupir bíl — tilboð í flutninga námu frá 30 þúsundum á mánuði „Þetta var engin spurning. Þetta var greinilega þaö hagsUeðasta, sem hægt var að gera,” sagði Hafsteinn Þorvaldsson, forstöði maður Sjúkra- húss Suðurlands, í samtali við DV. Sjúkrahúsiö hefur nýlega fest kaup á sendibifreið til að annast flutning á ýmsum varningi til öldrunardeild- arinnar, sem opnuð var á dögunum, frá sjúkrahúsinu. Aður en til bílakaupanna kom leitaði sjúkrahússtjórnin óformlegra tilboða í flutninga þessa. Bárust nokkur sem hl jóöuðu upp á 30 til 90 þúsund krónur á mánuði. Sjúkrahússtjórnin ákvað hins vegar að kaupa s jálf bíl til þessa. — Er þetta ekki fullmikið bruðl þegar ríkisstjórnin boðar spamaö í ríkiskerfinu? „Nei, svo langt frá því,” sagöi Haf- steinn. Við fengum löggiltan endur- skoöanda til aö kanna þetta mál og hann komst að þeirri niðurstöðu að það eina rétta væri að sjúkrahúsið keypti sjálft bíl. Bíllinn kostaði 200 þúsund og er því nokkra mánuði að borga sig upp. Auk þess eru það umsjónarmenn stofnun- arinnar sem aka bílnum virka daga. Um helgar skiptumst viö á, smiðurinn, húsvörðurinn og ég. Þetta hefur engin aukaútgjöld í för meö sér því við erum allir á fastri yfirvinnu. Auk þess er þetta bráðabirgðafyrirkomulag og það getur vel verið að viö seljum bílinn aftur sýnist okkur það hentugra,” sagöi Hafsteinn Þorvaldsson. -KÞ. Á kynningardagskrá um reykingar i Garðaskóla, grunnskóla, fyrir nokkrum dögum fengu nokkrir bekkir plagg sem vottaði að hér væri um reyklausa bekki að ræða. Skólastjóri og fyrirkennari undirrituðu plöggin þar sem á voru nöfn nemenda þeirra bekkja þar sem enginn reykir. DV-mynd: Sveinn Þormóðsson. Líf eða dauði StáKé- lagsins ráðinn næstu daga —verið að skoða niðurstöður ráðgjaf af yrirtækis um arðsemismöguleika A næstu dögum ræðst hvort uppbyggingu Stálfélagsins veröur haldiö áfram eða hætt verður við allt saman. Grundvöllur að framhalds- uppbyggingu er fyirrgreiösla og aðild hins opinbera að fyrirtækinu. Hiö opinbera óskaöi hins vegar eftú- því í vetur að óháðir aðilar yröu látnir gera úttekt á öllum áætlunum fyrirtækisins Hvað segja bændasamtökin um fimm ára áætlun Steingríms? Verðum alltaf með umf ramf ramleiðslu og hana á að flytja út, segir formaður Stéttarsambandsins „Bændum er ljóst að útflutningur landbúnaðarafuröa er mjög óhag- kvæmur eins og er en ef við miöum við aö vera sjálfum okkur nóg þá hlýtur alltaf að verða einhver um- framframleiðsla. Eg er þeirrar skoöunar aö þessa umframfram- leiöslu eigi að flytja út,” sagði Ingi Tryggvason, formaöur Stéttar- sambands bænda, í samtali við DV í tilefni þeírra ummæla Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra að gera þyrfti fimm ára áætlun um samdrátt í landbúnaðarframleiðslu þannig að ekki þyrfti aö flytja þær afurðir út og greiða af þeim út- flutningsuppbætur. Ingi Tryggvason benti á að fram- leiösla hefðbundinna landbúnaðaraf- uröa heföi dregist saman á undan- fömum árum. Sauðfé heföi farið fækkandi en afleiðing þess í minnkandi kjötframleiðslu hefði enn ekki komið í ljós. En ef miöaö er við þann fjárstofn sem settur var á síöastliöiö haust og kindakjötsneyslu undanfarinna ára þá mun kinda- kjötsframleiðsla verða 10 til 15% um- frám innanlandsneyslu. Framleiðsla mjólkurafurða varö á síöasta ári 6% umfram þaö sem seldist á innan- landsmarkaði. Steingrímur sagði í ræðu sinni á miðstjómarfundi Framsóknar- flokksins að gæta yrði þess að þessi samdráttur í landbúnaðarfram- leiöslu leiddi ekki til byggða- röskunar. Ingi Tryggvason sagöi að minnkandi framleiðsla hefðbundinna landbúnaðargreina þyrfti ekki að leiða tii fækkunar bænda ef samhliða færi efling nýrra búgreina. -ÖEF. og var látiö í veöri vaka að ekkert yröi úr stuöningi ef sú úttekt leiddi ekki í ljós jákvæðar niðurstöður. Danskt ráðgjafafyrirtæki var fengiö til að gera úttektina í febrúar sl. og bárust niðurstööur um helgina. Engar upplýsingar fást um eðli þeirra en stjóm Stálfélagsins ætlar að funda um þærámiðvikudag. A meðan niðurstöðu var beðið hefur starfsemi félagsins verið í biðstöðu og er enn nema hvað félagiö hefur selt Sindrastáli liðlega þúsund tonn af brotajárni. Það jám var á leigulóð ná- lægt Straumsvík og hafði Hafnar- fjarðarbær óskaö eftir að lóðin yrði rýmd. Þetta var óunnið járn og Stálfélagiö hyggst ekki forvinna jám heldur kaupa það af öðrum aöilum sem for- vinna það, svo sem Sindra. Afram á félagið nokkur skipsflök sem þaö fyrir- hugar að skera sjálft niður til bræðslu. -GS. j dag mælir Dagfari_____________I dag mælir Dagfari____________j dag mælir Pagfari Með öndina í hálsinum Úilum er í fersku minni þegar Kvennalistinn húrraðist í framboð með fínar frúr í bak og fyrir og sigraði heiminn að eigin mati og þrjár þeirra fínustu settust á þing- bekk. Hefur manni verið sagt að þær hafi mætt vel á þingfundi og verið stofuprýði hin mesta og augnayndi fyrir karirembusvinin við Austur- völl. Litlu málin, varnir landsins, cfnahagsvandann og kakómjólkina, hafa þær að mestu látið afskiptalaus. En því meir munu þær kvennalista- stöUur hafa látið tU sín taka í meiri- háttar Iandsmálum svo sem friðar- fræðslu á dagheimUum, kennslu- gagnamiðstöðvum og afdrifum um nauðgunarmál. Hafa þær markaö sér þá sérstöðu að hafa hvorki af- skipti né skoðun á neinu því máUi sem ekki snertir jafnrétti kvenna og karla. Með hUðsjón af þeirri áráttu Alþingis Islendinga að fjaUa um. önnur og fleiri mál en snerta þá jafn- vægisUst, sem kvennalistakonur boða hafa þær átt náðuga daga í þingsölum og brugðið sér á salernin þegar þau mál eru á dagskrá sem þeim kemur ekki við. Það bar hins vegar við þegar þing- menn hugðust mæta tU sinnar árlegu þingvcislu, að gömlum og góðum sið, að kvennaUstakonur fóru í hungur- verkfaU og neituðu að mæta upp á fríar trakteringar úr ríkissjóði. Var framganga þeirra fræg af þeirri snjöUu tUlögu kvennanna að tU greina kæmi að þær mættu til veislunnar ef þær fengju að greiða fyrir drykk með og eftir mat. Þótti þeim sem sagt í lagi að drekka kokktcilinn frítt. Ekki er vitaö tU að nokkur hafi amast við því þótt kven- fólkið mætti upp á þessi býti en kvennaUstakonur, trúar sinni háleitu hugsjón, létu hvergi sjá sig í veislunni nema þegar ein þeirra sást á gægjum eldhúsmegin, þegar Ami kjaftshögg átti erindi afsíðis. Hefur sjálfsagt verið að narta í matarleif- arnar blessuð, ríkinu að kostnaðar- lausu. En ef einhver skyldi halda að kvennalistakonur hafi séð eftir að fara í opinbert hungurverkfail, og hafi það ekki fyrir venju að narta í matarleifar á laun, skal það hér með leiðrétt. Svo brá nefnilega við að í síðustu viku vUdi f járveitinganefnd gera sér glaðan dag á kostnað hins opinbera og buðu nefndarmenn sjálfum sér tU mannfagnaðar með Pekingönd í aðalrétt. Eflaust hafa forsprakkar nefnd- arinnar verið í góðri trú um að stefnuskrá sinni að vera á móti Pekingöndum en allt kom fyrir ekki. Fulltrúi kvennalistans sendi afboð með þeim skUaboðum að kvenna- opinberu bruðli í dýrlegum þing- mannavcislum. Vora nú góð ráð dýr fyrir karl- peninginn í nefndinni, sem sat eftir með sárt ennið og át sína andastcik með vondri samvisku yfir áfram- haldandi mótmæla- og hungurverkföUum kvenfuUtrúans. Áttu þeir af eðlUegum ástæðum, bágt með að skUja hvers Peking- öndin ætti að gjalda, óhreyfð og óétin á veisluborðinu meðan garairnar gauluðu í sársoltinni konunni. Verður líka að segja það eins og er að þær stjórnmálastefnur sem banna fulltrúum sínum að eta innan um annað fólk og þiggja góð boð, eru grimmúðleg mannréttindabrot sem lítiö eiga skylt við jafnrétti kynjanna. Að lokum var gripið til þess ráðs að pakka öndinni inn og senda hana tU þingmannsins með sérstakri kveðju „frá strákunum”. Vissu þeir sem var að matarleifar, jafnvel þótt Pekingendur séu, bragðast vel þegar enginn sér tU. Hér eftir munu kvennalistakonur sitja á þingi með öndina í hálsinum. Dagfari. ,4>l- stjóramálasamtök hefðu það ekki á listakonur væru enn sem fyrr á móti „

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.