Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Side 14
.m.i IAM .£ HUOAdUXtVCÐM . Vd DV. MIÐVIKUDAGÚR 2. MAI1984. SCLTJAflNARNFS Frá Mýrarhúsaskóla Innritun nýrra nemenda fer fram fimmtudaginn 3. maí. Skólastjóri. SUNDAKAFFIAUGLÝSIR KAFFI, KÖKUR OG SMURT BRAUÐ HEITAR OG KALDAR SAMLOKUR HAMBORGARAR OG FRANSKAR KARTÖFLUR HEITAR PYLSUR TÓBAK, ÖL OG SÆLGÆTI Opið alla virka DAGA FRÁ KL. 7.00-22.00. Laugardaga frá kl. 8.00-19.00. Sunnudaga frá kl. 10.00-19.00. SUNDAKAFFI v/Sundahöfn. r^ECÖmbb'S SJÚKRASKÓR Heilsubótarskór —■ Þýsk gæðavara LAUGAVEG/ 1- SÍM/ 1-6&84 NORÐURLANDARÁÐ ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA RITARA SAMGÖNGUMÁLANEFNDAR NORÐURLANDARÁÐS Forsætisnefnd Norðurlandaráðs auglýsir lausa til umsóknar stöðu ritara samgöngumálanefndar Norðurlandaráðs. Staðan er laus frá 1. september 1984. I Norðurlandaráöi starfa saman ríkisstjórnir og þjóðþing Norðurlanda. Samgöngumálanefnd Noröurlandaráðs fjallar meðal annars um samstarf landanna um samgöngu- og flutningamál, ferða- mál, umferðarmál, fjarskiptamál og tölvutækni innan þessara málaflokka. Ritara nefndarinnar ber að undirbúa nefndarfundi, semja drög að nefndarálitum og ályktunum um þau mál, sem fyrir nefndinni liggja. Auk þess ber honum að sinna almennum rit- arastörfum fyrir nefndina. Ritarinn hefur aðsetur í Stokk- hólmi og starfsaðstööu á skrifstofu forsætisnefndar Norður- landaráðs, sem er við Tyrgatan 7, Stockholm. Ritarastaðan er veitt til fjögurra ára, en mögulegt er í vissum tilvikum að fá ráðningarsamning framlengdan. Ríkisstarfs- menn sem starfa hjá Norðurlandaráöi eiga rétt á fjögurra ára leyfi frá störfum í heimalandi sínu. Föst laun ritara samgöngumálanefndar verða á bilinu 10.286— 12.851 sænskar krónur á mánuði auk staðaruppbótar. Við ákvörðun um launakjör er tekið tillit til fyrri starfa, hæfni og reynslu. Staða þessi er einungis auglýst á íslandi. Góð kunnátta í dönsku, norsku eða sænsku er nauösynleg. Nánari upplýsingar um stöðuna veita Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri Alþingis, í síma 15152, Snjólaug Olafsdóttir, ritari íslandsdeildar Noröurlandaráðs, í síma 11560, ásamt Ilkka-Christian Björklund aðalritara forsætisnefndar Norður- landaráös, og Birgi Guðjónssyni, ritara samgöngumálanefnd- ar Norðurlandaráös, i síma 8/143420 í Stokkhólmi. Umsóknarfrestur rennur út 15. maí 1984. Umsóknum skal beina til forsætisnefndar Noröurlandsráös og skulu þær send- ar til Nordiska rádets presidiesekretariat, Box 19506, S 104 — 32 Stockholm. Menning Menning Menning Tákn og titfínningar i Listasafni ASÍ I Listasafni ASl stendur yfir sam- sýning ó verkum eftir Valgeröi Hauksdóttur og Malcolm Christ- hilf’s. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 16—22 og um helgar frá kl. 14—22. Sýningunni lýkur 1. maí. IMálæg forsenda 1 Listasafni ASI stendur yfir sýn- ing tveggja listamanna. Myndir þeirra verka ólíkt í fyrstu, en viröast þó byggjast á nálægum forsendum sem viö getum kannski einfaldaö og sagt vera hinn falda sannleika. Malcolm Christhilf’s er bandarisk- ur grafíklistamaöur meö mikið list- nám aö baki. Hann leysir upp hlut- veruleikann í einstaka hluti og tákn sem hann teflir saman á myndfletin- um. Hlutirnir eignast nýja merkingu í samræmi viö nærliggjandi tákn. I raun er þaö áhorfandans að tengja viökomandi tákn og binda þau í upp- lifun eöa frásögn. Myndgerö lista- mannsins liggur nálægt súrrealism- anum og virkar oft á tíöum æöi klisjukennd. Handmennt lista- mannsins er til fyrirmyndar, sér- hver hlutur nákvæmlega skil- greindur og ítarlega útlistaöur. Tilfinningar... Valgerður Hauksdóttir leysir hins vegar raunveruleikann upp í tilfinn- ingalegar stemmur. „Hún leitast viö að ná því augnabliki, er ákveðið samband næst milli hugar og um- hverfis,” eins og svo ágætlega er SKILNINGSLEYSI A MIKILVÆGI HUGVITSINS Undanfariö hefur verið rætt um íslenska uppfinningamenn í fjölmiðlum. Það er ekkert undarlegt því þeir flytja úr landi meö uppfinningar sínar; leita til erlendra fyrirtækja með framleiöslu. Allt er þetta vegna skilningsleysis ráöa- manna á Islandi. Þetta er hræðileg þróun. Er enn litið á íslenska uppfinningamenn sem draumóra- menn og flakkara. Margir hafa flust til Danmerkur þar sem þeim hefur veriö tekiö opnum örmum. Um dag- inn var sagt frá arkitekt sem fann upp nýja og betri tegund af klappstól. Stóllinn var þrælfallegur og mátti leggja hann saman eins og gömlu Bretastólana. Þessi uppfinningamaður heitir Valdimar Haröarson. Þegar hann fór aö reyna aö koma stólnum í framleiðslu hér á Islandi fékk hann stórt NEI. Það reyndist ekki vera skiiningur eða áhugi fyrir hendi. Eftir nokkur ra ára þjark var ekki annað aö gera en aö leita á erlend miö. Og þýska hús- gagnaverksmiðjan KUSCH sýndi hugmyndinni strax áhuga. Fljótlega var gerður samningur við Valdimar. Nú hefur stóllinn vakiö mikia athygli á einni stærstu húsgagnasýningu í heimi sem haldin var í Köln í Vestur- Þýskalandi. Og nú þegar er hafin fjöldaframleiðsla á stólnum. Eg vil óska Valdimar til lukku. Þetta er lýsandi dæmi um þröng- sýnina á Islandi. Við erum langt á eftir öörum þjóöum. Hér er ekki skilningur á mikilvægi nýjunga. Hér er látiö sem hugvitið sé einskis virði. Islendingar ættu að skammast sín. Afi minn, sem var þúsundþjala- smiður, sagði mér eitt sinn er ég var lítill aö ef Edison heföi fæðst á Islandi þá heföi hann aldrei fundiö upp ljósaperuna. Er það satt? Nú er Bubbi Morthens aö flytjast burt frá ástkæra Islandi. Steinar Berg plötuútgefandi er alfluttur til Eng- lands og ætlar að starfa þar. Ungir íslenskir fótboltagarpar ganga kaupum og sölum í útlöndum. En nú skal ég segja ykkur mína sögu: Skáldagyðjan Þegar ég var ungur var bankaö upp hjá mér og í dyragættinni stóð skáldagyöjan sjálf. Síðan hef ég lagt líf mitt í að þjóna henni, alltaf fund- ist það vera skylda mín aö skrifa sögur fyrir fólkið. Eg hef gert öörum þann greiða aö fórna lífi mínu í aö skrifa eitthvaö fallegt til að stytta öörum stundimar og einnig reynt aö vera ósvikinn eins og náttúrubamiö sem kemur berfætt þaðan sem gras- ið er grænt. En hvaö hef ég fengið? Jú, sult, ærumissi og skilningsleysi. I tíu ár hef ég skrifaö þegar ég heföi getaö veriö aö læra verkfræöi eöa eitthvað tryggara. Eg ætla aö segja ykkur frá leikriti sem ég skrifaöi og heitir Uppfmningamaðurinn. Það fjallar um uppfinningamann sem finnur upp fljúgandi disk, já, alvöru fljúg- andi disk sem getur flogiö og allt. Getur tekið lóörétt á loft í næsta húsagaröi. En slík uppfinning myndi breyta heiminum. Bílar og flugvélar yröu úrelt fyrirbæri. Ef þú ætlaðir í Hagkaup þá myndir þú bara setjast upp i tækiö þitt og taka á loft úr þin- um eigin garöi, eöa af húsþakinu, værir eina mínútu upp í Breiöholt. Maöur gæti lent hvar sem er, alveg eins uppi á öræfum. Vegir yrðu óþarfir. Getiö þiö ímyndaö ykkur hvaö slík uppfinning myndi breyta heiminum mikiö. Þaö er stórkostlegt bara aö hugsa um þaö. En uppfinningamaðurinn í leikritinu er búsettur á Islandi. Hann lendir í vandræðum, auövitaö. Lögreglan kemst i spiliö og heldur aö hann sé vitstola, aö reyna aö fljúga á disk- laga apparati. Flugmálayfirvöld dæma farið til niöurrifs því þeir skilja ekki prinsippin sem eiga að halda farinu á lofti. Uppfinninga- maöurinn fær sem sagt ekki að sann- reyna nýja flugfariö. Mundi þetta ekki gerast akkúrat svona ef merk- asta uppfinning heimsins yröi uppi á Islandi? Þaö eru alls staöar asnar i • „Hér er ekki skilningur á mikilvægi nýjunga. Hér er látið sem hugvitið sé einskis virði. íslendingar ættu að skammast sm.7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.