Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Síða 17
dv, va 17 nr Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur OPIÐ Mánud.-fimmtudaga 9—19 Föstudaga k/. 9—20 Laugardaga k/. 9—16. Jón Loftsson hf. ________________ Hringbraut 121 Sími 10600 E IeupocardJ V/SA Mun/ð okkar hagstæðu greiðs/uski/mála Gunnar Kvaran sellóleikari skrifar: Eftir aö hafa lesiö, aö minu mati, óréttmæta umfjöllun Gunnars B. Kvaran í þessu blaöi fyrir stuttu á sýningu Baltasar á Kjarvalsstöðum, get ég ekki stillt mig um aö koma meö nokkrar athugasemdir. Ginuiar B. Kvaran finnur sýningu Baltasar allt til foráttu og jafnvel tækni hans er kölluö „fiff og flinkheit”. Þaö sem einkennir list Baltasar m.a. er hversu frábær teiknari hann er. Baltasar hefur „klassiska” skólun sem málari og þaö sést i öllum hans myndum. Þaö sem háir mörgum íslenskum listamönnum er einmitt vöntun á skólun og tækni og þessi atriöi eru algjör grundvöllur fýrir tjáningu og sköpun. Gunnar B. Kvaran skrifar af fyrir- iitningu um myndir Baltasar af hundum og segir „þetta myndmál vera fullunniö í málverki um miðja 19. öld og nú gjaman notaö í iðnaði, t.d. viö skreytingu konfektkassa”. Ekkert myndmál, form eöa tjáningarmáti er úr sér gengið takist listamanninum aö glæða þaö lifi og þaö tekst Baltasar sannarlega. I sambandi viö konfektkassana ætla ég aö vona aö list Baltasar veröi líka notuö á þá. Hann þyrfti ekki aö skammast sín fyrir aö vera þar í félagsskap meö t.d. Gaugin og Turner. Landslagsmálverkunum er líka úthúðaö á þessari sýningu og þær kallaöar „afar yfirborðskenndar”. Eg vil hins vegar sérstaklega benda á nr. 14 og nr. 19 af Keili, alveg afbragðsmyndir. Kristmyndir Baltasar, f jórar að tölu, sem hann nefnir Sælir eru...., aö minum dómi hápunktur sýningar- innar, eru alls ekki nefndar á nafn í þessari umf jöllun, frekar en þær heföu alls ekki veriö sýndar. Aö lokum hæöist Gunnar B. Kvaran aö Baltasar fyrir aö verða fyrir áhrifum af Goya. Hvar væri listasagan ef listafólk á öllum öldum hefði ekki orðið fyrir áhrifum hvert af ööru, lært og drukkiö í sig af list hvert annars? Aö fara aö gera samanburð á tveimur ólikum listamönnum af þessum sökum er blátt áfram hlægilegt. Nei, Gunnar B. Kvaran ætti aö hugleiöa vel áöur en hann næst notar oröin „lágkúra og meöalmennska” um góöa listamenn. Gagnrýni á gagnrýni Gunnars B. Kvaran skrifuð af Gunnari Kvaran. Myndin er af Baltasar. NÝKOMIN BORÐSTOFUBORÐ Aldraöir að skemmta sér og þó að þessi mynd hafi ekki verið tekin í Broad- way þá á hún engu að síður við. Góö skemmtun fyriraldraöa Marta Jónsdóttir, Selfossi, skrifar: Þann 12. apríl sl. fóru eldri borgarar hér á Selfossi í hópferö á skemmtistaöinn Broadway í Reykja- vík. Þarna var á ferðinni skemmtun fyrir eldri borgara og var hún vel sótt af fólki víös vegar af landinu. Aö hætti höföingja var tekið á móti okkur meö kokkteil áöur en sest var aö boröum. Hermann Ragnar Stefánsson veislustjóri kynnti dagskrána sem var mjög f jölbreytt og innihélt meöal annars fjöldasöng, danssýningu og tískusýningu sem erfitt er að gleyma. Fleira gott var á dagskránni og aö lokum var svo dansað. Mig langar aö lokum til aö þakka öllum sem aö þessari skemmtun stóðu og þá ekki sist Halldóru Ama- dóttur sem var fararstjóri Selfoss- hópsins. Viö komum aftur næst. „FIFF OG FLINKHEIT” — Athugasemd við myndlistargagnrýni Gunnars B. Kvaran OG STÚLAR FRÁ HOLLANDI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.