Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Blaðsíða 31
.tSCi lAM .£ HUOAG’JHIVíHM .VO DV. MIÐVIKUDAGUR 2. MAI1984. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Kvöídmáltíd Þessa ágætu uppstillingu rákumst viö á í blaöinu tslendingi á Akureyri. Ber hún heitiö „Kvöldmáltíð í Slippnum”. Ekki er þessi mynd ósvip- uð annarri þar sem menn snæddu einnig kvoidmáltíð. En að þessu sinni er miðju- maðurinn með hjálm’. Ekki fleiri orð um það. Harkan sex Mikið stríð hefur geisað að undanförnu milli mynd- bandaleiga og rétthafa mynd- banda hér á landi. Hafa rétt- hafamir haft tiiteknar leigur grunaðar um að leigja efni út ólöglega og nota þá svokallað möppukerfi. Hafi möppurnar að geyma lista yfir ólöglegt efni og fái viðskiptavinurinn að glugga í þær og velja sér spólur. Þær séu síðan sóttar í leynigeymslur og leigðar út. Þetta hafa Samtök rétt- hafa myndbanda hugsað sér að koma í veg fyrir. Þau hafa því ákveðið að veita 2000 króna verðlaun tii þeirra sem koma upp um brot af þessu tagi. Hafi viðkomandi myndir ekki verið sýndar í kvik- myndahúsum, en leyfi þar að lútandi verið keypt, þá greiöa samtökin heilar 4000 krónur fyrir uppljóstruniua. Leikar eru því heldur en ekki teknir að æsast i myndbandamál- um. Verðiaun verða nú veitt þcim sem koma upp um útleigu á ólöglegu mynd- bandaefni. Lokað launakerfi Fregnir berast nú af því aö ýmis fyrirtæki hafi tekið upp, sum jafnvel fyrir löngu, fyrir- bæri sem þau kalla lokað launakerfi. Þótt halda mætti að óathuguðu máli að þctta þýddi frystingu iaunanna inni í fyrirtækjunum og að starfs- menn fengju því ekkert útborgað er þaö ekki svo slæmt. Lukað launakerfi mun vera fínt heiti á því sem ann- ars myndi kailast leynilauna- kerfi. Málið er sem sagt það að starfsmönnum er bannað að blaðra um laun sín, aiveg sérstaklega við samstarfs- menn sína. Tiigangurinn er sagður sá aö fyrirtækin geti umbunað góðum og afburða starfsmönnum með hærri launum eða öðru án þess aö hinir finni til, hvað þá krcf jist jafnréttis í kjörum. Að gjalda líku líkt Selfyssingar geta aldeUis verið upp meö sér þessa dag- ana. Það mun ncfnUega ckki ýkja langt síðan bæjaryfir- völd í SUkiborg í Danmörku ákváðu að gata ein þar í borg yrði látin hcita Selfoss. Ekki skal reynt að leiða aö því getum hvernig götuheitið kemur út á danskri tungu. En menn vUja leggja eitt og anuaö á sig í þágu „samnor- rænnar” vináttu. Það þarf einnig að launa líku líkt og því settist bæjar- stjórn Selfoss (á Islandi) á rökstóla og velti vöngum yfir því hvernig endurgjaida mætti heiðurinn. Mun hafa komið fram uppástunga um að nefna félagsheimUið SUki- borg en sá kostur ekki þótt fýsUegur við frekari athugun. Þetta vandamál mun því ekki leyst enn að því cr síðustu fregnir herma. Umsjón: Jóhanna Sigþórsdóttir. SOLA VEGGPAPPI Með Pam gildi 22 Pam. Breidd 125 x 16 metrar. Opið laugardaga. 600-JjHHjByggingavpruverxlun Hnnnessonar a ■SÍÐUMÚLA 37 - SÍMAR 83290 - 83360 i—i ( Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Nýja bíó—Stríðsleikir: Dómsdagsleikur Nyja bíó: War games/Stríðsleikir. Leikstjóri: John Badham. Aðalhlutverk: Matthew Broderick, Dabney Coleman, John Wood og Ally Sheedy. Leikstjórinn John Badham vakti fyrst á sér athygli með myndinni Badlands fyrir nokkrum árum en hefur á síðustu árum einkum snúið sér aö gerð spennu- eða hasarmynda (Blue Thunder) og tekist nokkuð vel á því sviði. Nýjasta afkvæmi kappans, War Games, hefur flest sem prýða má góða spennumynd, netta hugmynd, mikinn hraða og ágætt handrit. War games fjaUar um menntskæl- ing nokkurn, David, leikinn af Broderick, sem gengur námið iUa þar sem leiktæki og tölvuspil eiga hug hans allan. Hann á sjálfur full- komna heimiUstölvu og notar hana m.a. til aö hafa samband við tölvu skólans og breyta einkunnum sínum. Dag einn reynir hann aö brjótast inn í leikjaprógramm fyrirtækis í KaUfomíu en lendir þá í samband við tölvuforrit með forskriftum eftir einhvem Falken og meðal leikja sem þessi tölva býður upp á er Global nuclear war eða alheimskjamorku- stríö. David ákveður að leika þann leik við hana og vera í hlutverki Rússa en tölvan leikur Bandaríkja- menn. Það sem David veit hins vegar ekki er að tölva þessi stýrir kjarnorkuherafla Bandaríkjanna og tekur þar að auki leikinn bókstaflega þannig að yfirmenn í NORAD-stöð- inni í Colorado halda aö Rússar séu í rauninni að undirbúa árás á sig. Þótt þeim takist síðan að koma í veg fyrir kjarnorkustríö og handtaka David heldur tölvan áfram að leika ,,leik- inn” en David tekst að sleppa úr haldi og reynir að hafa uppi á Falken tU að stöðva tölvuna sem nú hefur sett aUan herafla Bandaríkjanna í gang með ýmsum afleiðingum. Mynd þessi vakti mikla athygli í Bandaríkjunum, einkum vegna þess að hún kom mitt inn í mikla umræöu um „tölvusjóræningja” svokallaöa sem flestir eru á líku reki og sögu- persóna myndarinnar og dunda sér við að brjótast inn í tölvukerfi fyrir- tækja tU að skemma þau eðá ræna úr þeim upplýsingum en fyrsta reglan á þeim vettvangi er: „Ekkert kerfi er öruggt”. Badham tekst aö gera söguþráðinn mjög raunverulegan og halda áhrofandanum í spennu út aUa myndina. Lokauppgjöriö í stjómstöð NORAD er tU að mynda með þeim áhrifameiri sem maður hefur séð þótt nokkuð dragi úr spennunni hve óraunverulegt þetta allt virkar í rauninni, og þó eru dæmi tU um að herafU Bandaríkjanna hafi verið settur í viðbragðsstöðu vegna bUunarítölvukerfi. Þaö sem einkum gerir þessa mynd athyglisveröa er aö þótt tölvur eins og þær sem BandarUí jaher styðst við eigi að vera mjög traustar eru þær aöeins vélar og sem sUkar háðar bUunumþótt varla verði „bUanir” þeirra af þeirri stærðargráðu sem hér er fjaUað um. Viö skulum að minnsta kosti vona að svo veröi ekki. Friðrik Indriðason. 1984 1985 Nt ár með §ölda stórravínnínga Vinningur til íbúðarkaupa 10 vinningar til bflakaupa á 500 þúsund krónur á 100 þúsund krónur hver 40 utanlandsferðir 70 húsbúnaðarvinningar á 35 þúsund krónur hver á 10 þúsund krónur hverog 479 húsbúnaðarvinningar á 2500 krónurhver Sala á lausum miðum og endurnýjun ársmiða og flokksmiða stendur yfir. Mánaðarverð miða kr. 100,-, ársmiða kr. 1.200,- H/TTnT Ft) H/rnPTTT l?TVT BÚUM ÖLDRUÐUM -rtura x crcru uJj/auo x jtsuviikv UÍ.JU Dregið verður í 1. flokki fimmtudaginn 3. maí. feeí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.