Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1984, Blaðsíða 35
DV. MIÐVHÍUD AGUR 2. MAI1984. 35 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Lyftingar og skíði „Nú er sumar, gleðjist gumar,” syngur Dvölin í sínu alkunna sumar- skapi og hvetur landsmenn tii að gera slíkt hið sama. Því segjum við: „Kom- iði sælir, félagar og vinir góðir.” Það var lóðið, kann einhver að segja er við fjöllum um lyftingar í þessari Dægradvöi. En það er fleira sem við fjöilum um. Hún Helga Melsteð, sigur- vegarinn í Ford-modelkeppninni, á með okkur rabbstund. Hvað lyftingarnar snertir þá er það hann Birgir Þór Borgþórsson, fonnaður Lyftingadeildar KR, sem við spjöllum við. Eitilhress náungi og sterkasti gjaldkeri landsins í þokkabót. Helga Melsteð hefur skíðaíþróttina sem sína helstu dægradvöl. Stúlkan sú, er aðeins 16 ára og sló rækUega í gegn í Ford-modelkeppninni. Kom, sá og sigraði eins og það er nefnt. Punktur, punktur, hvað? Já, upp með punktinn segir punkturinn sjálfur. Við setjum hann á stöngina og úppssss. Upp fórhann. Þessi lyfta vargHd, enda er einn punktur ekki svo þungur. Texti: Jón G. Hauksson Myndir: Bjamleifur Bjamleifsson, EinarÓlason og Gunnar V. Andrésson Viöamma skiptumst áskSkan —og það er í eina skiptið sem Helga Melsteð, sigurvegarinn í Ford-módelkeppninni, hefur farið á gönguskíði, en skíðaíþróttin er hennar dægradvöl Only sixteen, lagið vinsæla, ég aðeins farið einu sinni á göngu- hljómaði skyndilega í útvarpinu í bílnum hjá okkur Dægradvalar- mönnum. Okkur fannst fara vel á því. Við vorum að hinkra eftir Helgu Melsteð og höfðum rétt sleppt oröunum um glæsilegan árangur hennar í Ford-módelkeppninni er lagið hljómaði. Hún væri jú aðeins sextán. Þetta var daginn eftir að hún hafði unnið keppnina. Þar kom hún, sá og sigraði. Og kannski er þetta aðeins áfangasigur. Hún er nefnilega talin eiga góða möguleika í sjálfri úrslita- keppninni í Face of the 80’s, sem fram fer í Bandaríkjunum síðar á árinu. Og þarna birtist hún. Klædd í „skíðadressið” og tilbúin í mynda- tökur. Auðvitað með skiöin með sér, enda er skíöaíþróttin hennar helsta dægradvöl. Og þetta var jú Dægra- dvalarrabb. Síminn verið glóandi Eftir að hún var sest í bílinn spurðum við si svona hvort hamingjuóskum hefði rignt yfir hana um morguninn. ,,Já, síminn er búinn að vera glóandi,” svaraði hún með látleysi. Ekki laust viö að örlítillar feimni gætti í röddinni. Hún byrjaöi að stunda skíðasportið 12 ára. „Við höfum farið saman á skíöi, nokkrir vinir og kunningjar. Þaö er mikið af kunningjum mínum sem eru í skíðamennskunni.” - Hvort skíðið þið oftar í Blá- f jöUum eða SkálafeUi? „Ætli við förum ekki oftar í Blá- fjöllin. En upp á síðkastið hefur leiðin legið í Hamragilið. Það er mjög skemmtilegt að renna sér þar í góðu veðri.” Um það hvernig farið væri í f jöllin sagði Helga að ef ekki fengist far meö einhverjum sem væri á fólksbíl þá væri bara farið meö rútu. Einu sinni á gönguskíði Skíöin hennar eru svigskíði og við impruðum á því hvort gönguskíðin væru ekki að komast í tísku á meðal skúöan»nnaj^Egiiíkl-aðiflestir séu nú á svigskíðum ennþá. Og sjálf hef skiöi.” — Hvernig bar það tU? „Eg fór með ömmu á skíði. Hún er á gönguskíðum og við ákváðum að skiptast á skíðum. Ekki get ég sagt aö mér hafi vegnaö vel á þeim, en einhvern veginn arkaöi ég samt áfram.” Helga hefur haft í mörgu að snúast í frístundum sínum í gegnum tiðina. Hún var í fimleikum í IR þegar hún bjó í Breiðholtinu. Og þá æfði hún badminton hjá TBR. Það var eftir að hún flutti í Alfheimana, svo til í næsta hús við TBR. Æfði badminton „Við fórum, nokkrar stelpur, að horfa á badmintonfólkiö og við það kviknaði áhuginn. Við keyptum okkur spaða og byrjuðum sjálfar að æfa. En það er nokkuð síðan við hættum.” — Hvað með frístundasport eins og hestamennsku? „Á hestbak hef ég aldrei komið. Og á varla von á því að ég snúi mér að því sporti.” Helga verður 17 ára 1. ágúst næst- komandi. Hún starfar í tískuverslun- inni Quadro viö Laugaveg. Meö verslunarstörfunum í sumar hefst jafnframt undirbúningur fyrir úr- slitakeppnina í Bandaríkjunum sem verður í nóvember. Á leið í enskunámskeið „Eg fer bráðlega á námskeið í ensku. Ætla að hressa svolítið upp á enskukunnáttuna og þá býst ég við aö byrja aftur í líkamsrækt, en ég var í henni um tíma.’ ’ — Það á ekkert að fara í vaxtar- ræktina? „Nei, ég hef nú ekki hugsað mér að verða neitt vöðvafjall.” Við vorum nú komin á áfangastað og ekkert eftir nema að smeUa nokkrum myndum af henni. Það er ekki annað að sjá en hún sé góð fyrir- sæta þrátt fyrir að hún hafi aldrei komið nálægt sýningarstörfum. Myndirnar bera þess glöggt merki. Vonandi vegnar þessari geðþekku stúlku sem best í úrslitakeppninni í Bandaríkjunum. -JGH. Helga Melsteð, aðeins 16 ára að aldri, kom, sá og sigraði í Ford-módelkeppn- inni. Helga er talin eiga góða möguleika í úrslita- keppni Face of the 80's, sem fram fer síðar á árinu i Bandarikjunum. Við sjáum hér hvar Helga er búin að skella sér i skíðagallann, en skiðaíþróttin er hennar dægradvöl. DV-mynd Gunnar V. Andrésson. Skömmu eftir að úrslitin lágu fyrir siðastliðið miðvikudagskvöld á Hótel Sögu. Helga fékk þá að gjöf hring, föt og snyrti- vörur frá Dior. Dægra- dvölin óskar Helgu til hamingju með sigurinn. Bjarnleifsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.