Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Qupperneq 34
34
DV. FTMMT\jDÁGUk'2L,ÍÍJNÍ'Í9,84.V'T
Skýrsla um vemdargildi Mývatnsbotns:
Utill vafi á neikvæðum
umhverfisáhrifum kísii-
gúrdælingar úr Mývatni
Kisiliðjan við Mývatn.
Náttúruvemdarráði ber að láta
gera náttúruminjakort af Mývatns-
sveit út frá verndargildi svæða þar,
samkvæmt reglugerð um vemd
Mývatns og Laxár. Tilgangurinn er að
glöggva sig á náttúruverðmætum á
svæðinu og auðvelda aðgerðir til
verndar þeim. Þessi kortlagning er nú
vel á veg komin.
I grein Árna Einarssonar líf-
fræðings og dr. Arnþórs Garðarssonar
P'ófessors í dýrafræði, í skýrslu 2 frá
Rannsóknarstöð við Mývatn útgefinni í
apríl 1984 er ritað um botn Mývatns
sem þeir telja nauðsynlegt að kort-
leggja með tilliti til verndar. Botndýr í
Mývatni og Laxá séu grundvallarfæða
fugla og fiska og verndun dýralífs á
svæðinu byggist því á skynsamlegri
ráðstöfun botnsins, segja þeir.
Kort sem birt er með greininni er
unnið með hliðsjón af niðurstöðum
rannsókna síðustu tuttugu ára. Þar er
Mývatni skipt i þrjá flokka eftir
vemdargildi og byggist flokkunin á
stigsmun á auðgi botndýra. Flokkun
Árna og Amþórs er þannig: Flokkur A.
,,Svæði sem alltaf gegna miklu hlut-
verki. Þessi svæði einkennast af mikilli
og stöðugri framleiðslu botndýra. Sum
þeirra gegna lykilhlutverki í viökomu
fugla og fiska, og önnur eru ein afdrep
vissra tegunda á vetrum.” Flokkur B.
„Svæði með mikla en nokkuð óstöðuga
framleiðslu botndýra. Þarna er ávallt
mikið h'f, en útbreiðsla þess er nokkuð
breytileg milU ára.” Flokkur C.
„Svæði með eitthvað minni Ufræna
framleiðslu en flokkar A og B. Itarleg
könnun á vemdargildi er nauðsynleg.”
Niðurstöður Áma og Amþórs era
þær að ekki komi til greina að raska
botni á svæðunum A og B. Botninn á
svæði C þurfi að rannsaka enn frekar
áöur en hægt verði að fullyrða um
verndargildi hans. Þó eru sett fram
rök fyrir því að hættulegt sé að fara í
dælingu úr Syðriflóa Mývatns sem
þýðir með öðrum orðum að aöeins
veröi dælt úr flokki C á Ytriflóanum.
Þar er búið að dæla um helmingi kísil-
gúrs á því svæði. Raskaöi botninn er
MEÐAL EFNIS í ÞESSARI VIKU:
PLAKAT:
Michael Jackson.
HANN OG HÚN
geta gert sér vesti úr
bendlaböndum eða
prjónað sér peysu með
mynstri á bol og
með því að hagnýta
handavinnuþáttinn í Vik-
unni núna.
UPPLAGT FYRIR BÆNDUR
Vikan prófar Hondu ATC 250 R - nánar tihekið Hondu
þríhjól.
Jónína Ben.
velur sér óléttuföt — en það kemur
engan veginn niður á morgunleikfiminni.
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
(91)-27022
Texti: Jón Baldvin Halldórsson
Rannsóknarstöð
við Mývatn
I lögum sem gefin voru út árið 1974
um vemd Mývatns og Laxár var
kveðið á um að komið skyldi upp
náttúrarannsóknastöð viö Mývatn.
Tilgangur með henni skyldi vera í
fyrsta lagi að sjá um framkvæmd
rannsókna sem varða umhverfis-
vemd á hínu friðlýsta svæði, í öðru
lagi að veita vísindamönnum
aðstöðu til rannsókna og í þriðja lagi
aö veita aöstöðu til verklegrar þjáif-
unarháskólanema.
Rannsóknarstöðinni var komiö
upp i landi Geirastaða rétt neðan við
Rif, voriö 1974. Þar er unnið að vist-
fræðilegum rannsóknum vegna um-
hverfisverndar og landnýtingar við
Mývatn og Laxá og sérhæfðum verk-
efnum vegna áhuga einstakra
visindamanna. Rannsóknarstöð
Náttúruverndarráös hefur gefið út
tvær skýrslur um rannsóknirnar frá
1974. Sú fyrri kom út árið 1979 en hin
siðari i apríl síöastUönum.
I skýrslunni frá þvi í apríl er
inngangur eftir dr. Amþór Garðars-
son og siöan 12 greinar vísinda-
manna um rannsóknir á lifríki Mý-
vatns og Laxár. Þar má nefna
greinar um náttúruminjar í Mý-
vatnssveit, bitmý í Laxá, rykmý í
Laxá, viðkomu toppandar við
Mývatn, fæðu svifdýra í Mývatni,
fuglamerkingar við Mývatn og anda-
stofna við Mývatn og Laxá. Loks er
svo sú grein um verndargildi
Mývatns sem hér er f ja llað um.