Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1984, Qupperneq 40
FRÉTTASKOTIÐ 687818 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjáíst, óháð dagblað FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1984. „Laxamálið” í Elliðaám tekur nýja stefnu: Klóak- keimur af laxinum? — tekur auðveldlega bragð, segir veiðimálastjóri „Það er að sjálfsögðu mjög óæski- legt að það séu mikil óhreinindi í kring- um laxinn, hvaö þá að hann syndi um í klóaki,” sagði Þór Guðjónsson veiði- málastjóri í framhaldi af fréttum DV í gær um klóakröriö sem leitt er út í sjó aðeins spölkom frá ármynni Elliða- ánna. „Það er vitað mál aö laxinn getur tekið bragð af efnum sem eru i sjó og ám, feitur fiskur er móttækilegur fyrir slíku. Sem dæmi get ég nefnt að fyrir 30 árum eða svo lak olía út í Elliðaárn- ar og þá töldu sumir sig finna olíukeim af laxinum sem veiddist þar. Einnig bar á því að laxar yrðu blindir. Hvort efnin í klóakinu hafa einhver slík áhrif get ég ekkert um sagt, til þess þyrfti að kanna málið nánar,” sagði veiöimála- stjóri. Eins og fram kom í frétt DV í gær er ekki von til að útrennsli klóaksins veröi fundinn nýr staður fyrr en á næsta ári en rörið þjónar 8000 Reykvíkingum, búsettum í Smáíbúðahverfi og á Háaleitishæð. —EIR. LOKI Mig grunaði aiitaf að það væri óhreint mjöl í poka- horninu á Suðureyri. Neyðarbjallan fór í gang Neyðarbjallan í útibúi Iðnaðarbank- ans í Breiðholti fór í gang í gær. Ekkert óvenjulegt reyndist um að vera. Þegar skýringa var leitað kom í ljós að bjall- an fór í gang vegna valtara sem var að þjappa bílastæöið fyrir utan bankann en þar standa nú yfir malbikunarfram- kvæmdir. -JGH. LUKKUDAGAR 21. júní 54443 Vinnmgshafar hringi í síma 20068 BANGSI FRA I.H. HF. AÐ VERÐMÆTI KR. 750,- Bnminn ífiskimjölsverksmiðjunni a Suðureyrí: VITAÐ VAR UM ÍKVEIKJUHÆTTU I maímánuði síðastliönum var fiskimjöl fjarlægt úr bræðslunni á' Suðureyri sökum þess aö farið var að rjúka úr mjölinu.Menn virðast því haf a vitað af íkveikj uhættu. „Menn vissu það í apríl að farið var að hitna í mjölinu,” sagði Olafur K. Olafsson, fulltrúi sýslumanns. Hann kvaðst ekki vita til að sér- stakar ráðstafanir hefðu verið gerðar vegna þessa. Fiskimjölsverksmiðjan brann sem kunnugt er í síðustu viku vegna sjálfsíkveikju í mjöli, aö þvi er talið er. Eldsvoðinn er enn í rannsókn. Sýni hafa verið send til Reykjavíkur. Brunatjóniö hefur verið metið á 7,2 milljónir króna. Þar af eyðilagðist mjöl fyrir rúmar tvær milljónir. Brunabótafélag íslands bætir tjón á húsnæðinu en Samvinnutryggingar á tækjum og mjöli. „Það hefur aldrei farið fram eins nákvæm og mikil lögreglurannsókn og núna. Þetta er sú mesta sem ég hef orðið var við héma,” sagði Guðjón Jónsson, slökkviliðsstjóri á Suðureyri. Guðjón sagði að bruninn í síðustu viku væri sá þriðji í röðinni hjá Fisk- iðjunni Freyju á aðeins tólf mánuðum. I júní í fyrra hefði einnig orðið bruni í bræðslunni og í sept- ember heföi kviknað í tækjasal frystihússins. -KMU. j, Sjö þýsk herskip lögðust að bryggju i Reykjavík í morgun. Þau eru á æfingaferðalagi um Norður-A tlants- hafog koma hingað ikurteisisheimsókn. Þetta eru 4 herskip, 2 birgðaskip og 1 olíuskip. Leggjast nokkur þeirra að bryggju iSundahöfn en önnuri Reykjavíkurhöfn. Um borð eru 1100 manns. Herskipin fara hóðan siðdegis á morgun. -KÞ/D V-mynd: Bj. Bj. Þýsku fálkaeggjaþjófarnir: Gabriele vill áfrýja — þrátt fyrir að hafa farið úr landi gegn því að áfrýja ekki Afrýjun Miroslav Peter Baly, ann- ars fálkaegg jaþjófsins, mun væntan- lega koma fyrir Hæstarétt fyrir næstu mánaðamót. Eins og kunnugt er hlaut hann og kona hans, Gabriele Uth Baly, hæsta dóm fyric brot af þessu tagi sem kveðinn hefur verið upp hérlendis. Hijóðaöi dómurinn upp á hálfa milljón króna í fjársekt, upptöku á tækjum og nokkurra mánaða skil- orðsbundiö fangelsi. Skömmu eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp í Sakadómi í maí- lok, fékk Gabriele að fara úr landi eftir að trygging hafði verið lögö fram fyrir fjársektinni, svo og gegn því að hún áfrýjaöi ekki dómnum til Hæstaréttar, að sögn Guðmundar Jónssonar hdl., verjanda hennar. Miroslav Peter áfrýjaði hins vegar og úrskurðaði Hæstiréttur hann i far- bann til 5. júlí. Hann dvelur hér á meðan á kostnað ríkisins. „Það var svo skömmu eftir að Gabriele kom út að hún sá sig um hönd, skrifaði mér bréf og gaf mér umboð til að veita skjölum móttöku og æskja þess að dómnum yrði áfrýjað,” sagði Guðmundur Jónsson. „Eg skrifaði þá ríkissaksóknara bréf þess efnis að dómnum yrði áfrýjað. Þeirri beiðni hefur ekki verið svar- að.” Aðspurður sagði Guðmundur að hann hefði heyrt að Hæstiréttur tæki málið fyrir mjög fljótlega en ná- kvæma timasetningu vissi hann ekki. Þorgeir Orlygsson dómarafulltrúi sagöi að sennilegast yrði málið tekið fyrir fyrir mánaðamót en ekki væri ákveðiðhvenærþaðyrði. —KÞ Bolungarvík ánvega- sambands Bolungarvík er nú vegasambands- laus við umheiminn þar sem Vega- gerðin hefur lokað Oshlíöinni og er að vinna að endurbótum á veginum þar. I stað vegarins er Fagranesið með þrjár ferðir milli Bolungarvíkur og Isaf jarðar á dag en nokkur urgur er í mönnum á Bolungarvík þar sem þeir telja að mun dýrara sé að ferðast með Fagranesinu en aka um Oshiiðina og vilja að Vegagerðin taki þátt í þeim kostnaði. Áætlaö er að opna veginn aftur á laugardag en óvíst er hvort hann verður þá strax fólksbílafær. Sumir þeirra sem fóru um veginn í fyrra, strax að lokinni viðgerð, misstu hitt og þetta undan bílum sínum svo sem hljóðkúta. KF Bolungarvík/FRI Gripaflutninga- bflinn vantaði heilbrigðisvottorð Norskur maður, Svein Svarthaug, var stöðvaöur á Seyðisfirði með fullan gripabíl af hrossum, er hann hugðist flytja út með Norröna-ferjunni, þar sem hann reyndist ekki vera með til- skilin vottorð fýrir bíl sinn. Að sögn Jóns Péturssonar, héraðs- dýralæknis á Egilsstöðum, var þetta mál athugað strax og reyndist þá ekki eins alvarlegt og á horfðist þvi maður- inn hafði gleymt heilbrigðis- og sótt- hreinsunarvottorðunum fyrir bílinn í Noregi. Er það fékkst staðfest var manninum leyft að fara út með hross- in. Alls hafði maðurinn keypt 8 hross í Skagafirði og Eyjafirði og hyggst hann koma hingað aftur og kaupa fleiri en frjáls útflutningur er á hrossum héöan. Jón sagði að gripaflutningabíll mannsins hefði verið til stökustu fyrir- myndar hvað hreinlæti varðar. -FRI Fiskverðið: Hækkun uppá 6til8%? „Eg legg allt kapp á að ljúka þessu sem fyrst og er að reyna að ná verði sem gildir til áramóta,” sagði Jón Sigurðsson, oddamaður yfirnefndar verðlagsráðs sjávarútvegsins, í morgun en fundur verður haldinn í nefndinni um fiskverðið klukkan 6 í dag. Jón vildi ekki tjá sig um hve mikið f iskverð yrði hækkað. Um rekstrartap útgerðarinnar sagði hann að það væri samkvæmt áætlun- um Þjóðhagsstofnunar frá 6 til 8 prósent af tekjum. Staða minni togar- anna, þeirra nýjustu, væri þó enn verri. Samkvæmt upplýsingum DV hefur boriö á góma á fundum yfirnefndar- innar að vera með svokallaðar verð- uppbætur á fiskverðið. Miðað við stööu útgerðarinnar og komi til verðuppbóta er ekki ólíklegt að fiskverðshækkunin liggi á bilinu frá 6 til 8 prósent. Erfitt er samt aö spá um hve mikil hækkunin verður. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.