Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Side 1
Frjálst, óháð dagblað
DAGBLAÐIÐ — VISIR
192. TBL. — 74. og ARG. MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST 1984.
Fimm manna f jölskylda á barmi örvæntingar eftir viðskipti við fasteignasala
og töf málsins í dómskerf inu:
„Töfin er réttar-
farslegt hneyksli”
— segir Þórður S. Gunnarsson lögf ræðingur
Fimm manna fjölskylda, sem
flutti frá Akureyri í höfuöstaðinn
fyrir tveim árum, stendur nú á
barmi gjaldþrots og örvæntingar
eftir viðskipti við óprúttinn fast-
eignasala sem hafði af henni stórfé
með svikum. Málið var strax kært en
hefur af einhverjum óskiljánlegum
ástæðum stöðvast í dómskerfinu með
þeim afleiðingum að f jölskyldan fær
ekkitjónsitt bætt.
„Sú töf sem orðið hefur á málinu
hjá Rannsóknarlögreglunni og fyrir
Sakadómi er réttarfarslegt
hneyksli,” segir Þórður S. Gunnars-
son lögfræðingur, verjandi fjölskyld-
unnar. Fasteignasalinn sem dró sér
fé fjölskyldunnar getur aftur á móti
um frjálst höfuð strokið og titlar sig
nú heildsala -EIR.
-Sjábls.5
„Kvétinn
ekki
aukinn’'
— segir
sjávarútvegsráðherra
„Það eru engar h'kur til þess að kvót-
inn verði aukinn. Ég hef sagt það áður
og segi það enn,” sagði Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra í sam-
tali við DV.
Ýmsir hafa að undanfömu látið í það
skína að aflakvótinn verði aukinn í
haust. Útgerðarmenn á Vestfjörðum
og viðar sögðu það meðal annars í
samtölum við blaöið á mánudag.
Halldór Ásgrímsson sagði um það:
„Þetta er þeirra eigin óskhyggja.”
-KÞ
Landhelgisgæslan
á eftirlitsflugi
við Jan Mayen:
Aðeins
sex skip
ágráa
svæðinu
Landhelgisgæslan fór enn eitt eftir-
litsflugið yfir umdeilda svæðið við Jan
Mayen í gær. Þá voru aðeins sex skip á
gráa svaeöinu svokallaða og voru þau
öll norsk. Þá var einn danskur rækju-
bátur við Jan Mayen á suðvesturleið.
-KÞ
— sjá einnig bls. 2
Það slys varð um kvöldmatarleytið i gær að steypubifreið ók aftan á litinn Fiat. Varð afhögg mikið og
reyndist ókleift að ná ökumanni fólksbifreiðarinnar út án þess að kalla til slökkvilið með hinar nýju klipp-
ur sínar. Var ökumaðurinn siðan skorinn iit úr bilnum og gekk það verk vel og átakalaust fyrir sig. Ekki er
Ijósthvað ollislysinu en ökumaður Fiatsins var flutturá slysadeild. -EIR. DV-myndS
Þorsteinn Pálsson, formaður|
Sjálístæðisflokkslns, í biöstofu
forsætisráðherra í gær.
DV-mynd Kristján Ari. f
Fær
flokksformaðurinn
ráðherrastól?
Hefur ekki
verið rætt
— segir Þorsteinn
— sjá bls. 2
Hlaupið
f Skaftá
er í rénun
-sjábls.4
Dómur undirréttar í Barðastaðamálinu á Snæfellsnesi:
Bannað ævilangt að hafa búfé
— sjábls.3