Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1984, Side 13
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGUST1984.
13
„Viö ætlum okkur galvösk aö fara
út í baráttuna á fjölmiðlamarkaðn-
um og þaö er mikið að gerast hjá
okkur núna. Við höfum fengið okkar
eigin prentstofu og getum nú sinnt
öllu prentverki fyrir kirkjuna sem
starf kirkjunnar kallar á. Svo höfum
við snúið okkur að gerð myndbanda
sem stefnt er að að komi út reglulega
á þriggja mánaða fresti.” Þetta
sagði sr. Kristinn Ágúst Friðfinns-
son, framkvæmdastjóri útgáfunnar
Skálholts, sem rekin er á vegum
kirkjunnar.
Prentstofan, sem kirkjan eignaðist
síðastliðið vor, er búin fullkomnum
prenttækjum og er þar hægt að full-
vinna öll verkefni sem þangað ber-
ast. Það er óneitanlega skemmtileg
tilviljun að tilkomu prentstofunnar
skuli einmitt bera upp á 400 ára af-
mæli Guðbrandsbiblíu. Kirkjan var
frumkvöðull að prentun hér á landi
er Jón biskup Arason setti upp prent-
Sr. Kristínn Ágúst Friðfinnsson framkvæmdastjóri fyrir miðri mynd ásamt starfsfólki Skálholts.
„Ogþað varstþú".
öll hljómlistin á myndbandinu af
plötunni,” sagði sr. Kristinn. „Við
viljum meina að foreldrar geti varla
sleppt því að taka vandaða, íslenska
spólu fyrir krakkana í staðinn fyrir
t.d. Tomma og Jenna. A þessu
myndbandi verður létt efni fyrir
krakkana, bæði efni af plötunni og
myndir af krökkum að leik, þá segir
Hrefna Tynes þeim sögur og ungur
piltur, Ragnar Snær, kemur fram
með leikbrúöur.
Við förum út í gerð þessa efnis í
hreinni samkeppni við það sem fyrir
er á markaðnum og teljum að svona
verði kirkjan að starfa í auknum
mæli. Boðskapur kirkjunnar er
sígildur en við verðum alltaf að hafa
opinn huga fyrir nýjum leiðum, sem
bjóðast til að koma honum á fram-
færi. Við teljum það hlutverk okkar
hér í Skálholtsútgáfunni að túlka og
útbreiöa kristinn lífsskilning með
þeim aðferðum sem eiga greiðastan
aðgang til fólks á hverjum tíma og
með því styrkja starf kirkjunnar í
þágu kærleika, réttlætis og friðar,”
sagði sr. Kristinn Agúst Friðfinns-
son, framkvæmdastjóri útgáfunnar
Skálholtsaðlokum. ÞJH
Útgáfan
Skálholt: ,
Leitum nýrra leiða
— segir sr. Kristinn Ágúst Friðf innsson f ramkvæmdast jóri
verk á Hólum snemma á 16. öld en
Guðbrandur biskup Þorláksson nýtti
það prentverk maxma best ög lét
m.a. prenta þar biblíuna sem síðan
hefur verið viö hann kennd. Þegar
biskupsstólarnir á Hólum og í Skál-
holti lögðust niður og voru fluttir til
Reykjavíkur lagðist þetta prentverk
niður og hefur kirkjan þurft að leita
annaö við að koma boöskap sínum á
framfæri.
Kirkjan orðin eftir á
„Þaö má segja að kirkjan hafi
vaknað upp við dálítið vondan draum
viö það að vera orðin eftir á í upplýs-
inga- og fjölmiðlunarstarfi,” sagði
sr. Kristinn. „Lengi vel var kirkjan
eini aðilinn sem haföi yfir prenttækj-
um að ráöa, en síöan það starf kirkj-
unnar lagðist niður fyrir um 200 ár-
um hafa aðrir aöilar séð um prentun
og fjölmiölun í landinu. Það er óhætt
að segja að aðrar hugmyndir en
trúarlegar hafa átt greiðari aögang
aö fólki á síðari tímum. Þó að al-
menn uppfræðsla sé góð þá þarf að
uppfræða fólk um trúarleg efni og
örva þannig trúarlega innsýn og
skilning. Kirkjan þarf að huga að
tengslum sínum við samfélagið og
vera vakandi fyrir nýjum möguleik-
um sem gefast .til að koma boðskap
sínum á framfæri, hvort sem það
felst í bóka- eða tímaritsútgáfu,
myndböndum, hljómplötum eða út-
varpsrekstri.”
Það er rétt að geta þess í stórum
dráttum hvað er á döfinni hjá útgáf-
unni Skálholt. Utgáfan starfar í sex
deildum, prentdeild, tímaritsdeild.
bóka-, fræðsludeild, tónlistar- og
myndbandadeild, og sagði sr. Krist-
inn að takmarkið væri að allar deild-
irnar störfuðu skipulega og hefðu
ætíðnæg verkefni.
Börnin skrrfa Guði
„Það var fyrir tilstuðlan dr. Sigur-
björns Einarssonar biskups að Skál-
holtsútgáfan var stofnuö árið 1981 og
starfaði hún fyrst umsinnsemnokk-
urs konar útgáfuráð. Nú hefur orðið
veruleg breyting á starfsemi útgáf-
unnar. Prentdeildin hefur nú á sinni
könnu svo mörg og viðamikil verk-
efni að vísa hefur þurft verkefnum
frá sem ekki hafa beinlínis tengst
starfi Þjóðkirkjunnar. Bóka- og
tímaritsdeildimar eru í fullum
gangi. Nú er unnið að útgáfu þriggja
bóka og Skálholt hefur með höndum
rekstrarlega umsjón Víðförla, sem
er málgagn kirkjunnar.
I athugun er rekstrarleg yfirtaka'
Kirkjuritsins sem Prestafélagið gef-
ur út. Það er frábært rit, enda er
þetta eina ritið sem fjallar faglega
um einstaka málaflokka, sem snerta'
nútíma mannh'f. Við erum staðráðin í
því að efla og kynna þetta rit og það
ætti að vera létt verk,” sagði sr.
Kristinn.
Bækurnar sem koma fljótlega út
hjá Skálholti eru Bamabibhan,
Lúther og íslenskt þjóðlíf, sem íjall-
ar um áhrif Marteins Lúthers á sam-
tíð sína og framvindu sögunnar, og
bókin „Börn skrifa Guði”, sem er
samantekt á bréfum barna til Guðs.
„Þetta er stórkostleg bók,” sagði
sr. Kristinn um síöasttöldu bókina.
„I þessum bréfum koma bömin
þannig oröum að hinstu rökum til-
vemnnar og lífsins, sem fullorðið
fólk á erfitt með aö orða. Þessi bók
hefur verið gefin út bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum í milljónum eintaka
og vonum við að bókin komi út um
næstu mánaðamót.”
Áður en skihð er við hið prentaða
mál sem Skálholt vinnur að þá er rétt
að geta fræðsludeildarinnar, sem nú
vinnur aö þremur verkefnum: Söng-
bók fyrir böm og unghnga, endur-
skoðun fermingarkversins .JCristin
trúfræði” og hjálparefnis fyrir
barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar.
Þá er og fyrirhuguð ný útgáfa ferm-
ingarkversins „Líf með Jesú”.
„Og það varst þú"
En það er einnig hægt eins og allir
vita að koma boðskap á framfæri í
mynd og tónum og em nú starfandi
tvær dehdir hjá Skálholti sem sinna
því verkefni, tónhstardeUd og mynd-
bandadeild. Já, myndbandadeild.
„ Já, við erum að fara inn á nýjar
brautir. Við höfum að vísu gefið út
tvær hljómplötur og snældur áöur og
höldum þvi starfi áfram með útgáfu
tveggja hljómplatna á næstu vik-
um,” sagðiKristinn.önnurplataner
bama- og fjölskylduplatan „Og þaö
varst þú”, sem ég tel eina vönduð-
ustu barna- og fjölskylduplötu sem
gefin hefur verið út hér á landi.
Fjöldi hljómflutningsmanna hefur
lagt hönd á plóginn við gerð plötunn-
ar, en Jónas Þórir hefur haft umsjón
með því starfi. Auk hans koma fram
á plötunni þeir Sverrir Guðjónsson,
Ásgeir Oskarsson, Pálmi Gunnars-
son og Páh Hjálmtýsson auk krakka
úr Fossvogs- og Melaskóla. Seinni
hljómplatan heitir „Kirkjan syngur”
og hefur hún að geyma hljóðritanir
úrvals-kirkjutónlistar frá kristni-
boðsári 1981, sem geröar vom úti um
alltland.”
„1 tengslum við plötuna „Og þaö
varst þú” verður gefið út myndband
sem sr. Solveig Lára Guðmundsdótt-
ir hefur haft umsjón með og verður
Stórfram-
kvæmdirá
Fákssvæðinu:
Fjórðungsmót hestamanna
i fyrsta skipti í Reykjavík
Ákveðiö er að næsta fjórðungsmót
sunnlenskra hestamanna veröi haldið í
Reykjavík næsta sumar. Gífurlegar
framkvæmdir eru nú hafnar á svæði
Fáks að Víðivöllum til þess að þetta
f jórðungsmót megi takast sem best, en
fjórðungsmót hefur aldrei áður verið
haldið í Reykjavík. Að sögn Arnar
Ingólfssonar, framkvæmdastjóra
hestamannafélagsins Fáks, fær félagiö
góöan stuðning frá Reykjavíkurborg
og Skógrækt Reykjavíkur, en Skóg-
ræktin hefur umsjón meö öllu Elliðaár-
svæðinu fyrir Reykjavíkurborg.
Byggður hefur verið nýr hringvöllur
í hvilftinni fyrir sunnan dýraspítalann
og öll brekkan þar að Víðidalnum hef-
ur verið löguö, þannig aö mjög gott
svæði fæst fyrir áhorfendur. Þá er búið
að sá grasfræi i um 18 hektara lands og
þúsundir trjáplantna víðs vegar um
svæðið haf a verið gróöursettar.
öm bætti því við að framkvæmdir
við Ofanbyggðaveg gengju vel og
myndi hann tengjast Vatnsveituvegin-
um með haustinu. Myndu þá öll um-
ferðarvandamál hestamanna i Víðidal
verða úr sögunni.
G.T.K.
Meðal framkvæmda á Fákssvæð-
inu er gerð nýs hringvallar þar sem
allir dómar geta farið fram. Brekk-
an uppaf hefur verið löguð og skap-
ar mjög góða aðstöðu fyrir áhorf-
endur.
Ljósm. G.T.K.