Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1984, Síða 5
DV. FIMMTUDAGUR 23. AGUST1984.
5
Lánskjaravisitalan
920 stig í september:
Hef ur hækkað
um 17 prósent
f rá f sept.
ífyrra
Seðlabankinn hefur reiknaö út láns-
kjaravísitöluna fyrir september og er
hún 920 stig. I september í fyrra, 1983,
var hún 786 stig. Þetta er 17 prósenta
hækkun.
Lánskjaravísitalan fyrir ágúst var
910 stig. Hækkunin nú á milli mánaða
er því 1,1 prósent sem gerir 14 prósent
hækkun miðað við heilt ár.
Hækkun lánskjaravísitölunnar síð-
ustu þrjá mánuði rejoidist vera 3,95
prósent. Miðað við heilt ár er það
hækkun upp á 16,8 prósent.
-JGH
Bandalagið
vill brjóta
auðhringinn
Bandalag jafnaöarmanna hefur
sent frá sér fréttatilkynningu í tilefni
þeirra viðræðna sem nú eiga sér stað
miili stjórnarflokkanna um nýjan verk-
efnalista fyrir ríkisstjórnina. Eru
lagðar þar fram einar tíu hugmyndir
og hvatt til þess að þær verði settar á
framkvæmdaskrá.
Má nefna sem dæmi hugmyndir um
að leggja niður niðurgreiðslur og út-
flutningsuppbætur á landbúnaðaraf-
urðir, svo og almennan tekjuskatt. Að
alþingismenn verði teknir út úr
nefndum, ráðum og stjórnum fram-
kvæmdavaldsins, og að ríkisvaldið
komi hvergi nærri samningum á hinum
almenna vinnumarkaöi. Einnig er
hvatt til aö ríkisbankamir verði seldir
í hendur almenningshlutafélögum og
að unnið verði að gerð strangrar lög-
g jafar gegn einokun og hringamyndun,
„löggjafar sem meðal annars brjóti
upp SlS-auðhringinn og sölusamtök í
sjávarútvegi”, eins og segir í frétt
Bandalagsins.
EA
INNLÁNIN 22 MILUARDAR
Innlán í bönkum, sparisjóðum og
innlánsdeildum kaupfélaga voru
21.724 milljónir króna í júnílok. Þar
af spariinnlán 16.989 milljónir, en af
þeim var um helmingurinn á venju-
legum sparisjóðsbókum.
Veltiinnlán, á tékkareikningum,
námu 3.559 milljónum króna. Spari-
innlán sem fyrr segir 16.989 milljón-
um.
Af spariinnlánum voru 8.411
milljónir á almennum sparisjóðsbók-
um, sem nú bera 17 % vexti. Á vísi-
tölubundnum reikningum voru 3.446
milljónir, öðrum bundnum reikning-
um eða vaxtaaukareikningum 2.084
milljónir og í innlánsskírteinum lágu
1.938 milljónir króna.
Innstæður i innlánsdeildum kaup-
félaga voru 439 milljónir króna. HERB
Skuldaskipin:
Enginn hamar
yfir Björgúlfi
Togarinn Björgúlfur EA 312 er ekki í
hópi þeirra skipa, sem fullveösett eru
fyrir skuldbreytingu útgerðarfyrir-
tækja nú. Hann var á lista yfir 18 skip,
sem DV birti fyrir skömmu, og talinn
var því sem næst skrá yfir skip sem
væru veösett fyrir 9Ö% af tryggingar-
verðmæti eða meira.
Björgvin Jónsson hjá Útgerðar-
félagi Dalvíkinga hf. sagði aö skuld-
breyting vegna Björgúlfs hefði þegar
farið fram. Togarinn er búinn með
kvóta sinn og mun nú veiða fyrir annaö
fyrirtæki um sinn og landa í Sandgerði.
Eins og getið var í fréttaskýringu
þeirri þar sem skrá yfir skuldugustu
skipin var birt, hafði hún ekki fengist
staðfest og mikið leynimakk reynst
vera í kringum máliö. Sem sagt,
Björgúlfur átti þar ekki heima. Aðrar
leiðréttingar á skránni hafa ekki bor-
ist.
HERB
OXSMÁ í Safari
Stórrokkhljómsveitin Oxsmá mun
halda tónleika í Safari í kvöld, fimmtu-
dagskvöld 23. ágúst. Þessa skemmti-
legu hljómsveit skipa sem fyrr: Keli
stórsöngvari, Seli gítarleikari, Kommi
• trommi,SkariSaxi og Sgrímur bassi.
Meðal verka á efnisskránni eru
„Maöurinn á bryggjunni”, „La
mafia”, „Rokksúpan” og fleira. Eins
og þeir sem fylgst hafa með hljóm-
sveitinni vita má hafa ótrúlega
skemmtan af tónlist hennar.
ás
Allra síðustu bílana af Skoda '84
bjóðum víð tíl mánaðarmóta á
eínstökum greíðslukjörum. Og að
sjálfsögðu á sama frábæra verð-
inu.
Dæmí:
Skoda 105, verð kr. 143.900.-
Útborgun__________kr. 59.900,-
Lán tíl 6 mán. kr. 84.000.-
Þóra Dal, augiýsingastofa