Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1984, Blaðsíða 16
16
DV. FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST1984.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Gaddavírsgirðingar fyrir
framan búðir A TVR?
Ásgeir Ásgeirsson skrifar:
Eg hef áhuga á aö segja nokkur vel
valin orð í sambandi viö þá frétt sem
lesin var í sjónvarpi þann 13. ágúst.
Þar var talað um aö hækka verðlag á
áfengi til aö hefta útbreiðslu þess og
minnka áfengisneyslu almennings.
Sem sagt gamla sagan að best sé
að slökkva á kertinu og ekki bara á
því heldur heila dótinu.
Þeir ætla sér enga smáhluti þessir
ágætu heiðursmenn. Ég fer að
hugsa, og sennilega fleiri, hvort
þessir menn séu í stórstúku eða öðru
þess háttar.
Má ég spyrja þessa menn hvað
þeir ætlist eiginlega fyrir? Að setja
upp gaddavírsgirðingar fyrir fram-
an búðir ÁTVR eða hafa það eins og í
Færeyjum aö ef menn borgi ekki
skattana sína þá fái þeir ekki
bjórinn? Eg held persónulega að
Það kemur fyrir að mikið er að gera i áfengisútsölum A TVfí. Skyldi örtröðin minnka ef menn þyrftu að
borga skattana sína áður en verslað er?
með meiri höftum skapist einungis
spilling og fleira miður gott.
Það er talaö um að Islendingar
séu með hlutfallslega minnsta á-
fengisneyslu á Norðurlöndum en þaö
er ekki hlustað á það, aöeins tekið
eitthvert óhagstætt yfirlit frá Al-
þjóðaheilbrigðisstofnuninni.
Eg ætla ekki að hafa þetta bréf
mitt lengra en segja við þessa ágætu
menn að spottar sem þeir ætla aö
kippa í séu ekki árennilegir heldur
allt aðrir sem ég er fús til að greina
frá ef þeir treysta sér til að svara
þessu. Og ég segi hér að lokum eins
og ágæt kona sagði eitt sinn: „Vesgú
og spís”, Benedikt, þegar sá vildi
ekki grautinn sinn.
W't Bæwifoquiinn : Mtifncrfiiði. Ciaiðnkaupstaö nq a Soltjarnarnesi KVITTUN Nr. - Bæjarfógc.'mn i Hafnarfirði. KVITTUN Nr.
FYRlR INNBORGUN Garöakaupstað og á Seitiarnarnesi FYRIR INNBORGUN
<ZX, S Sýslumaðurmn í Kjót-arsýslu
jO/ic* ..• jÝSUL.’.- U,. ‘ -l T i ►:*St ■\' KjG'-.AIISt
;f f-??/ f ',5 ÁC.
— - -- - .v 4 O.'. Q.. - •; frSéft/
* X ' AUJKCRI
I- .
^prnsk. i.im.j p-Q/Cý ^fnganriaship;, ’ j j fvv' krámiHj ; Skync', ,l;';jr>.n.j y</o'~ yyo - y q - Z//10 Eigandnr'kioti ; '] Nyskránmg í 1 fhyndiskráning f?o yy<y
1 Bifiniðaskattur ■ j Bifroiða »katti:r
“"iKostn.-W - ] Kostnaöu'
} Drá’tan/úi.ifspjeld " 1 bratiar.f:larspiald n j v:>:,,iií,„. >.'j
] AcmaC . 1 Annað - - - ■ ■ -,;
■fn.llS kl cPP O ^ /MS-
Umskráning ökutækja:
HELMINGS MUNUR Á UMSKRÁNINGU
BÍLAINNAN SAMA UMDÆMIS
Spurningin
Hlustarðu mikið á tónlist?
Haraldur Guðjónsson afgreiðslu-
maður: Eg hlusta svo til eingöngu á
jass og minn uppáhalds jassleikari er
Benny Goodmann.
Sigríður Jónsdóttir saumakona: Eg
hef alltaf haft gaman af tónlist og þá
aðallega klassískri tónlist eftir
Schubert. Mitt uppáhaldsverk er þó
Tungskinssónatan.
Ingirós Filipusdóttir húsmóðir: Eg
hlusta á alls konar tónlist, þó einkum
dægurlög.
Guðrún Soffía Jónsdóttir saumakona:
Já, ég hlusta dálítið á tónlist, helst
nýjustu topplögin. Tölvutónlist er í
miklum metum hjá mér.
Kristín Gísladóttir innheimtumaður:
Eg hef alltaf hlustað mikið á tónlist.
Björgvin Halldórsson og Gunnar
Þórðason eru mínir menn í tónlistar-
heiminum.
Dirkjan van der Stelt nemi: Eg hlusta
fyrst og fremst á rokk. Bob Dylan er í
miklum metum hjá mér og Bruce
Springsteen kemur fast á hæla honum.
Jóhann G. Guðmundsson skrifar:
Ég hef nú með stuttu millibili látið
umskrá tvo bíla. I fyrra skiptið lét ég
umskrá af F-númeri yfir á G-númer og
kostaði þaö 890 kr. I síðari skiptiö lét ég
umskrá af G-númeri yfir á G-númer en
þá kostaði það 1.335 kr. Eins og sést er
hér í bæði skiptin um umskráningu að:
ræða innan sama umdæmis. Því leikur |
Mynd frá keppnii bogfimi fatlaðra.
mér hugur á að vita hvers vegna það
var helmingi dýrara að umskrá í
síðara skiptið. Mér sýnist hér vera um
nákvæmlega sama hlutinn að ræða.
DV hafði samband við Bifreiða-
eftirlit ríkisins:
Þar fengust þær upplýsingar að
Kona hringdi:
Eg vU nú bara lýsa furöu minni á
allri þeirri umfjöUun sem islenska
Uðið, sem fór á ólympíuleikana í Los
Angeles, fékk. Það mætti halda að þar
hefði verið á ferð stór hópur verðlauna-
hafa, þótt í reynd hafi aðeins einn úr
verðmismunurinn væri svo til
eingöngu tU þess að fólk héldi
númerunum sem það hefði en væri
ekki aö skipta um að ástæðulausu. Þaö
væri skylt með lögum að bifreiðaeig-
andi ætti að hafa á bíl sínum númer
síns umdæmis. Því væri það ódýrara að
skipta af t.d. G-númeri yfir á R-númer.
En ef skipt væri t.d. af G-númeri yfir á
hópnum komist á verðlaunapall. Þaö
fóru fram aörir ólympíuleikar í ár,
ólympíuleikar fatlaðra. Þar náðu
íslensku keppendurnir glæsUegum
árangri. Þeir hlutu gull- og silfurverð-
laun auk nokkurra bronsverölauna og
er það mjög góður árangur. Ekki voru
G-númer væri um allt annan hlut að
ræða. Fólk væri þá í flestum tUfeUum
að halda gömlum númerum og slíkt
kostaði meiri fyrirhöfn fyrir eftirUtið,
aukna pappírsvinnu, númerasmíöi
o.s.frv. Þetta væri ástæöulaus númera-
umskráning og þess vegna væri hún
helmingi dýrari.
fatlaðir styrktir tU fararinnar fjár-
hagslega heldur öfluöu þeir peninga
upp í kostnað sjálfir. Þama eru á ferð-
inni mjög duglegir einstaklingar sem
eiga meiri umf jöllun á opinberum vett-
vangi skUið. A því leikur enginn vafi.
Kostnaðarsamur sjúkraf lutningur
Margrét Ingimundardóttir hrlngdi:
Þann 2. júh' sl. varð þaö óhapp að
þaö kviknaði í bílnum okkar i Þor-
lákshöfn. Ikveikjuvaldurinn var
sonur okkar og brenndist hann nokk-
uð Einnig brenndist faðir hans á
höndum. Við hringdum í Selfosslög-
regluna, keyrðum síðan á móti lög-
reglubílnum og er við hittumst tóku
þeir drenginn og föður hans í lög-
reglubUinn og keyrðu þá upp á Sand-
skeið. Þangað kom svo sjúkrabUl og
fór með þá niður á Landspítala.
Og nú eru mér farnir að berast
reikningar fyrir þessa flutninga.
Fyrst kom reikningur frá Rauða
krossinum vegna sjúkrabUsins og
var hann vegna tveggja slasaðra kr.
700. Þá kom reikningur frá lög-
reglunnií Arnessýslu sem hljóðaði
upp á 3300 kr. og innifaUnn í
upphæöinni var sjúkraflutningur þó
aö þeir slösuðu hefðu veriö fluttir í
venjulegum lögreglubU. Einnig kom
reikningur frá Borgarspítalanum
upp á 600 kr. fýrir aðstoð á slysa-
varðstofu þó að þeir slösuðu kæmu
aldreiþangað.
Samtals kostaði sjúkraflutningur-
inn þá 4600 kr.
Samkvæmt þessu gæti eg átt von á
fleiri reikningum, t.d. vegna
hjúkrunarkonu sem kom meö okkur
á Sandskeið og læknis frá Þorláks-
höfn sem kallaður var út frá Selfossi
en náöi þó ekki í tæka tíö tU aöstoöar.
Sem betur fer voru sár drengsins
ekki alvarleg og á daginn kom að við
hefðum eins getað farið alla leið tU.
Reykjavíkur með hann á okkar
einkabíl.
En kjarni málsins er: Hvers
vegna er ekki eitt gjald fyrir sjúkra-
flutning af þessu tagi?
„HINN GÓDIÁRANGUR ÓLYMPÍU-
LIÐS FATLAÐRA HEFUR GLEYMST”